Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 22

Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 22
Fyrir nokkrum dögum boð-aði Landsbankinn styttingu afgreiðslutíma í ellefu úti- búum á landsbyggðinni. Fjórtán starfsmönnum var sagt upp sam- hliða breytingunum. Landsbankinn hefur skilgreinda samfélagsstefnu sem segir: „Lands- bankinn hefur markað stefnu í samfélagsábyrgð þar sem efna- hags-, samfélags- og umhverfismál- um er fléttað saman við starfshætti bankans. Stefnan miðar að því að stuðla að sjálfbærni í íslensku samfélagi, vera hreyfiafl og starfa að ábyrgum stjórnháttum í rekstri bankans.“ Sjálfbærni samfélaga byggist á því að skapa umhverfi sem mætir þörfum nútímans og skapa mögu- leika fyrir komandi kynslóðir til að þróast áfram á eigin vélarafli. Þegar vegið er að fjölbreytni í atvinnulífi og þjónustu með þessum hætti er verið að draga úr styrk samfélagsins til sjálfbærni. Þótt hægt sé að færa rök fyrir því að bankaafgreiðsla í útibúum fari minnkandi með aukinni tækni, er bankastarfsemi í heild ekki að dragast saman. Því er það mjög undarlegt og í hrópandi ósamræmi við samfélagsstefnu Landsbankans að fækka starfsmönnum í útibúum sínum um landið. Þeim væri í lófa lagið að flytja verkefni og störf sem hægt er að vinna án staðsetningar út á land. Tækninni fleygir jú fram jafnt yfir landið. Ljósleiðaravæð- ing landsins virkar í báðar áttir og engin einstefna í þeim efnum. Landsbankinn er í eigu ríkisins og þessi stefna er í ósamræmi við stefnu stjórnvalda um aukna áherslu í byggðamálum. Eins og segir í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar, þá felast mikil verðmæti í því að landi öllu sé haldið í blóm- legri byggð og það sé mikilvægt að landsmenn eigi að hafa jafnan aðgang að þjónustu og atvinnu- tækifærum um allt land. Öflug byggðastefna Í byggðastefnu ríkisstjórnarinnar er lögð áherslu á blómlega byggð um allt land. Í þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun sem nú er í vinnslu á Alþingi er við- fangsefnið að takast á við fækkun íbúa á einstökum svæðum og ein- hæft atvinnulíf í takt við tækni- breytingar og þróun. Markmiðið er að jafna aðgengi að þjónustu og atvinnu og stuðla að sjálfbærri þróun um allt land. Þá skiptir máli að opinberum aðilum sé falið að skilgreina störf og auglýsa þau án staðsetningar. Það skiptir miklu máli að ríkið hafi forgang í því að flytja verkefni og störf út um landið. Nýlega til- kynnti félags- og jafnréttisráðherra að velferðarráðuneytið hyggist styrkja starfseiningu Vinnumála- stofnunar á Hvammstanga og flytja tvö störf þangað í kjölfar aukinna verkefna Fæðingarorlofssjóðs. Þetta er dæmi um gott fordæmi þar sem störf vegna nýrra verkefna eru flutt út á land til að styrkja þá starfsemi sem fyrir er. Einnig væri hægt að flytja verkefni frá stofn- unum ríkisins og ráðuneyta til að efla opinberar stofnanir á lands- byggðinni. Opinber störf út á land Með samþykkt nýrra laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði var samþykkt bráðabirgðaákvæði sem fól í sér að ráðherra skuli í samstarfi við for- sætisráðherra láta semja aðgerða- áætlun fyrir Stjórnarráðið, þar sem afmarka skyldi stjórnsýsluverk- efni ráðuneyta og undirstofnana þeirra sem talið er ákjósanlegt að flytja til embætta sýslumanna. Við sameiningu sýslumannsembætta um landið var lögð áhersla á að styrkja embættin með því að flytja verkefni til þeirra. Þetta hefur ekki gengið sem skyldi. Það hefur þurft að fara í uppsagnir hjá sýslumanns- embættum um landið og þjónusta útibúa verið minnkuð þvert á lof- orð um eflingu og aukinn styrk. Þetta þarf alls ekki að vera svona, því opinberum störfum er ekki að fækka á landsvísu. Þau eru bara með óeðlilega sam- þjöppunareiginleika og sogast til höfuðborgarsvæðisins. Því fjölgar tómum fasteignum ríkisins um landið sem þarf að greiða af skatta og skyldur og hita upp. Ríkið má ekki vera frumkvöðull í að draga úr litrófi atvinnulífsins um landið og Landsbankinn þarf að standa við sína samfélagsstefnu og styðja við öfluga og blómlega byggð í öllu landinu. Það sem við þurfum er öflug byggðastefna og standa svo við hana. Svo það takist skiptir máli að hafa hana að leiðarljósi í öllum framkvæmdum og fjármála- stefnu ríkisins. Verndum störf á landsbyggðinni Á síðustu vikum og mán-uðum hafa farið fram ákafar umræður á Íslandi um nýj- asta löggjafarpakka Evrópusam- bandsins um orkumál og hvort hann ógni íslenskum orkumarkaði og jafnvel sjálfstæði landsins. Aðilar á Íslandi sem halda því fram að Evrópusambandið vilji þvinga landsmenn til að framselja fullveldi sitt til stofnana ESB hafa haldið þessum orkumálum á lofti, máli sínu til stuðnings. Evrópusambandið er meðvitað um þessar áhyggjur og tekur þær alvarlega, en hvað orkupakkann varðar eru þær algjörlega tilefnis- lausar. Til hagsbóta fyrir Íslendinga Nú, eins og ávallt, er mikilvægast að einblína á staðreyndir. Því miður litast umræðan um ESB oft af mis- skilningi eða jafnvel vísvitandi rangfærslum. Þriðji orkupakkinn svokallaði, sem Íslendingum er skylt að innleiða samkvæmt EES- samningnum, er rökrétt framhald fyrri orkupakkanna tveggja, sem hafa verið innleiddir á Íslandi án vandkvæða. Megintilgangurinn með orku- pakkanum er að veita neytendum ódýra og örugga orku með tilstilli markaðsafla og hann er ekki nokk- ur ógn við framkvæmd íslenskrar orkustefnu. Þar sem Ísland er eyja, einangruð frá öðrum orkumörk- uðum, mun landið njóta víðtækra undanþága frá flestum helstu skyldum sem fylgja nýju löggjöf- inni. Auk þess mun löggjöfin í pakk- anum ekki hafa nein áhrif á frelsi stjórnvalda til að ákvarða orku- samsetningu landsins. Sá réttur er tryggður í stofnsáttmála Evr- ópusambandsins og er hluti af EES-samningnum. Raunar eru bara nokkrar reglur í þriðja orku- pakkanum sem eiga við um Ísland. Þar á meðal eru ákvæði sem varða neytendavernd, aukið gagnsæi samninga og réttinn til að skipta um orkuveitu. Það er því verulega erfitt að skilja hvernig hægt er að halda því fram að þessar reglur skerði frelsi Íslend- inga til að ákvarða samsetningu orkugjafa eða hvernig þær gætu á einhvern hátt verið óhagstæðar fyrir Ísland. Meintar heimildir ACER Eitt af því sem hefur vakið hvað mestar deilur í íslenskri stjórn- málaumræðu er framtíðarhlut- verk samstarfsstofnunar eftir- litsaðila á orkumarkaði, ACER, og sá ótti að Ísland neyðist til að framselja ákvarðanavald og full- veldi til slíkrar Evrópustofnunar. Staðreyndirnar segja þó einnig aðra sögu hvað þetta varðar. Þar sem EES er tveggja stoða kerfi munu þær valdheimildir sem ACER fer með í aðildarríkjum ESB verða á vegum ESA, Eftirlitsstofn- unar EFTA, á Íslandi, en Ísland er eitt aðildarríkja ESA. Innan ESB er helsta hlutverk ACER að fylgj- ast með mörkuðum og beina til- mælum til aðildarríkja og það er aðeins í undantekningartilfellum sem ACER getur beitt valdheimild- um gagnvart eftirlitsstjórnvöldum ESB-ríkja, í málum þar sem eftirlits- stjórnvöldum tveggja aðildarríkja tekst ekki að komast að sameigin- legri niðurstöðu. Ákvörðunum ACER er ekki beint að einkaaðilum, einungis innlendum eftirlitsstjórnvöldum í aðildarríkjum ESB. Stofnunin hefur ekkert ákvörðunarvald yfir innlendum eftirlitsyfirvöldum í ríkjum utan ESB og myndi ekki hafa neinar heimildir hvað varðar leyfisveitingu og stjórnsýslu á Íslandi. Heimildir ACER til að taka bindandi ákvarðanir eru að mestu bundnar við grunnvirki sem ná yfir landamæri og eiga því ekki við á Íslandi á meðan slík grunnvirki eru ekki til staðar. Þar sem ekki er um að ræða nein gagnkvæm tengsl á milli Íslands og ESB er engin þörf á að samræma regluverk Íslands og einhvers annars lands. Jafnvel þótt sæstrengur til Bret- lands verði einhvern tíma að veru- leika myndi það ekki tengja Ísland við ESB-markaðinn þar sem Bret- land gengur úr Evrópusambandinu frá og með mars á næsta ári. Ekkert nýtt varðandi niðurgreiðslur Einnig hefur verið lýst yfir áhyggj- um af því að ESB muni í framtíð- inni geta haft afskipti af stuðningi íslenskra stjórnvalda við tilteknar dreifiveitur. Þriðji pakkinn felur þó ekki í sér neinar nýjar skyldur varðandi niðurgreiðslu á orkugjöf- um. Reglur um opinbera styrki lúta enn ákvæðum um ríkisaðstoð sem tilgreind eru í sérstakri löggjöf sem íslensk stjórnvöld hafa fyrir löngu samþykkt. Merki um náið og gott samband Evrópusambandið fagnar alltaf heilbrigðum skoðanaskiptum um stefnur og lög sambandsins og leggur sig fram við að tryggja að EES-ríki utan ESB, svo sem Ísland, geti sætt sig við reglubreytingar. Það er þess vegna sem Ísland fékk svo margar varanlegar undanþágur frá þriðja orkupakkanum. Það var okkur ánægjuefni að óháður ráðgjafi ferðamála-, iðn- aðar- og nýsköpunarráðherra skyldi komast að þeirri niðurstöðu að Íslendingar þurfi ekki að óttast þessar nýjustu breytingar. Ég vona að þessi greinarskrif geti átt þátt í að hefja opinskáa og heiðar lega umræðu um orku- pakkann á grundvelli fyrirliggjandi staðreynda. Við lítum á innleiðingu nýju orkulöggjafarinnar á Íslandi sem enn eitt merki um að samband Íslands og ESB sé náið og báðum aðilum til góða. Orkupakkinn er engin ógn við Ísland Til að standast skuldbindingar Íslands varðandi útblástur gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030, þarf hreinlega að snar- minnka brennslu á olíu á öllum sviðum. Þó að vegasamgöngur vegi mest í þessari brennslu þá leynast smábrunar víða sem auðvelt er að minnka. Orkuskipti í garðinum eru líklega enn auðveldari en orku- skipti í samgöngum. Nú er vorið komið og margir garðeigendur farnir að gíra sig upp fyrir slátt og klippingar í sumar. Spurningin er hvort slátturinn sé jafn grænn og grasið. Bensínsláttuvél brennir meng- andi og ósjálfbærri olíu sem kostar peninga. Slátturinn veldur einnig miklum hávaða sem pirrað getur nágranna og truflað dýralíf. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að bensín- sláttuvél eyði rúmlega einum lítra af bensíni á klst. Gefum okkur að garðeigendur þurfi að jafnaði að slá garðinn átta sinnum yfir sumarið, hálftíma í senn. Fimmtíu þúsund garðeigendur nota þá, miðað við gefnar forsendur, um 250.000 lítra af olíu á hverju sumri við garðslátt. Þetta skilar um 600 þúsund kg af CO2 upp í lofthjúpinn. Þeir sem slá með slíkum forn- aldar græjum geta því tæplega mont- að sig af kolefnisbindingu trjánna í garðinum. Og þetta er ekki allt, því fæstum tekst að fylla á sláttuvélarn- ar sínar án þess að mengandi og ferskvatnsspillandi bensíndropar leki framhjá. Umhverfisstofnun Bandaríkjanna áætlar að 65 millj- ónir lítra leki árlega framhjá sláttu- vélum í Bandaríkjunum. Ef garðeig- endur vestra eru ekki með einhvern krónískan handskjálfta umfram íslenska garðeigendur, þá myndi slík tala grófreiknast upp á 6 þúsund lítra hér á landi. Auðveld orkuskipti Í dag er á markaðnum mikið fram- boð af topp sláttuvélum, orfum og hekkklippum sem ganga fyrir útblásturslausri og um 75% hljóð- látari raforku. Nú geta klaufar, sem klippa rafmagnssnúruna alltaf í sundur, líka andað léttar því hægt er að fá allar græjur með rafhlöðu sem hægt er að hlaða og skipta út fyrir aðra fullhlaðna. Það eru meira að segja komnir rafhlöðu- drifnir sláttutraktorar á markað fyrir stærri flatir. Ef menn vilja svo vera í sérflokki og slá nágrann- anum við í tæknilausnum, þá er um að gera að fjárfesta í sjálfvirk- um sláttuþjarka sem sér algerlega um sláttinn fyrir þig og hleður sig sjálfur þess á milli. Svo er líka hægt að einfalda þetta bara og nota vélar lausa sláttuvél sem brennir bara kaloríum. Hvernig væri að staldra aðeins við þegar næsta sláttuvél eða orf er keypt og kýla á orkuskipti í garðinum? Sláttuvélar sem ganga fyrir rafmagni eru mun ódýrari í rekstri og oft ódýrari í innkaupum líka. Þær nota innlenda orku sem mengar ekkert og eru þar að auki mun hljóðlátari, sem gerir garð- slátt á laugardagsmorgni mun nágrannavænni. Hættum að nota olíu í garðinum og skiptum yfir í rafmagn. Íslensk raforka er ódýr og græn og því er engin ástæða til að eyða gjaldeyri í garðinum. Skiptu yfir í græna garðyrkju næst þegar þú kaupir sláttugræjur í garðinn. Orkuskipti í garðinum Michael Mann sendiherra ESB á Íslandi Megintilgangurinn með orkupakkanum er að veita neytendum ódýra og örugga orku með tilstilli markaðsafla og hann er ekki nokkur ógn við framkvæmd íslenskrar orkustefnu. Hvernig væri að staldra aðeins við þegar næsta sláttu- vél eða orf er keypt og kýla á orkuskipti í garðinum? Sláttuvélar sem ganga fyrir rafmagni eru mun ódýrari í rekstri og oft ódýrari í inn- kaupum líka. Sigurður Friðleifsson framkvæmda- stjóri Orkuseturs Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknar- flokksins í NV-kjördæmi Þetta þarf alls ekki að vera svona, því opinberum störfum er ekki að fækka á landsvísu. Þau eru bara með óeðlilega samþjöppunar- eiginleika og sogast til höfuð- borgarsvæðisins. 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.