Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Page 6
6 6. septemberFRÉTTIR Anna Hulda berst fyrir bróður sinn n Maður með skert jafnvægisskyn vistaður á annarri hæð í lyftulausu húsi n Hætt að telja heimsóknir á sjúkrahúsið n Algjört úrræðaleysi Þ roskahamlaður og floga­ veikur maður hefur búið á sambýli í fjögur ár við al­ gjörlega óviðunandi að­ stæður. Systir mannsins, Anna Hulda Ólafsdóttir, segist hafa miklar áhyggjur af öryggi bróður síns, Þórs Ólafssonar, en hann er með skert jafnvægisskyn og notar göngugrind sér til stuðnings. Íbúðin er á annarri hæð í lyftu­ lausu húsnæði og því á Þór í mikl­ um erfiðleikum með að komast upp og niður stigana. „Þetta átti að verða tímabundið húsnæði og Þór var strax settur á biðlista eftir íbúð með því aðgengi sem hann þarfnast,“ segir Anna Hulda í samtali við blaðakonu og held­ ur áfram. „Síðan þá hefur honum verið synjað síendurtekið af út­ hlutunarnefnd velferðarsviðs. Við skiljum ekki hvað veldur en það er ljóst að þessu verður að breyta. Nú á einum mánuði hefur hann þrisvar þurft að leita sér aðstoðar á spítala, en í þessari viku féll hann í stiganum og fótbrotnaði. Þar að auki hefur hann dottið tvisvar fyrir utan hjá sér og þurft að láta sauma og líma sig saman. Hann hefur dottið svo oft á þessu ári að ég er fyrir löngu búin að missa töluna. Tvisvar sinnum blæddi inn á heila og þurfti hann í kjölfarið innlögn á spítala í einhverja daga.“ Þungbær dauðsföll Þór fæddist árið 1970, heilbrigður og flottur strákur, en fékk heilahimnubólgu áður en hann komst heim af sjúkrahúsinu. „Mamma og pabbi þurftu að ganga í gegnum mjög erfiða tíma, en þegar ljóst var að íslensku læknarnir gátu ekki hjálpað Þór fór mamma með hann til Dan­ merkur þar sem hann gekkst undir frekari rannsóknir. Niður­ stöðurnar voru engu að síður þær sömu og mömmu tjáð að hún hefði komið of seint með barnið svo hægt væri að koma í veg fyrir heilaskemmdir. Þór hafði meðal annars hlotið ventil í höfuðið sem orsakar skert jafn­ vægisskyn og fullyrtu læknar að hann myndi aldrei geta hjólað eða skíðað. Það segir mikið um hans baráttuhug að hann hefur afrek­ að hvort tveggja þótt hann geti það ekki í dag. Hann gefst nefni­ lega ekki upp á því sem hann hef­ ur ákveðið. Þór er mikill dýravinur og til margra ára var hundurinn Caspar hans besti vinur. Saman brölluðu þeir margt sniðugt og það reyndist honum mjög erfitt þegar hundur­ inn kvaddi þessa veröld. Hann átti líka einstakt samband við nöfnu mína, móðurömmu sína, en hún lést árið 2017. Hann heimsótti hana daglega öll þau ár sem þau áttu saman en hann og mamma voru sömuleiðis afar náin. Hún dó árið 2010 og það má segja að þessi þrjú dauðsföll hafi reynt mikið á hann. Eftir að mamma dó gerðum við pabbi okkar besta til að finna gott sambýli fyrir hann en ekkert gerðist þrátt fyrir þrýsting frá okk­ ur á hverjum einasta mánuði í nokkur ár. Það var ekki fyrr en pabbi fékk hjartaáfall og þurfti að fara í uppskurð að Þór fékk loksins íbúðina við Ránargötu, þar sem hann er núna en það er hugsað sem áfangaheimili, alls ekki fyrir fólk að dvelja langdvölum.“ Hefur hrakað mikið „Umsókn hans um annað úr­ ræði hefur því legið í þjónustu­ miðstöðinni síðan árið 2015 án þess að nokkuð sé gert. Á þessum tíma hefur honum hrakað mikið enda er aðbúnaðurinn alls ekki viðunandi. Aðgengi að salerni er til dæmis mjög þröngt og hann getur illa komið sér sjálfur fram úr rúminu og ljóst sé að hann þurfi sjúkrarúm. Það kæmist þó aldrei fyrir í þessu litla rými. Það er því margt annað en bara stig­ inn sem er að valda honum erfið­ leikum en ég fæ illt í magann að hugsa um hann fara upp og nið­ ur þessar tröppur. Hann er ekki bara að detta af því hann býr á annarri hæð, en sú staðreynd ger­ ir allt engu að síður enn erfiðara. Ástæðan sem okkur er gefin fyrir úrræðaleysi er sú að ekkert hús­ næði sé til staðar. Staðreyndin er engu að síður sú að hann þarf að geta fengið aðstoð allan sólar­ hringinn, bæði ef hann dettur og liggur einhvers staðar ósjálfbjarga, en einnig til að aðstoða hann við svo margar aðrar grunnþarfir. Það er ljóst að þessu þarf að breyta og við erum hvergi nærri hætt að berjast fyrir bróður minn.“ Meðfylgjandi myndir eru allar mjög nýlegar og með því að deila þeim vill Anna Hulda benda á alvarleika málsins. n Íris Hauksdóttir iris@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.