Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Blaðsíða 42
42 FÓKUS 6. september 4. JANÚAR Aðdáendur söngkonunnar urðu vægast sagt fúlir þegar hún tilkynnti að hún væri að taka sér hlé frá bransanum um óákveðinn tíma og setti jafnframt tónleikaröð sína í Las Vegas á ís. Gerði hún þetta vegna veikinda föður síns, Jamie Spears, en ristill hans sprakk og hann þurfti að leggj- ast inn á sjúkrahús. Britney baðst afsökunar á að hafa valdið aðdáendum sínum vonbrigðum í færslu á Instagram. „Ég ætla að setja fókus og orku í að hugsa um fjölskyldu mína. Við eigum í sérstöku sambandi og mig langar að vera með fjölskyldunni á þessum tíma eins og hún hefur alltaf verið til staðar fyrir mig,“ sagði hún þá. 4. mars Andrew Wallet, sem var fjárhaldsmaður Britney, ásamt föður hennar, sagði upp stöðu sinni sem varð til þess að Jamie Spears stóð einn uppi sem fjárhalds- maður dóttur sinnar. 3. apríl Britney opnar sig á Instagram um mikilvægi þess að hugsa um sjálfan sig og strax í kjölfarið fylgja fregnir um að hún hafi verið lögð inn á geðheilbrigðisstofnun. Skrifaðist það á andlegt álag vegna veikinda föður hennar. 11. apríl Britney tók sér frí frá geðheilbrigðismeðferðinni til að fara í hárlitun og slaka á með kærasta sínum, Sam Asghari. 16. apríl Hreyfingin #FreeBritney fer af stað með látum eftir að nafn- laus einstaklingur, sem sagðist vera aðstoðarmaður lög- manns, steig fram í hlaðvarpi og sagði að Britney hefði verið lögð nauðug inn á geðdeild og ekki í byrjun apríl heldur um miðjan janúar. Hún á því að hafa dvalið þar í fjóra mánuði, þvert gegn hennar vilja. Sá nafnlausi sagðist hafa unnið fyrir fjölskyldu Britney og orðið vitni að því að faðir Britney hefði hótað að banna henni að koma fram á reglulegum sýning- um í Las Vegas, nema hún tæki lyfin sín. Þegar hún fór ekki að þessum fyrirmælum gerði hann alvöru úr hótunum sín- um. Hann hafi látið Britney segja að hún væri að hætta í Las Vegas vegna veikinda hans. 16.–17. apríl Móðir Britney, Lynne, gaf þessum orðróm byr undir báða vængi með því að setja „like“ við athugasemdir á Instagram; athugasemdir á borð við „Ég vona að þú sért að styðja við Britney í að fá lögræðið aftur,“ eða „Ég vona að þinn veiki fyrrverandi sé ekki að halda dóttur ykkar nauðugri einhvers staðar.“ Lynne skrifaði svo undarlega færslu á Instagram þar sem hún sagði: „Þegar stríðsmenn guðs falla á kné, þá er baráttan ekki búin. Hún er bara rétt að byrja.“ Þessa færslu túlkuðu margir sem staðfestingu á því að Brit- ney væri í vanda og að móðir hennar væri að reyna að hjálpa henni. 22. apríl #FreeBritney-hreyfingunni óx ásmegin og aðdáendur söfn- uðust saman í Vestur-Hollywood til að krefjast aðgerða frá yfirvöldum. 23. apríl Britney blés á kjaftasögurnar í myndbandi á Instagram og ítrekaði að hún væri í fínu standi. „Fjölskylda mín hefur verið undir miklu stressi og þjáðst af miklum kvíða undanfarið, þannig að ég þurfti tíma til að takast á við það. En ekki hafa áhyggj- ur, ég sný aftur fljótt,“ sagði hún. „Mig langaði að segja hæ því allt er orðið stjórnlaust!!! Vá!!!“ og bætti við: „Fjölskyldu minni og teymi hefur verið hótað lífláti.“ Í færslunni minntist hún á fyrrverandi umboðsmann sinn og sagði hann dreifa lygum um hana í tölvu- pósti. „Ekki trúa öllu sem þið lesið og heyrið. Þessir lygapóstar úti um allt voru skrifaðir af Sam Lutfi fyrir mörgum árum. Ég skrifaði þá ekki. Hann var að þykj- ast vera ég og hafði samskipti við teymið mitt.“ Sam Lutfi hefur staðfastlega neitað þessu. 25. apríl Britney losnaði út af geðheilbrigðisstofnuninni og sneri aft- ur heim. Föður hennar líður betur og Britney er sögð vinna ötullega að því að koma lífinu í samt horf. 6. maí E! News vitnar í dómskjöl þar sem kemur fram að móð- ir Britney krefjist þess að fá upplýsingar um fjárhags- stöðu hennar. Lynne hefur hins vegar ekki sóst form- lega eftir því að verða fjárhaldsmaður dóttur sinnar. 7. maí Heimildarmaður E! News segir að Lynne hafi flogið til Los Angeles ásamt hinni dóttur sinni, Jamie Lynne, til að heimsækja Britney því þær hafi áhyggjur af henni. Heim- ildarmaðurinn sagði að Lynne „væri í miklu uppnámi yfir ástandinu sem Britney væri í og að henni liði sem hún gæti enga hjálp henni veitt.“ 8. maí Britney fékk bráðabirgða nálgunarbann á fyrrnefnd- an Sam Lufti sem kveðjur á um að hann megi ekki koma nálægt henni, foreldrum hennar eða sonum hennar, Sean, 13 ára, og Jayden, 12 ára. Var nálgunar- bannið gefið út vegna staðhæfinga söngkonunnar um fyrrnefnda tölvupósta. Lögfræðingur Sams sagð- ist vonsvikinn yfir þessari niðurstöðu, en að málið yrði rekið fyrir dómstólum þegar að nálgunarbannið rynni úr gildi. 10. maí Britney mætti í réttarsal í Los Angeles ásamt foreldrum sín- um og lögfræðingi til að ræða um hver ætti að verða fjár- haldsmaður hennar. Dómarinn ákvað að matsmaður þyrfti að gera ítarlega úttekt á aðstæðum söngkonunnar. 15. maí Larry Rudolph, umboðsmaður söngkonunnar til margra ára, talar við TMZ um þá stöðu sem upp er komin og hléið sem Britney gerði á tónleikaröð sinni í Las Vegas. Hann sagði að hún hefði tekið sér pásu „því lyfin hennar hættu að virka og hún var miður sín vegna veikinda föður síns.“ Bætti hann jafnframt við að hann vildi ekki að hún ynni aftur fyrr en hún væri tilbúin, bæði andlega og líkamlega. 22. maí E! News birti dómskjöl sem sýndu að Jamie, faðir Britney, færi fram á að útvíkka heimild sína sem fjárhaldsmaður. Vildi hann hafa stjórn á fjármálum dóttur sinnar ekki aðeins í Kaliforníu, heldur einnig í Flórída, Louisiana og Havaí. 3. september Britney og fyrrverandi eiginmaður hennar, Kevin Federline, náðu samkomulagi varðandi forræði yfir drengjunum þeirra tveimur. Kevin fékk sjötíu pró- sent forræði en Britney þrjátíu prósent. Nokkrum klukkutímum eftir að það fréttist birtust fregnir af því að Kevin væri búinn að kæra föður Britney til lög- reglu fyrir að ráðast á eldri son þeirra, Sean. Jafnframt er nálgunarbann virkt sem bannar föður Britney að hitta afadrengina sína, Sean og Jayden. Söngkonan Britney Spears státar af ansi glæsilegum ferli í skemmtanabransanum, en hins vegar hefur einkalíf hennar verið ansi stormasamt. Nú stendur Britney enn á ný í auga stormsins og hefur þetta ár leikið hana grátt. Leikur þar forræðisdeila við fyrrverandi eiginmann og veikindi föður stórt hlutverk. ÚPS, „Mig langaði að segja hæ því allt er orðið stjórnlaust!!! Vá!!! hún gerði það aftur Frábær ferill Britney hefur átt marga slagarana í gegnum tíðina. Mynd: Getty Images Þegar allt lék í lyndi Britney og Kevin voru gift á árunum 2004 til 2007. Mynd: Getty Images Mæðgur í stuði Sjaldséð mynd af mæðgunum saman í búðarferð. Mynd: Getty Images Tvenna Feðginin saman. Mynd: Instagram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.