Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Qupperneq 21
KYNNINGARBLAÐ
Plastlaus september
6. september 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Tökum höndum saman í þágu
umhverfisins
Í Rekstrarlandi leggjum við okkur fram um að draga úr plastnotk-un. Við trúum því að umhverfi og
þægindi eigi samleið – og gott verð
auðvitað. Því er stór hluti af úrvali
okkar í einnota vörum niðurbrjótan-
legur eða endurvinnanlegur á ein-
hvern hátt.
Við skynjum mikinn áhuga hjá
einstaklingum sem og fyrirtækjum á því
að huga að náttúrunni og við leggjum
sömuleiðis ríka áherslu á sjálfbærni og
um leið að draga úr kolefnisspori fyrir-
tækisins eftir föngum.
Umhverfisvænu, einnota Abena
vörurnar sem fást hjá okkur eru fram-
leiddar úr niðurbrjótanlegum efnum.
Fallega hannaðar gæðavörur sem
eru flottar til að bera fram í og neyta
matar af, s.s. diskar, glös, bakkar,
hnífapör – úr niðurbrjótanlegum
efnum. Abena vörurnar henta bæði
fyrir veitingahús og aðra staði þar
sem þörf er á en einnig líka heimili og
einstaklinga ef tilefni er til.
Á síðari árum hefur fjölbreytni
í einnota vörum aukist mjög og
náttúruleg efni eins og pálmablöð,
tréspænir og vörur framleiddar úr
lífefnum eins og PLA eru smátt og
smátt að taka fram úr vörum fram-
leiddum úr plasti. Samt ber þó að
athuga að plast er endurvinnanlegt
efni og ef það er flokkað rétt (með
plasti til endurvinnslu) kemst það í
endurvinnsluhringrás og getur þar
með öðlast hlutverk á ný. Eins má
líka iðulega nota plastvörurnar oftar
en einu sinni þrátt fyrir að þær séu
flokkaðar sem einnota.
Hér má sjá hluta af
þeim Abena vörum
sem við bjóðum í
Rekstrarlandi:
Diskar og skálar úr
pressuðum pálmablöðum,
mega fara í moltu.
Bátslaga öskjur úr tré-
spæni, mega fara í moltu
Diskar og öskjur úr
sykurreyr, 100%
niðurbrjótanlegt.
Svanmerkt kaffimál úr
pappa niðurbrjótanlegt.Glös úr sterkju (lífplasi).
Smart hnífapör úr birki, þægileg,
niðurbrjótanleg og má setja í moltu.