Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Side 38
38 FÓKUS - VIÐTAL 6. september J akob Birgisson hefur slegið í gegn sem uppistandari og nú er ár síðan hann flutti sína fyrstu sýningu. Í október mun hann endurtaka leikinn og hann hefur fengið til liðs við sig grínist- ann Jóhann Alfreð, sem gert hefur garðinn frægan með uppistands- hópnum Mið-Íslandi. Jakob er jafnframt yngsti handritshöfundur áramótaskaupsins 2019 og segir það mikil forréttindi að vinna með reynslumiklu fólki. Jakob hefur á stuttum tíma getið sér gott orð sem uppi- standari en hann þreytti frumraun sína fyrir sléttu ári þegar hann troðfyllti veitingastaðinn Hard Rock átta kvöld í röð ásamt því að sýna bæði á Akureyri og Sel- fossi. Á þessum tíma stóð Jakob á krossgötum í lífinu, hann var tvítugur, nýbyrjaður í háskóla og foreldra hans fluttir úr landi. Sýninguna byggði hann á hvers- dagslegum áhyggjum, almennu dægurmálaþrasi Íslendinga og áleitnum spurningum, sem hon- um þótti nauðsynlegt að fá svör við. Jakob segir hugmyndir sín- ar að gríni koma alls staðar að. Í október heldur hann sitt annað uppistand í Tjarnarbíói með Jó- hanni Alfreð og nefnist sýningin Allt í gangi — Jakob Birgis og Jó- hann Alfreð. „Ég var búinn að gæla lengi við hugmyndina um að fara út í uppistand, eiginlega svo lengi að vinir mínir voru hætt- ir að taka mark á mér,“ segir Jakob í samtali við blaðakonu. „Það var svo í afmæli móður minnar sem ég sló fyrst til og flutti fimmtán mínútur. Nokkrum mánuðum síðar var sýningin mín klár. Það var frekar notaleg upplifun að troða upp í fimmtugsafmæli móð- ur minnar með fjölskyldu og vin- um, en það gaf mér aukinn kraft og hvatningu.“ Framdi gríngjörning í algjörri uppreisn Áður hafði Jakob tekið þátt í undankeppni Skrekks en hann segir Hagaskóla vera frábrugðinn öðrum grunnskólum, því hann heldur innanskólaforkeppnina Hroll og fer það atriði sem sigur ber úr býtum áfram í aðalkeppn- ina, Skrekk. „Þessi undankeppni skartar dómnefnd enda Hagaskóli þekktur fyrir að leggja allt í sölurn- ar þegar kemur að svona löguðu. Oftast eru þetta dans- og söngat- riði, en í einhverri uppreisn hjá mér ákvað ég að halda einhvers konar gríngjörning, sem vann að lokum. Ég fór því fyrir hönd skólans áfram í Skrekk og í kjölfarið fór boltinn aðeins að rúlla. Ég var fenginn sem kynnir í söngkeppnum á vegum Mennta- skólans í Reykjavík, að grunn- skólagöngu minni lokinni. Eftir útskrift tók ég svo önn í stjórn- málafræði og eftir áramótin bloss- aði upp í mér einhver rómantík um að læra íslensku við Háskól- ann, en ég hætti fljótlega í háskól- anum.“ Jakob segist vera ágætur náms- maður en að hefðbundið skólalíf henti honum ekki endilega. „Mér hefur alltaf leiðst í skóla og það var svolítið uppsprettan að gríninu. Ég bullaði töluvert meira en að læra. Ég var oft í einhverri uppreisn og leitaði stöðugt leiða til að grín- ast, svo ég þyrfti ekki að læra. Með tímanum fór ég svo að einbeita mér æ meira að bröndurunum og þróa með mér leið til að semja stutta og hnitmiðaða brandara sem hentuðu á sviði. Málið er, að það grínast allir, við mætum í matarboð og grínumst en fæstir hugsa þó hvernig hægt sé að út- færa brandarana á sviði. Í dag er ég mjög fastur í þessum hugsunar- hætti, sem getur verið algjör böl. Ég reyni þó að láta þetta ekki trufla mig of mikið því það getur verið skrítið að vera staddur einhvers staðar og byrja að skrifa eitthvað hjá sér. En ég er í stanslausri leit.“ Hugmyndirnar kvikna oftast í sturtu Það var í ágúst á síðasta ári sem Jakob hellti sér á fullu í undirbún- ingsvinnu fyrstu sýningar sínar en hann fékk vin sinn, Ísak Hinriksson, með sér í verkefnið. „Þrátt fyrir að Ísak sé aðeins einu ári eldri en ég hefur hann gríðarlega reynslu. Hann hefur meðal annars unnið með Mið-Íslandi sem tæknimaður og komið að hliðum uppistands- ins sem ég þekkti lítið sem ekkert. Hann hefur starfað við að keyra leiksýningar og leikstýrt og skrifað þrjár stuttmyndir. Hann hefur því ekki bara listræna sýn heldur líka reynslu í að halda utan um allt. Og það er meira en að segja það, að bóka sal, setja sýningu í sölu Óttast ekki að verða aflífaður af virkum í athugasemdum – Mikið af bulli í höfðinu á mér Grínið getur reynst algjört böl Íris Hauksdóttir iris@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.