Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Qupperneq 46
46 MATUR 6. september
Eitthvað fyrir sinn snúð
n Nú nálgast haustið óðfluga og þá er gott að baka
n Hér eru snúðar á þrjá vegu sem gætu komið á óvart
Deig – Hráefni:
n 3/4 bolli mjólk
n 1 bréf þurrger
n 1/4 bolli sykur
n 1 tsk. salt
n 6 msk. smjör
n 2 stór egg
n 3 bollar hveiti
n 80 g hvítt súkkulaði (saxað)
Fylling – Hráefni:
n 100 g hvítt súkkulaði
n 150 g mjúkur rjómaostur
n 1/2 bolli sykur
n 2 msk. vanillusykur
n 2 tsk. kanill
Aðferð:
Byrjum á deiginu. Setjið mjólk og smjör í skál og
bræðið í örbylgjuofni. Leyfið blöndunni að kólna
að stofuhita og blandið síðan þurrgeri, sykri og salti
saman við. Leyfið þessu að standa í 5–10 mínútur.
Blandið síðan eggjum og hveiti saman við og hnoð-
ið vel. Bætið síðan söxuðu súkkulaðinu út í með sleif
eða sleikju. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið
deiginu að hefast í eina klukkustund. Fletjið það síð-
an út og fyllið.
Nú er það fyllingin. Brytjið hvíta súkkulaðið í
skál og hitið í örbylgjuofni í 30 sekúndur í senn þar
til allt er bráðnað. Munið að hræra vel í súkkulað-
inu eftir hvert holl. Blandið rjómaostinum saman
við súkkulaðið. Blandið síðan sykri, vanillusykri og
kanil vel saman í annarri skál. Smyrjið rjómaosta-
blöndunni yfir útflatt deigið og sáldrið síðan sykrin-
um yfir. Rúllið deiginu upp og skerið í snúða. Ég fékk
um það bil ellefu ágætlega stóra snúða úr þessari
uppskrift. Smyrjið ágætlega stórt eldfast mót og raðið
snúðunum í það. Setjið viskastykki yfir þá og leyfið
þeim að hefast aftur á meðan þið hitið ofninn. Hitið
ofninn í 170°C. Skellið snúðunum inn í ofn og bakið í
25 til 30 mínútur.
Snúðar – Hráefni:
n 1 bréf þurrger
n 1 bolli volg mjólk
n 4 msk. sykur
n 3 3/4 bolli hveiti
n 1 tsk. salt
n 2 egg (við stofuhita)
n 1 tsk. vanilludropar
n 90 g mjúkt smjör
Fylling – Hráefni:
n 1 pakki Royal-karamellubúðingur (Blandaður og
kældur samkvæmt leiðbeiningum á pakka)
n 3/4 bolli púðursykur
n 1 egg
n 2 msk. vatn
Aðferð:
Byrjum á deiginu. Blandið saman þurrgeri, mjólk og
sykri saman í skál og leyfið þessu að hvíla í 5–10 mín-
útur, eða þar til blandan freyðir. Blandið hveiti og
salti vel saman í skál og bætið því næst gerblöndunni,
eggjum og vanilludropum saman við. Blandið saman
í um 10 mínútur.
Blandið síðan smjörinu saman við og blandið
saman í um 5 mínútur. Hnoðið deigið lítið eitt á borð-
fleti sem er dustaður með hveiti. Smyrjið smá olíu í
skál, setjið deigið í skálina og hyljið með viskastykki.
Leyfið deiginu að hefast á volgum stað í um klukku-
tíma.
Þá er það fyllingin. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið
ágætlega stórt eldfast mót eða klæðið ofnplötu með
smjörpappír. Fletjið deigið út og smyrjið búðingn-
um á það. Ég notaði ekki allan búðinginn, bara um
3/4 af blöndunni. Sáldrið síðan púðursykrinum yfir
búðinginn. Rúllið deiginu út og skerið í snúða, um
það bil 10 til 12 stykki. Raðið snúðunum í mótið eða
á plötuna, setjið viskastykki yfir þá og leyfið að hef-
ast í 5–10 mínútur í viðbót. Blandið saman eggi og
vatni og penslið snúðana með eggjablöndunni. Bakið
snúðana í 35 til 45 mínútur og fylgist vel með þeim.
Leyfið þeim síðan að kólna aðeins áður en þið rífið
þá í ykkur.
Deig – Hráefni:
n 1 pakki þurrger
n 1 1/2 bolli volgt vatn
n 2 msk. sykur
n 1 tsk. salt
n 6 msk. smjör (brætt)
n 1 egg
n 2 tsk. vanillusykur
n 4 bollar hveiti
Fylling – Hráefni:
n 1 bolli krækiber
n 1/2 bolli sulta
n 1 msk. rifinn sítrónubörkur
n 2 msk. smjör (brætt)
n handfylli möndlur
Aðferð:
Byrjum á deiginu. Blandið geri, vatni, sykri og salti
saman í skál og látið bíða í 10 mínútur, eða þar til
blandan er byrjuð að freyða og tútna út. Blandið
smjöri, eggi og vanillusykri síðan vel saman við.
Blandið hveitinu smátt og smátt saman við, þar til
deigið er hætt að vera klístrað. Kannski þurfið þið
minna en fjóra bolla og kannski örlítið meira, eins og
um það bil hálfan bolla í viðbót. Setjið deigið til hlið-
ar á hlýjan stað, setjið hreint viskastykki yfir það og
leyfið því að hvíla í um 10 mínútur.
Svo er það fyllingin. Blandið öllum hráefnum
nema smjörinu og möndlunum vel saman í skál.
Dustið smá hveiti á vinnuflötinn ykkar og fletjið deig-
ið út í ferhyrning. Smyrjið smjörinu jafnt yfir deigið
og dreifið síðan fyllingunni yfir. Rúllið deiginu upp
og skerið í litla snúða. Takið til ofnskúffu og smyrj-
ið botninn með smjöri. Raðið snúðunum á plötuna.
Setjið viskastykki yfir snúðana og leyfið þeim að hef-
ast á hlýjum stað í um 40 mínútur. Stillið ofninn á
175°C og stráið möndlubitum yfir snúðana. Bakið í
25–30 mínútur, eða þar til snúðarnir hafa tekið fal-
legan, gylltan lit.
Dásamlegir snúðar
með hvítu súkkulaði
og rjómaosti
Yndislegir snúðar
fylltir með
karamellubúðingi
Snúðar með
krækiberjum
og sultu
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is