Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Qupperneq 31
SAKAMÁL 316. desember 2019 Ástamál og auður Ástæður ódæðisins voru ekki flóknar. Þar lék stórt hlutverk ósætti Suzönu og foreldra hennar vegna kærastans Daniels og kannski ekki síður auður foreldra Suzönu, sem var töluverður. Til að byrja með fundu for- eldrar Suzönu, sambandi henn- ar og Daniels ekkert til foráttu. Það breyttist þó þegar Manfred og Marisia uppgötvuðu að Daniel neytti marijúana nánast daglega og ekki bætti úr skák að hann kom úr lægri stétt og var afar frábitinn hvoru tveggja námi og vinnu. Í júlí, árið 2002, stakk Suzane upp á því að foreldrar hennar keyptu handa henni íbúð svo hún og Daniel gætu búið saman. Við það var ekki komandi og sagði faðir hennar að hún gæti gert það sem henni sýndist, en það yrði þá fyrir hennar eigið fé. Fé og frelsi Þar stóð sennilega hnífurinn í kúnni, því auður foreldra Suzönu var metinn á 17 milljónir Banda- ríkjadala, sem rynnu til Suzönu ef foreldrar hennar tækju upp á því að deyja. Saksóknarinn, Roberto Tardelli, sagði að Suzane vildi „komast yfir fé og eignir foreldra sinna“ og að hún hefði „viljað frelsi og sjálfstæði án þess að hafa fyrir því“. Margt fleira var sagt og Daniel fullyrti að Manfred hefði níðst líkamlega á Suzönu, en sjálf vís- aði hún fullyrðingu hans á bug. Einnig var því haldið fram að for- eldrar Suzönu hefðu glímt við áfengisfíkn, en ekkert fannst sem studdi þá fullyrðingu. Ásakanir á báða bóga Réttarhöldin yfir Suzönu, Daniel og Christian hófust 5. júní, 2006, en var síðan frestað til 17. júlí. Ákæran hljóðaði upp á morð og Suzane skellti skuldinni á Daniel, en hann og Christian sögðu að þeir hefðu framið ódæðið að hennar áeggjan. Saksóknarinn sagði að Suzane væri „heilinn“ að baki glæpnum og krafðist 50 ára dóms fyrir hvert og eitt þeirra. Sagði hann að Suzane væri „persónugerving illu ljóskunnar.“ Þann 22. júlí, 2006, fékk Suzane 40 ára fangelsisdóm. Daniel fékk einnig 40 ár en Christian fékk 38 ára dóm. n „Bræðurnir börðu Manfred og Marisiu í höfuðið með járnröri og notuðu síðan handklæði til að kyrkja þau Heilinn á bak við ódæðið Suzane naut liðsinnis kærastans. Á gleðistund Fljótt skipast veður í lofti í samskiptum fólks. Þremenningarnir F.v. Christian, Daniel og Suzane. Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.