Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Qupperneq 12
12 FÓKUS - VIÐTAL 6. september Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt S aga Ýr Nazari var nýskriðin á kynþroskaskeiðið þegar hún byrjaði að drekka áfengi. Nokkrum árum síð- ar tóku eiturlyf við og fyrr en varði lá leiðin hratt niður á við. Stuttu áður en Saga varð nítján ára ákvað hún að fara í meðferð. Hún var þá heimilislaus, búin að lenda í alls kyns hremmingum og leið eins og hún væri einskis virði. Í enda þessa mánaðar fagnar Saga tveggja ára edrúafmæli sínu og er þakklát fyrir það litla í lífinu. Hún er stolt af íslensku þjóðinni og hvernig hún tekst á við fíknivand- ann og er jafnframt stolt af því að geta verið fyrir mynd þeirra sem þrá vímulaust líf. „Þetta þróaðist þannig hjá mér að ég byrjaði tiltölulega ung og áfengi var fyrsti vímugjafinn minn. Það sem ég held að ég og allir fíkl- ar eða alkóhólistar eigum sam- eiginlegt er að ég varð háð því að komast í hugbreytandi ástand. Það skipti engu máli hvort það var kannabis, áfengi eða eitthvað annað – bara að aftengjast aðeins. Fá frelsi frá daglegu lífi. Neyslu- saga hjá öllum er mismunandi en hjá mér þá byrjaði þetta með áfenginu. Þetta þróaðist rosalega hratt hjá mér. Ég dáðist strax að þessu kæruleysi. Í byrjun fannst mér ég geta verið ég sjálf undir áhrifum. Ég var minna feimin, ég var fyndnari, félagslyndari. Um leið og rann af mér daginn eftir hugsaði ég: Hvenær getum við gert þetta næst? Ég greip öll tækifæri til að drekka aftur, ég drakk mikið og helst í „blackout“. Mér fannst það geggjað. Ef ég ældi þá ældi ég og hélt áfram. Mér fannst allt í kring- um þetta mjög aðlaðandi,“ segir Saga. Þegar leiðin lá í menntaskóla byrjaði hún að neyta fíkniefna. Fyrst var um helgarneyslu að ræða en samhliða henni byrjaði hún að reykja kannabis á virkum dögum, því það var „viðurkennt“ af jafn- öldrum hennar. Fyrst um sinn dró hún sig hins vegar stundum í hlé og tók sér pásu frá vímuefnum – þegar henni fannst hún missa stjórnina á neyslunni. „Ég dró mig til hliðar ef ég gerði eitthvað óvenju stjórnlaust og tók eftir því að ég var farin að brjóta einhver prinsipp sem ég ætlaði mér aldrei að brjóta. Mörkin hjá sjálfri mér færðust alltaf lengra og lengra í burtu og ég byrjaði að brjóta alls konar persónulegar reglur og gildi sem ég var með. Það var hins vegar aldrei tímaspurs- mál hvort ég myndi byrja aftur, heldur hvenær. Ég var bara háð því að finna fyrir þessari aftengingu.“ Alltaf ófullnægð Saga hafði aldrei fengið fræðslu um einkenni fíknar og alkóhól- isma, heldur eingöngu afleiðingar þess. Hún telur þann skort á fræðslu hafa leikið hlutverk í því að hún hafði ekki þekkingu til að tak- ast á við hann – að taka í taumana. „Í mínu tilviki varð neyslan verri og verri. Ég náði kannski að draga mig í hlé í smá tíma en þegar ég dró mig í hlé, og mér finnst það einkenna alkóhólista sem hafa ekki fengið fræðslu á sínum sjúk- dómi, þá var ég ófullnægð. Ég varð alkóhólisti á öðrum sviðum í stað- inn. Ég varð öfgasjúk í vinnu, ég fór í skóla, ég var í þrjá klukkutíma í ræktinni á dag og ég misnotaði ljósabekki. Ég var alltaf að reyna að laga mig með veraldlegum hlut- um því ég var ófullnægð. Ég var að reyna að sækjast í heilbrigða, veraldlega hluti sem áttu að fylla upp í eitthvað sem annars áfengi og vímuefni hefðu átt að fylla upp í. Ég var alveg jafn óhamingjusöm þá og þegar ég var í neyslu. Ég held að það hafi „mindfuckað“ mig mest á þessum tíma því ég skildi ekki að ég væri að taka ákvörðun um að vera edrú og gera allt sem ég hélt að manneskja gerði til að öðlast hamingju og flæði í lífinu, en ég var samt ófullnægð.“ Hent út Saga trúir að fíkn og alkóhólismi sé fjölskyldusjúkdómur og segir að sjúkdómurinn sé áberandi í henn- ar fjölskyldu, þótt foreldrar henn- ar séu ekki alkóhólistar. Hún segir flesta, ef ekki alla, fíkla finna botn- inn á einhverjum tímapunkti. Hún sjálf fann botninn á götunni. „Áður en ég vissi af gat mamma mín ekki meir, henti mér út og klippti á naflastrenginn. Ég er henni mjög þakklát fyrir það. Ég veit að maður getur ekki ætlast til að allir foreldrar geri það og ég veit Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Ein get ég þetta, en alein get ég þetta ekki Saga náði botninum á götunni eftir að mamma hennar henti henni út - Fagnar tveggja ára edrúafmæli - „Ábyrgðin liggur alltaf hjá mér”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.