Fréttablaðið - 07.06.2017, Side 40
Emil Hallfreðsson lék vel inni á miðsvæðinu hjá íslenska landsliðinu í knattspyrnu
þegar liðið laut í lægra haldi fyrir
Noregi í vináttulandsleik á laugar-
daginn var. Emil fékk nýjan félaga
inn á miðsvæðið, en vegna meiðsla
Arons Einars Gunnarssonar lék
Birkir Bjarnason við hlið hans þar.
„Mér fannst bara gott að spila
með Birki, það er gott að vita af því
að okkar samvinna var fín að mínu
mati og við getum átt þetta kombó
uppi í erminni. Birkir hefur leikið
vel í þessari stöðu með Aston Villa
og mér fannst gott að spila með
honum. Það var ítölsk stemming
yfir þessu og fínt jafnvægi, einn
stutthærður og hinn síðhærður,“
segir Emil í samtali við Fréttablaðið
um samstarf sitt og Birkis.
„Við munum taka það jákvæða
sem við gerðum í leiknum gegn
Noregi inn í næsta leik, en á sama
tíma reyna að laga það sem við
gerðum illa. Við verðum bara að
fækka þeim mistökum við gerðum
þegar til Rússlands kemur og ég
er viss um að það mun gerast. Það
hefur loðað við okkur að gera mis-
tök þegar einbeitingin er ekki alveg
upp á það besta, en það hefur ekki
verið vandamál í mótsleikjum,“
segir Emil.
„Ég held líka að þegar við horfum
á leikinn aftur þá sjáum við að það
voru margir fínir spilkaflar og margt
gott sem við getum tekið úr þessum
leik. Við náðum upp fínu spili inn
á milli og við vorum með leikinn í
okkar höndum þegar um það bil tíu
mínútur voru eftir og leikur okkar
riðlaðist aðeins,“ segir Emil.
„Við náðum að kúpla okkur
aðeins frá fótboltanum í gær. Það er
gott fyrir okkur sem búum erlendis
að fá tíma til þess að að hitta fjöl-
skyldu og vini. Það gefur mér mikið
að eyða tíma með mömmu sem
dæmi. Svo fórum við í golf í gær sem
gaf mér mikið þar sem ég stóð uppi
sem sigurvegari. Nú fer hins vegar
einbeitingin á fullt á Ganaleikinn,
við munum læra heilmikið af þeim
leik og hann mun undirbúa okkur
vel fyrir Nígeríuleikinn. Svo þurfum
við að fínstilla það sem gekk ekki vel
í leiknum á móti Noregi,“ segir Emil
um tíma sinn á Íslandi og komandi
verkefni. – hó
Mér fannst samvinnan ganga vel
FÓTBOLTI Generalprufan fyrir HM í
Rússlandi verður í kvöld þegar Ísland
mætir Gana í vináttulandsleik á
Laugardalsvelli. Þetta er í fyrsta sinn
sem þessar þjóðir mætast á fótbolta-
vellinum.
Ísland tapaði 2-3 fyrir Noregi á
laugardaginn. Það jákvæðasta við
leikinn var innkoma Gylfa Þórs Sig-
urðssonar sem lék í tæpan hálftíma
eftir að hafa verið frá keppni vegna
hnémeiðsla í um þrjá mánuði. Gylfi
leit vel út og skoraði annað mark
Íslands í leiknum.
„Það var mjög gaman að komast
aftur á völlinn, mér leið vel og var
ferskur. Hnéð var fínt og ég var
góður eftir leik,“ sagði Gylfi á blaða-
mannafundi á Laugardalsvelli í gær.
Hann kveðst vera 100% klár en segir
ólíklegt að hann spili allar 90 mínút-
urnar gegn Gana.
Landsliðsþjálfarinn Heimir Hall-
grímsson staðfesti á blaðamanna-
fundinum að Gylfi myndi byrja
leikinn gegn Gana og bera fyrirliða-
bandið í fjarveru Arons Einars Gunn-
arssonar. Bataferli Akureyringsins
gengur þó vel að sögn Heimis.
„Það eru allir klárir nema Aron
sem er samt á réttri leið. Hann er á
betri stað en við bjuggumst við og
verður orðinn klár fyrir leikinn gegn
Argentínu,“ sagði Heimir.
Eyjamaðurinn staðfesti einnig að
Hannes Þór Halldórsson myndi verja
íslenska markið í kvöld. Planið hafi
alltaf verið að láta hann spila báða
leikina fyrir HM en vegna smávægi-
legra meiðsla hafi hann verið hvíldur
gegn Noregi.
Frederik Schram fékk tækifæri í
fjarveru Hannesar. Hann nýtti tæki-
færið ekki nógu vel og gerði slæm
mistök í öðru marki Norðmanna.
Heimir ræddi við Frederik eftir leik-
inn og stappaði í hann stálinu. Hann
segist hafa mikla trú á þessum 23 ára
gamla markverði Roskilde í Dan-
mörku.
„Ég er ofboðslega hrifinn af þess-
um strák. Hann er auðvitað sár að
hafa gert þetta en ef þetta mark hefði
ekki komið hefði hann átt frábæran
leik. Hann greip vel inn í og átti frá-
bærar spyrnur. Líf markvarða hangir
oft á bláþræði, annaðhvort eru þeir
hetjur eða skúrkar. Það er gaman að
sjá hvernig hann meðhöndlar svona.
Þetta er einbeittur og heilbrigður
einstaklingur,“ sagði Heimir.
Aðspurður um muninn á milli
Gana og svo Nígeríu, sem Ísland
mætir í Volgograd 22. júní, sagði
Heimir: „Gana er með fleiri útfærslur
á leik sínum. Liðin eru bæði með
fljóta og vinnusama einstaklinga,
skemmtilegar týpur. Það er margt úr
leiknum gegn Gana sem við getum
nýtt okkur gegn Nígeríu,“ sagði
Heimir.
Íslenska liðið fær frí á morgun og
heldur svo til Rússlands á laugardags-
morgun. ingvithor@frettabladid.is
Gylfi og Hannes byrja í kvöld
Gylfi Þór Sigurðsson verður í byrjunarliði Íslands sem mætir Gana í vináttulandsleik í kvöld. Allir eru klárir
nema Aron Einar Gunnarsson. Þetta er síðasti leikur íslenska liðsins áður en það heldur til Rússlands.
Fjórða heimsókn Afríkuþjóðar til Íslands
Gana er aðeins þriðja Afríkuþjóðin
sem leikur A-landsleik hér á landi.
Leikurinn í kvöld er jafnframt
aðeins fjórði leikur Íslands við
Afríkuþjóð hér á landi.
Ísland 3-0 Nígería,
22. ágúst 1981
Ísland vann öruggan sigur á Níg-
eríu í vináttulandsleik á Laugar-
dalsvelli í ágúst 1981. Íslendingar
komust yfir á 5. mínútu með marki
Skagamannsins Árna Sveinssonar.
Staðan var 1-0 í hálfleik. Á 65.
mínútu bætti Lárus Guðmunds-
son öðru marki við og fyrirliðinn
Marteinn Geirsson gulltryggði svo
sigurinn þegar hann skoraði þriðja
mark Íslands á 73. mínútu.
Ísland 4-1 Suður-Afríka,
17. ágúst 2005
Ísland bar sigurorð af Suður-Afríku,
4-1, í vináttulandsleik á Laugar-
dalsvellinum í ágúst 2005. Grétar
Rafn Steinsson kom Íslendingum
yfir á 25. mínútu með sínu fyrsta
landsliðsmarki en Delron Buckley
jafnaði þremur mínútum síðar.
Arnar Þór Viðarsson kom Íslandi
aftur yfir á 42. mínútu og í seinni
hálfleik bættu Heiðar Helguson
og Veigar Páll Gunnarsson við
mörkum.
Ísland 1-0 Suður-Afríka,
13. október 2009
Ísland og Suður-Afríka mættust
aftur í vináttulandsleik á Laugar-
dalsvelli í október 2009. Aðeins
eitt mark var skorað í leiknum en
það gerði Veigar Páll Gunnarsson í
upphafi seinni hálfleiks. Aron Einar
Gunnarsson, Emil Hallfreðsson,
Rúrik Gíslason og Ragnar Sigurðs-
son voru í byrjunarliðinu og Ólafur
Ingi Skúlason kom inn á sem vara-
maður í seinni hálfleik.
Það var mjög gaman
að komast aftur á
völlinn, mér leið vel og var
ferskur. Hnéð var fínt og ég
var góður eftir leik.
Gylfi Þór Sigurðsson
Það var glatt á hjalla á blaðamannafundi íslenska landsliðsins á Laugardalsvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Emil Hallfreðsson blæs tyggjókúlu á landsliðsæfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
KÖRFUBOLTI Hild ur Björg Kjart-
ans dótt ir, landsliðskona í körfu-
bolta, hef ur ákveðið að söðla um
á spænskri grundu. Hún mun yfir-
gefa Leganés og spila þess í stað
með Celta Vigo á næstu leiktíð, en
liðin leika bæði í spænsku B-deild-
inni. Hún staðfesti þetta í færslu á
Face book-síðu sinni í gær. Þar segir
Hildur Björg: „Það er gott að vera
á Spáni, næsta skref er ákveðið. Er
búin að semja við Celta de Vigo
Baloncesto og er spennt að spila
með þeim næsta tíma bil!“
Hildur Björg, sem er 22 ára
gömul, er uppalin hjá Snæfelli þar
sem hún varð Íslandsmeistari árið
2014. Hún hefur einnig spilað með
University of Texas Rio Grande
Valley í bandaríska háskólabolt-
anum. Hildur samdi við Breiðablik
í upphafi síðasta sumars, en ákvað
svo síðsumars að stökkva til Spánar
og leika með Leganés.
Hild ur var með
11,5 stig og 6,5 frá-
köst að meðaltali
í leik í B-deild-
inni á síðustu leik-
tíð. Hún hitti úr
48 pró sentum
skota sinna, þar
af 40 pró-
sentum
s k o t a
f y r i r
u t a n
þriggja
stiga lín-
una. – hó
Hildur færir sig
um set á Spáni
7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R28 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Björn
Bergmann
Sigurðarson
Aldur:
27
Staða:
Framherji
Félag:
Rostov
Landsleikir:
12/1 mark
9
FÓTBOLTI Nígería, sem verður með
Íslandi í riðli á heimsmeistara-
mótinu í knattspyrnu karla sem
hefst í Rússlandi eftir slétta viku,
laut í lægra haldi fyrir Tékklandi í
vináttulandsleik sem leikinn var í
Austurríki í gær. Þetta var síðasti
leikur nígeríska liðsins fyrir HM, en
liðið tapaði fyrir Englandi í leik lið-
anna um síðustu helgi og þar áður
gerði Nígería jafntefli við Kongó og
laut í gras fyrir Serbíu.
Ísland og Nígería mætast í ann-
arri umferð riðlakeppninnar á
heimsmeistaramótinu föstudag-
inn 22. júní á Volgograd Arena,
en það verður í fyrsta skipti sem
A-landslið þjóðanna mætast í
mótsleik í knattspyrnu karla. Auk
Íslands og Nígeríu eru Argentína og
Króatía í D-riðli keppninnar.
Lars Lagerbäck stýrði svo Nor-
egi til sigurs í fjórða leiknum í
röð þegar liðið hafði betur gegn
Panama sem fer líkt og Ísland á HM
í fyrsta skipti í sögunni að þessu
sinni. Það var Joshua King sem
skoraði sigurmark Norðmanna sem
hafa lagt Austurríki og Albaníu auk
íslenska liðsins og Panama að velli
á sigurgöngu sinni. – hó
Lærisveinar
Lars áfram á
sigurbraut