Fréttablaðið - 07.06.2017, Side 28

Fréttablaðið - 07.06.2017, Side 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil- helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Að velja giftingarhring er eitt af hjartfólgnustu augna-blikum lífsins því þá velja hjónaefnin sér hringa sem þau ætla að bera út lífið,“ segir Haukur Valdimarsson, gullsmiður í Carat/ acredo. Haukur starfar við hlið dóttur sinnar, gullsmiðsins Rakelar Mistar, en saman sérhæfa þau sig í trúlofunar- og giftingarhringum og hvers kyns demantaskarti. „Við Rakel höfum yndi af því að vera einn hlekkur í keðju þeirra gleðilegu tímamóta sem hjóna- band er. Ástin svífur yfir vötn- unum og tilhlökkunin leynir sér ekki,“ segir Haukur, en þau Rakel veita persónulega og þægilega þjónustu þar sem hver og einn fær þann tíma sem hann þarf við valið. „Við bjóðum líka upp á ákveðna upplifun og erum með tvær starfsstöðvar þar sem fólk getur látið fara vel um sig og skoðað úrvalið, bæði í tölvum og á staðnum þar sem eru yfir 200 sýnishorn til að skoða og máta,“ útskýrir Haukur. Heillandi heimur hringa Carat var stofnað árið 2000 og rak lengst af verslun í Smáralind. Árið 2015 flutti Carat sig um set yfir í Hátún 6a og hóf um leið sam- starf við þýska skartgripafram- leiðandann acredo sem sérhæfir sig í gimsteinum og stórglæsilegu eðalskarti. „Okkur fannst vanta meiri fjölbreytileika í landslagið,“ segir Haukur. „Með acredo opnaðist risastór gluggi með áður óséðum möguleikum og útfærslum. Á heimasíðu okkar, acredo.is, má sjá stórkostlegt úrval hringa og þar getur fólk fiktað sjálft í forriti til að setja saman draumahringana og valið mismunandi þykktir og breiddir, demanta og liti á gulli, svo sem hvítagull, rauðagull, rósa- gull og platínu.“ Þegar útlit hringanna hefur verið ákveðið í hönnunarforriti acredo fara þeir í pöntunarferli hjá Carat/ acredo og er hver hringur sérsmíð- aður. „Acredo hefur slegið í gegn hjá íslenskum pörum,“ upplýsir Haukur. „Þetta er heillandi heimur að stíga inn í og möguleikarnir endalausir að velja og setja saman útlit hringanna sjálf. Hver einasti hringur er sniðinn eftir óskum hvers og eins, og sannarlega engin lagervara sem er sótt upp í hillu.“ Demantar hæstmóðins Demantar eru hæstmóðins í giftingarhringum nú. „Demantar halda alltaf sínu og fara aldrei úr tísku,“ segir Haukur en níutíu prósent giftingarhringa frá Carat/acredo eru með dem- öntum í hring brúðar. „Oftar en ekki er nú bætt við grennri hring á fingur hennar sem er alsettur demöntum, og nú er líka vinsælt að setja jafnvel þrjá hringa á fingur brúðarinnar.“ Carat/acredo er með allar stærðir eðalsteina og þar á meðal glæsilega litaða demanta. „Þannig eru svartir demantar nú í tísku hjá körlum og koma virki- lega flott út í hring. En þótt dem- antur sé konungur eðalsteinanna er ánægjulegt að segja frá því að verðið er einfaldlega frábært í sam- starfi við acredo,“ segir Haukur. Að velja sér hring á acredo.is er þægilegt. Verð á hringum birtist samhliða hringavali og breyting á verði fylgir jafnóðum og útliti, lögun og efniviði hrings er breytt. „Það er hentugt að geta strax séð kostnaðinn og mikil hagræðing í að geta skoðað úrvalið í ró og næði heima. En hvort sem fólk hefur undirbúið sig heima eða ekki tökum við jafn vel á móti öllum og bjóðum upp á kaffi, sódavatn og jafnvel kampavín ef stemningin er þannig. Það er stór ákvörðun að velja réttu hringana og okkar innlegg í þá fögru minningu er að veita góðan tíma og ómótstæðilegt úrval,“ segir Haukur. Feðginin Haukur og Rakel Mist smíða einnig sína eigin fögru hringa, bæði með klassísku útliti og grófari séríslenskri áferð. Einnig hvers kyns sérsmíði að óskum við- skiptavina. „Ef tilvonandi brúðhjón hafa engan möguleika á að koma til okkar í dagsins önn geta þau pantað tíma til að skoða trúlof- unar- og giftingarhringa utan hefð- bundins opnunartíma. Þá er hægt að panta tíma í gegnum Facebook eða carat@carat.is,“ útskýrir Rakel. Skoðið töfrandi úrval trúlofunar- og giftingarhringa á carat.is og acredo. is. Carat/acredo er í Hátúni 6a. Sími 577 7740. Vefverslun er á carat.is. Verslun og verkstæði Carat/acredo er glæsilegt eins og ómótstæðilegt úrval trúlofunar- og giftingarhringa fyrir ástfangið fólk. MYNDIR/SIGTRYGGUR ARI Glæsileg verslun Carat/acredo er í Hátúni 6a í Reykjavík.Feðginin Rakel og Haukur við vinnu sína á gullsmíðaverkstæðinu. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.