Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 51

Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 51
Reykjavík Hallarmúla 2 563 6900 | ureyri Ak Undirhlíð 2 430 6900 True 4K UHD HDR 120Hz 3D Stuðningur Fótbolta Stilling Allt að 300” mynd VERÐ ÁÐ UR 249.990 KYNNING AR TILBOÐ SUMAR SMELLIR HM SKJÁVARPINN BENQ TK800 TRUE 4K HDR SKJÁVARPI 199.990 NÝR SUMARBÆKLINGUR FULLUR AF SPENNANDI GRÆJUM ÁFRAM ÍSLAND 55” 4K UHD HDR 79.990 LED MINI Risasmár HD skjávarpi 19.990 NÝR BÆKLING UR Óþægileg ást ★★ ★★★ Höfundur: Elena Ferrante Þýðandi: Brynja Cortes Andrésdóttir Fjöldi síðna: 190 bls. Útgefandi: Bjartur 2018 Óþægileg ást er fyrsta skáldsaga Elenu Ferrante, en hún varð síðar heimsfræg fyrir hinn magnaða Napólí-fjórleik sinn. Í þessari fyrstu skáldsögu sinni, sem kom út árið 1992, slær Ferrante tón sem hún hefur haldið sig við allt frá því. Í Napólí-fjórleik sínum lýsti hún flóknum samskiptum vinkvenna á sérlega sannfærandi og minnisstæð- an hátt jafnframt því sem hún veitti sýn inn í samfélag þar sem karlar hafa öll völd og hika ekki við að beita andlegu og líkamlegu ofbeldi til að ná sínu fram. Sögusviðið þar var borgin Napólí með allar sínar skuggahliðar. Sögusvið þess- arar fyrstu skáld- sögu Ferrante er einmitt Napólí og þar er fjallað um flókið sam- band tveggja kvenna, mæðgn- anna Amaliu og dótturinnar Deliu. Amalia d r u k k n a r o g í kjölfarið fer Delia til æskustöðvanna Napólí og leitar svara við krefjandi spurn- ingum um erfitt samband sitt við hina dularfullu móður sína. Þessar konur voru hluti af hvor annarri, en um leið algjörar andstæður, og náðu aldrei fyllilega að tengjast. Nú þegar móðirin er látin spyr Delia sig hvernig kona móðir hennar hafi verið og hvað hafi gerst á síðustu dögum hennar. Um leið rifjar hún upp æsku sína og horfist í augu við óþægilega atburði úr fortíðinni, þar sem ofbeldi, lygar og blekkingar komu við sögu. Sögusviðið er Napólí, sem lýst er sem fremur nöturlegum stað. Þar hafa karlmenn öll ráð í hendi sér. Þeir eru að stærstum hluta fautar, sem eiga erfitt með að sýna einlægni og eitra andrúmsloftið með yfirgangi sínum. Þegar þeim mislíkar láta þeir hnefana ráða. Í magnaðasta kafla bókarinnar leggur faðir Deliu hendur á hina fullorðnu dóttur sína og kallar hana ýmsum ónefnum. Þessi kafli er gott dæmi um þann mikla kraft sem Ferrante setur í skrif sín og getur, eins og í þessu tilviki, virkað eins og kjafts- högg á lesandann. Óþægileg ást er kraftmikil saga sögð af miklu öryggi, vel fléttuð og dularfull. Á köflum minnir hún jafnvel á glæpasögu, enda er engan veginn ljóst hvernig dauða móður- innar bar að. Hinu mjög svo flókna sambandi dóttur og móður er lýst á eftirminnilegan hátt og nokkuð sérstakan, en á köflum er eins og Delia renni saman við móður sína og breytist jafnvel í hana. Frásögnin er óreiðukennd og nútíð og for- tíð blandast saman. Það er óvissa í loftinu og kuldi og grimmd svífa yfir vötnum. Ferrante er gríðarlega góður sögu- maður sem heillar lesandann sem gleymir því stundum hversu mis- kunnarlaus höfundur hún raun- verulega er. Hún fegrar ekki mann- lífið heldur opinberar grimmdina og óréttlætið sem þar þrífst. Aðal- persónur hennar eru konur sem hafa verið sviknar, blekktar og beitt- ar ofbeldi. Söguheimur Ferrante er ekki fallegur en sannur, um leið ein- kennilega heillandi því lesandinn er límdur við síðurnar. Vert er síðan að þakka fyrir góða þýðingu Brynju Cortes Andrésdóttur. Kolbrún Bergþórsdóttir NIÐURSTAÐA: Það er engan byrjenda- brag að finna á þessari fyrstu skáldsögu Ferrante. Hinir fjölmörgu aðdáendur hennar eiga hiklaust að lesa þessa fyrstu bók hennar, þeir verða ekki sviknir. Kraftur og grimmd Birgit skapar hárfína blöndu augnablika. MYND/THORSTEN JANDER Íslenska kvikmyndatökukonan Birgit Guðjónsdóttir hlýtur heiðurs- verðlaun Þýsku kvikmyndaverð- launanna (Deutsche Kamerapreis) í ár, en þau eru veitt fyrir framúrskar- andi feril viðkomandi listamanns. Í umsögn dómnefndar segir að öll verk sem hún hefur fengist við beri merki næmis hennar og innsæis og sé sama hvort hún fáist við leiknar myndir eða heimildarmyndir fyrir sjónvarp eða bíóhús. „Töfrar hennar liggja ekki bara í því að taka fal- legar myndir heldur að skapa hár- fína blöndu augnablika, afstöðu, sjónarhorna og hreyfingar mynda- vélarinnar,“ bætir dómnefndin við. Birgit fæddist á Íslandi árið 1962. Hún hefur á ferli sínum tekið þátt í gerð fjölmargra mynda fyrir bíó og sjónvarp. Auk þessa að sinna kvikmyndagerð hefur hún um ára- bil kennt við kvikmyndaháskóla í Baden-Württemberg og Babels- berg. Hún er félagi í Þýsku og Evr- ópsku kvikmyndaakademíunni og átti frumkvæði að stofnun samtaka þýskumælandi kvikmyndatöku- kvenna. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Köln 7. júlí. – kb Birgit fær þýsk heiðursverðlaun M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 39F I M M T U D A G U R 7 . J Ú N Í 2 0 1 8

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.