Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Page 33
PRESSAN 336. desember 2019 tannlæknaskýrslum þegar önnur voru rannsökuð. Moran segir að Gacy hafi oft haldið stór sam- kvæmi heima hjá sér, oft hafi ver- ið rúmlega 200 manns þar, aðal- lega ungir piltar. „Hann var síðasti maður- inn sem þig grunaði að væri raðmorðingi,“ segir Moran. Við yfirheyrslur sagði Gacy að hann hefði oft lokkað piltana til sín með því að bjóða þeim 50 dollara fyrir að hjálpa honum við „vísindarannsóknir“ eða með því að þeir gætu fengið vinnu hjá verktakafyrirtæki hans. Stund- um gaf hann sig út fyrir að vera lögreglumaður sem þyrfti að ræða alvarlega við þá. Um leið og piltarnir komu heim til hans fór í hann í Pogo-búninginn, gaf þeim áfengi að drekka og róandi lyf. Því næst notaði hann það sem hann kallaði „ handjárnabragðið“ en í því fólst að fórnarlömbin féllust á að hann setti handjárn á þau. Hann sagði að þegar pyntingun- um og nauðgunum var lokið hefði hann bundið enda á allt með því að kyrkja piltana. „Trúðar geta komist upp með morð“ Það liðu sex ár áður en sjónir lögreglunnar fóru að beinast að Gacy og það var árvökulli móður að þakka. Þann 11. desember 1978 hvarf Robert Piest, 15 ára, skyndilega. Móðir hans, Eliza- beth Piest, sagði lögreglunni að hann hefði ætlað að hitta Gacy til að ræða við hann um hugsanlegt starf, vellaunað. Lögreglan komst þá að því að Gacy hafði hlotið fyrrgreindan dóm fyrir kynferðis- ofbeldi og byrjaði að fylgjast með honum. Þegar lögreglumaður, í dulargervi, ræddi við hann um starf sagði Gacy: „Trúðar geta komist upp með morð.“ Tíu dögum síðar knúði lög- reglan dyra hjá honum og fram- kvæmdi húsleit, en fann ekkert. Gacy var margoft tekinn til yfir- heyrslu og lögreglumenn komu reglulega heim til hans til að reyna að fá svör við hver hefði numið fjölda pilta í Chicago á brott. Þegar lögreglan gerði aftur húsleit heima hjá honum fann einn lögreglumannanna, Bob Schultz, vonda lykt koma frá viftu inni á baðherbergi. Gacy var þá í yfirheyrslu á lögreglustöðinni en um leið voru lögreglumenn að átta sig á hvað var falið í húsinu. Leiðarlok Þann 22. desember 1978 sá Gacy að nú var hann kominn í blind- götu og að hann gæti ekki slopp- ið frá þessu. Í yfirheyrslum ját- aði hann allt og lýsti hvernig hann hefði árum saman ekið um og leitað að ungum piltum sem hann sagði stunda „vændi“ og vera „lygara“. Mörg fórnarlamba- nna fann hann á strætisvagna- stöðvum. Hann lofaði að gefa þeim áfengi, eiturlyf og að þeir fengju rúm til að sofa í. Því næst nauðgaði hann þeim, pyntaði og myrti. „Gacy var illmennska holdi klædd. Hann var bara vondur, vondur maður,“ sagði einn lög- reglumannanna um hann. Gacy teiknaði upp hvar hann hafði komið líkum fórnarlamba sinna fyrir og játaði að hafa myrt 30 manns síðan 1972. „Hann gerði uppdrátt; hvar öll líkin voru grafin í kjallaranum. Þegar hann nálgaðist lík númer 24, 25 og 26 hugsaði ég bara: „Þessi maður er klikkaður,“ sagði Phil Bettiker, sem yfirheyrði Gacy, í samtali við Chicago Tribune. Gacy sagði lögreglumönnun- um að þegar ekki var lengur pláss fyrir lík í kjallaranum hefði hann byrjað að henda þeim í Des Plaines-ána. Lík Roberts Piest var eitt þeirra. Ekki er vitað með vissu hversu marga Gacy myrti en hann neitaði að upplýsa það. „Þið verðið sjálfir að finna út úr því,“ sagði hann í yfirheyrslu. „Kiss my ass“ Í febrúar 1980 hófust réttarhöld yfir Gacy. Hann játaði morðin en krafðist þess að verða úrskurð- aður veikur á geði og dæmdur til vistunar á réttargeðdeild. Ekki var orðið við þeirri kröfu hans og fékk hann 12 dauða- dóma og 21 lífstíðarfangelsis- dóm. Þetta er þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp yfir raðmorðingja. Hús hans var jafnað við jörðu. Gacy byrjaði að mála í fang- elsinu, mörg verkanna voru af Pogo, og voru málverk hans sýnd í Chicago og Boston. Sum þeirra seldust fyrir háar fjárhæðir. Gacy sat í 14 ár á dauðadeild í Menard Correctional Center en hann var tekinn af lífi 10. maí 1994 með eitursprautu. Síðasta máltíð hans var fata full af djúpsteikt- um kjúklingalærum, jarðarber, franskar og sykurlaus kóladrykk- ur. Vitni að aftökunni segja að hinstu orð hans hafi verið: „Kiss my ass.“ n „Gacy var illmennska holdi klædd. Hann var bara vondur, vondur maður. Safnari Gacy safnaði listaverkum með trúðum. Grafin upp Íbúð Gacy innihélt dimm leyndarmál. Nánast óteljandi Yfirlitsmynd yfir fórnarlömb Gacy. Á sama stað Lík drengjanna voru geymd í einni og sömu hvelfingunni meðan á rannsókn málsins stóð. Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.