Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Síða 48
6. desember 2019 49. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Þetta er spurningin um bakarann eða smiðinn! Gefðu gjöf frá frægustu hönnuðum heims Epal / Harpa / Skeifan 6 / Kringlan / Laugavegur 70 / 5687733 / epal@epal.is / www.epal.is F yrirsætan og leik- og söngkonan Halla Koppel, sem Íslendingar þekkja eflaust betur undir föðurnafninu Vilhjálmsdóttir, á von á sínu þriðja barni með eigin- manni sínum, Harry Koppel. Halla og Harry eiga von á stúlku í þetta sinn en fyrir eiga þau Louisu, fædda í sept- ember 2015, og Harry Þór, fæddan í júní árið 2017. Fjölskyldan er búsett á Englandi en Halla og Harry gengu í það heilaga árið 2014. Harry er kólumb- ískur en alinn að miklu leyti upp í Bretlandi og er því bæði ensku- og spænskumælandi. Börn- in eru því fullfær í ýmsum tungumálum en Halla passar að tala ávallt íslensku við þau. Halla nýtur sín í móðurhlutverkinu eins og skein í gegn í viðtali við Vísi árið 2017. Í því viðtali sagðist hún taka uppeldishlutverkið alvarlega. „Ég vil bara að þau séu sterk, góð og fyndin. Þau eru bæði mjög viljasterk og kraftmikil svo það er mikilvægt að stýra því í rétta átt, en ég vil kenna þeim að vera sjálfsöruggir og skemmtilegir einstaklingar sem láta gott af sér leiða. Það skiptir mig máli að vera sterk kvenfyrirmynd og sýna þeim að mamma og pabbi séu að mörgu leyti sama hlut- verkið, við fylgjum bæði okkar draumum, erum bæði fyrirvinna og önnumst börnin eins jafnt og færi gefst á,“ sagði Halla. n Fjölgar í fjölskyldunni Komin á fast K læðskerinn og kjóla- meistarinn Selma Ragnarsdóttir er búin að skrá sig í samband á Facebook með bakaranum og tónlistarmanninum Jóni Birni Ríkharðssyni. Selma er vel þekkt í sínu fagi og hefur með- al annars töfrað fram glæsi- lega búninga fyrir Pál Óskar. Jón, sem er betur þekktur sem Jónbi, er bakari hjá Brauð og co og lemur húðir í Brain Police. Smiðsþokki S jónvarpsstjörnunni Berg steini Sig urðssyni er margt til lista lagt. Hann var valinn einn af kynþokkafyllsta sjónvarpsfólk- inu árið 2017 og ekki minnkar kynþokkinn við nýjasta ævin- týri Bergsteins. Landsmenn þekkja hann sem umsjónar- mann Menningarinnar á RÚV en nú hefur hann lokið fyrstu önninni í húsasmíði í kvöld- skóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Bergsteinn birtir afrakstur annarinnar á Face- book, forláta tröppu sem er nánast óaðfinnanleg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.