Fréttablaðið - 07.06.2017, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 07.06.2017, Qupperneq 32
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Ný tegund af tísku hefur rutt sér til rúms á síðustu árum. Á ensku kallast hún „modest fashion“, eða „hógvær tíska“ á íslensku. Tískan gengur út á að sýna lítið hold og hefur sterk tengsl við menningu trúarbragða, en tekur á sig ýmsar myndir. Vin- sældir hógværrar tísku hafa aukist verulega síðastliðinn áratug og nú er svo komið að stór tískufyrirtæki og alls kyns tískumerki eru farin að hanna og framleiða föt sem eru sérstaklega hugsuð sem hógvær tíska. Engin ein skilgreining Hógvær tíska hefur enga skýra skil- greiningu. Í kjarnann snýst hún um að hylja líkamann á meðvitaðan hátt eins og hverjum finnst þægi- legt og klæðast víðum, þægilegum fötum en líta glæsilega út á sama tíma. Hver og einn hefur sína eigin skilgreiningu á því hvað er hógvært og sú skilgreining er að miklu leyti byggð á menningar- og trúarlegum bakgrunni. Þeir sem kjósa að klæða sig sam- kvæmt hógværri tísku gera það af ýmsum ástæðum. Ákvörðunin kann að vera tekin vegna trúar, menningar eða bara vegna þess að fólki finnst þetta flott og þægilegt. Nýr neytendahópur Ein af stóru ástæðunum fyrir því að hógvær tíska hefur sótt í sig veðrið er að múslimar á Vesturlöndum eyða mun meiru í tískuvörur og fatnað nú en áður. Það er að hluta vegna þess að margar ungar mús- limakonur hafa mun meira eyðslufé á milli handanna í dag en áður, þar sem þær hafa komið út á vinnu- markaðinn í auknum mæli. Tísku- merkin vilja að sjálfsögðu höfða til þessa stóra nýja neytendahóps. Á sama tíma hefur tískuheimur- inn líka breyst. Nú er fjölbreytni orðin viðurkenndur hluti af tískunni, í stað þess að vera undan- tekningin. Fyrir vikið hafa tísku- fyrirtæki tekið að markaðssetja fjölbreyttari tískuvörur til að höfða til breiðari hóps viðskiptavina. Þó að hógvær tíska njóti mestra vinsælda hjá konum sem aðhyllast Íslam, getur hver sem er tileinkað Hógvær tíska Hógvær tíska á rætur í trúarbrögðum og snýst um að sýna lítið hold og klæða sig þægilega. Hún hefur vaxið hratt á síðustu árum og er orðin áberandi víða. Hógvær tíska er orðin áberandi á alls kyns viðburðum. NORDICPHOTOS/GETTY Ruba Zai með ofurfyrirsætunni Bellu Hadid og tískuhönnuð- inum Alexander Wang. MYND/ INSTAGRAM sér hana. Sumir femínistar eru hrifnir af henni og telja hana vald- eflandi og alls kyns konur hrífast af þessum stíl án þess að þekkja hann sem hógværa tísku. Sterk tengsl við hijab Þar sem hógvær tíska er vinsælust hjá konum sem eru múslimar er hún nátengd tískunni í kringum höfuðklút múslima, sem kallast hijab. En þó að margir tengi þetta saman er hógvær tíska ekki í eðli sínu tíska múslima eða endilega tengd hijab-inu sjálfu. Ruba Zai er af afgönskum upp- runa, hefur yfir milljón fylgjendur á Instagram og hefur tekið þátt í að móta tískuna í kringum hijab. Zai segir að þegar hún byrjaði að tala um tísku og stíl í tengslum við höfuðklútinn hafi enginn í tísku- heiminum haft áhuga á hópnum sem notaði hann og sá hópur hafi að sama skapi ekki tengt við fötin sem komu frá þekktum tísku- merkjum. Alls kyns merki taka þátt Fyrst markaðssettu tískufyrir- tæki hógværa tísku í tengslum við ramadan, aðaltrúarhátíð múslima, en fljótlega fóru framleiðendur að bjóða þessar vörur allan ársins hring og auka úrvalið. Nú er hógvær tíska orðin áberandi á alls kyns tískuhátíðum og viðburðum. Merki eins og H&M, Uniqlo, Tommy Hilfiger, Zara, Nike og jafnvel Dolce & Gabbana eru farin að selja föt í þessum stíl og alls kyns mismunandi hijab-höfuð- klúta. Þannig að hógvær tíska hefur fest sig í sessi og er hijab ekki vandræða- gripur fyrir konur sem vilja tolla í tískunni, heldur mikilvægur hluti af klæðnaðinum. MIÐNÆTUROPNUN Í SMÁRALIND 20% afsláttur* af öllum vörum *ekki af merktri tilboðsvöru FRÍAR SJÓNMÆLINGAR Módel: Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Smart sumarföt, fyrir smart konur Við erum á Facebook Gallabuxur Kr. 11.900.- Str. 34-46 Sídd 70 og 74 cm 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.