Fréttablaðið - 13.05.2016, Síða 10
umhverfismál „Versta mögu-
lega staða er sú að ríkisvaldið komi
ekki til hjálpar. Þá sjáum við ekki
annað en að það þurfi að takmarka
stórkostlega fjölda ferðamanna
á svæðinu,“ segir Alfreð Schiöth,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftir-
lits Norðurlands eystra (HNE).
Heilbrigðisnefnd HNE ályktaði
vegna mengunarvanda Mývatns á
þriðjudag. Þar er eindregið mælst til
að stjórnvöld veiti Skútustaðahreppi
nú þegar fjárhagslegan stuðning
vegna kostnaðar við byggingu á
hreinsivirkjum fyrir skólp í Skútu-
staðahreppi, og vísar til kröfu um
ítarlega skólphreinsun skv. reglugerð
um verndun Mývatns og Laxár.
„Um er að ræða mjög kostnaðar-
samar og íþyngjandi kröfur fyrir fjár-
hag lítils sveitarfélags og jafnframt
felast miklir hagsmunir og ábyrgð í
því að vernda Mývatn sem náttúru-
perlu á heimsvísu. Heilbrigðisnefnd
minnir á mikilvægi þess að hraða
úrbótum í fráveitumálum í Skútu-
staðahreppi eins og kostur er, þannig
að ekki þurfi að koma til þess að tak-
marka fjölda ferðamanna á vatna-
svæði Mývatns,“ segir í bókuninni.
Alfreð segir að eins og staðan er
nú sé aðeins eitt hótel á svæðinu
með fullkomna hreinsun og mæti
kröfum – Hótel Laxá, nýjasta hót-
elið við vatnið. „Öll önnur hótel
og önnur gistiaðstaða uppfyllir
ekki þessi skilyrði, og að óbreyttu
verður ekki annað séð en þau verði
að leggja niður starfsemi sína. Gróft
sagt er bara eitt löglegt gistiúrræði í
Mývatnssveit,“ segir Alfreð og bætir
við að miklar vonir séu bundnar við
að eftir að samráðshópur Sigrúnar
Magnúsdóttur umhverfisráðherra
skilar af sér 17. júní, þá „í beinu fram-
haldi af því sjái ríkisvaldið að sér og
komi með myndarlegum hætti að
borðinu“.
Hér vísar Alfreð til orða umhverfis-
Án hjálpar þarf að fækka ferðamönnum
Verði ekki ráðist í endurbætur á fráveitu þéttbýlis við Mývatn verður að takmarka aðgengi ferðamanna að svæðinu. Um þetta er að
tefla komi stjórnvöld Mývetningum ekki til aðstoðar með fjárhagslegum stuðningi. Eitt hótel í Mývatnssveit stenst kröfur um fráveitu.
Mývatnssveit er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins og svæðið því undir miklu álagi. Fréttablaðið/VilhelM
Uppi á borði um árabil
Fráveitumál í Mývatnssveit og
ofauðgunarástand í Mývatni hefur
verið á dagskrá HNE um árabil. Í
fundargerð heilbrigðisnefndar HNE
frá 7. maí 2014 er að finna ályktun
sem er að stórum hluta sú sama og
birtist á þriðjudag. Var hún skrifuð
eftir málþing um þann vanda sem
við er að glíma, en áður en óhemju
magn blábaktería mældist í Mývatni
tvö síðastliðin sumur, þar sem
niðurstöður mælinga sýndu tólffalt
það magn sem talið er óhóflega
mikið í leiðbeiningum Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar (WHO).
„Í erindi Árna Einarssonar líf-
fræðings kom fram að mjög stór
breyting hefur orðið í Mývatni
undanfarin ár; þörungamotta á
botni vatnsins er algerlega horfin;
líklega vegna næringarefnameng-
unar af mannavöldum. Ástæða
þessa er líklega að það vantar birtu
í vatnið; bakteríur í vatninu grugga
það og skyggja þannig á botninn […]
er nauðsynlegt að byggja vönduð
hreinsivirki fyrir skólp fyrir þéttbýlið
í Reykjahlíð, Voga og Skútustaði og
víðar þar sem byggð er þétt á vatna-
svæði Mývatns.“
Gróft sagt er bara
eitt löglegt gisti
úrræði í Mývatnssveit.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
ráðherra á Alþingi í vikunni þar sem
Sigrún tilkynnti um viðbrögð stjórn-
valda við þeim djúpstæða vanda sem
kominn er upp við Mývatn – en á sér
alllanga sögu eins og Árni Einarsson,
forstöðumaður Náttúrurannsókna-
stöðvarinnar við Mývatn, hefur
skýrt.
Á þinginu kom fram þverpóli-
tískur vilji til þess að stjórnvöld
brygðust tafarlaust við, og sú krafa
að tafarlaust kæmi til fjárveiting til
handa Skútustaðahreppi til að hefja
umbætur á fráveitumálum sveitar-
félagsins – einum af þeim þáttum
sem mannshöndin getur sannar-
lega haft áhrif á í hinu flókna sam-
spili sem sambúð manns og náttúru
er við Mývatn.
Bretland David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, boðar alþjóð-
legt samstarf gegn spillingu, með
það meginmarkmið að ná aftur fé
úr skattaskjólum.
Á leiðtogafundi í London, sem
hann boðaði til í gær, sagði hann
að Bretland myndi gera erlendum
fyrirtækjum, sem eiga eignir á Bret-
landi, skylt að gera opinberlega
grein fyrir eignunum.
Fleiri lönd hafa boðið sams konar
aðgerðir, þar á meðal Frakkland,
Holland, Afganistan og Nígería.
Bandaríkin hafa þó ekki viljað vera
með.
„Lykillinn er að auka gagnsæið,“
sagði Cameron í opnunarræðu sinni
á leiðtogafundinum. Hann sagði
spillingu vera „krabbamein í innsta
kjarna svo margra þeirra vandamála
sem við þurfum að takast á við í
heiminum“. Baráttan gegn spill-
ingu væri ekki síst nauðsynleg til
að ráðast gegn öfgafólki, sem þrífst
í skjóli hennar.
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tók í sama streng og
sagði spillingu kynda undir glæpum
og hryðjuverkum.
„Spillingin er augljóslega jafn
mikill óvinur okkar, vegna þess að
hún eyðileggur heilu þjóðríkin ekki
síður en sumir þeirra öfgamanna
sem við erum að berjast við.“
Meðal þátttakenda voru bæði
Ahshraf Ghani, forseti Afganistans,
og Muhammed Buhari, forseti Níg-
eríu. Cameron heyrðist fyrr í vik-
unni segja við Elísabetu drottningu
að þessi tvö lönd væru líklega þau
spilltustu í heimi.
Hvorki Ghani né Buhari létu þó
þessi orðs Camerons á sig fá, heldur
gengust fúsir við því að spilling
þrifist í löndum sínum. Þeir segjast
báðir ætla að vera áfram virkir þátt-
töku í baráttunni gegn þeirri spill-
ingu.
„Við þurfum að hafa hugrekki til
að nefna vandamálið á nafn,“ sagði
Ghani um spillinguna í Afganistan.
Ef menn væru stöðugt í afneitun eða
kenndu hver öðrum um, þá þokað-
ist ekkert.
Buhari krefst síðan að öllum þeim
miklu fjármunum, sem stolið hafi
verið frá Nígeríu, verði skilað. - gb
Líkir spillingu við krabbamein
Kópavogur Starfsfólk grunnskóla í
Kópavogi fær sérstaka fræðslu næsta
vetur um málefni hinsegin fólks. Bæj-
arráð samþykkti tillögu þessa efnis í
síðustu viku.
„Í fræðslunni verði lögð áhersla
á hvað felst í því að vera hinsegin
manneskja, hinsegin hugtök, helstu
baráttumál hinsegin fólks og hvernig
hver og einn geti lagt sitt af mörkum
til að auka skilning á málefnum hin-
segin fólks í samfélaginu,“ segir í til-
lögunni sem samþykkt var.
„Starfsfólkið þarf að vera með-
vitað um áhrif eigin orðræðu. Auk
þess hjálpar slík fræðsla starfsfólki
að ræða þessi málefni við nemendur,
hafa þekkingu á hvernig bregðast
skuli við og geta rætt um málefnið af
þekkingu og virðingu,“ segir jafnframt
í tillögunni.
Þá var samþykkt að gerð verði
áætlun um hinsegin fræðslu í aðal-
námskrá grunnskóla Kópavogs. Í
námskránni þurfi „að koma skýrt
fram að skólinn sinni þeirri skyldu
sinni að í allra umræðu og kennslu sé
tekið tillit til fjölbreytileika,“ eins og
segir í tillögunni. - gar
Kópavogur með hinsegin
fræðslu í aðalnámskrá
hinsegin dagar, sem fara fram árlega, hafa orðið til þess að vekja athygli á rétt-
indum fólks, ekki síst samkynhneigðra. Fréttablaðið/VilhelM
David Cameron, forsætisráðherra bretlands, ásamt Muhammed buhari, forseta
Nígeríu. Fréttablaðið/ePa
Versta mögulega
staða er sú að
ríkisvaldið komi ekki til
hjálpar. Þá sjáum við ekki
annað en að það þurfi að
takmarka stórkostlega fjölda
ferðamanna á svæðinu.
Alfreð Schiöth, framkvæmdastjóri HNE
Spillingin er augljós
lega jafn mikill
óvinur okkar, vegna þess að
hún eyðileggur heilu þjóð
ríkin ekki síður en sumir
þeirra öfgamanna sem við
erum að berjast við.
John Kerry, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna
Starfsfólkið þarf að vera
meðvitað um áhrif eigin
orðræðu. Auk þess hjálpar
slík fræðsla starfsfólki að
ræða þessi málefni við
nemendur.
1 3 . m a í 2 0 1 6 f Ö s t u d a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð