Fréttablaðið - 13.05.2016, Síða 19
Ég man eftir ákveðnu atviki í mótmælunum 2009. Ég var staddur í tiltölulega fámennum
en háværum mótmælendahópi. Þetta
var á Austurvelli seinnipart dags, það
voru líklega ekki nema 200-300 manns
þarna. Hópurinn beindi hrópum
sínum að Alþingishúsinu. „Vanhæf
ríkisstjórn!“
Skyndilega opnuðust dyrnar að
Dómkirkjunni. Eldri maður í jakka-
fötum steig út. Þó hann væri tugum
metra frá mér þá skynjaði ég skilning
og samkennd í fasi hans. Hann talaði
ekki hátt en fékk samt háværan mót-
mælendahópinn til að hlusta:
„Gott fólk. Þið beinið hrópum
ykkar að röngu húsi. Þingið er ekki að
störfum í dag og hér í Dómkirkjunni
fer fram jarðarför. Mér þætti vænt um
ef þið mynduð fara eitthvert annað.“
Skilvirkur múgur
Hann hafði lög að mæla. Til hvers að
hrópa vanhæf ríkisstjórn að húsi þar
sem enga ríkisstjórn var að finna? Það
heyrðist kliður. Múgurinn þurfti að
melta þessar nýju upplýsingar í mínútu
eða svo. Hvert átti þá að fara? Skyndi-
lega reis einhver upp úr þvögunni. Í
minningunni leit hann út eins og Moe,
barþjónninn í Simpsons.
„Þetta er rétt. Ekki viljum við trufla
jarðarför. Förum að Stjórnarráðinu!“
sagði hann og gaf snögga en hvassa
bendingu.
Þá gerðist eitthvað rosalegt. Múgur-
inn, í heild sinni, hlýddi og færði sig.
Ég var þarna í miðri þvögunni og fann
að ég hafði enga sjálfstæða hugsun. Ég
sveif bara áfram í þyrpingunni eins og
mý í stórum sveip. Þetta var unaðsleg
tilfinning. Þetta er smá spotti að fara
fyrir 300 manna hóp, upp Austur-
strætið yfir Lækjargötuna og að túninu
við Stjórnarráðshúsið. Ég er enn að
hugsa hvernig þetta hefur litið út séð úr
lofti? Ég er reyndar með tilgátu.
Ég spilaði mikið tölvuleik sem heitir
Sim City 2000 þegar ég var yngri. Þetta
var vinsælasti hermileikur sinnar kyn-
slóðar. Markmiðið var að stjórna og
byggja upp heila borg. Ef maður tók
rangar ákvarðanir gat það leitt til þess
að fólkið í borginni manns fór að mót-
mæla á götum úti. Mótmælendurnir
voru eins og lítil einangruð þyrping
sem liðaðist eftir götunum í fullkomnu
kassalega mengi. Nákvæmlega þannig
held ég að þetta hafi litið út. Mér leið
eins og ég væri lítið meira en forrit-
unarskipun í tölvuleik þar sem ég leið
áfram í skýinu. Hversu vel það fékk
mér til að líða er svo efni í heimspeki-
legri athuganir um hver sé grundvöllur
hamingjunnar.
„Hann er að flýja“
Þegar að Stjórnarráðshúsinu var
komið hlupu nokkrir mótmælendur úr
hópnum og börðu á dyrnar sem snúa á
móti Lækjargötu. Enginn kom til dyra.
Þá heyrðist kallað ofan úr brekkunni:
„Hann er að flýja út um bakdyrnar!“
og var átt við Geir Haarde, þáverandi
forsætisráðherra.
Skyndilega sá hópurinn svartan
ráðherrabíl stefna út af bílastæðinu við
aftanvert húsið. Flugnagerið dreifði úr
sér. Við hlupum upp brekkuna. Það var
smá kaos. Fólk hafði komið sér fyrir við
útkeyrslu bílastæðisins þar sem það
meinaði ráðherranum útgöngu. Þetta
reyndist sögufrægt því það var þarna
sem náðust fréttamyndir af mótmæl-
endum, þar á meðal Hallgrími Helga-
syni rithöfundi, að berja ráðherra-
bílinn að utan. Ekki ætla ég að dæma.
Sjálfur var ég orðinn svo æstur þarna
að ef ég hefði verið kominn nær hefði
ég mögulega farið úr að ofan og mjakað
sjálfum mér eftir bílnum og öskrað
Clash-texta í gegnum framrúðuna. Ég
verð því að segja að ég hef ávallt haft
fullan skilning á stundaræsingi rithöf-
undarins.
Stöldrum aðeins við. Ég rifja upp
þessa sögu því á þessari stundu fann ég
hversu stutt er í kvikuna í þessu sam-
félagi okkar, og hvað það er – þrátt fyrir
allt – kómískt.
Gamaldags skrípó
Æi, er ekki bara fjandi gott að búa í
samfélagi þar sem allt getur gerst?
Þar sem augnablik breyta þjóðfélags-
stefnum, þar sem múgurinn er kvikur
sem mófugl, þar sem grínisti varð
borgarstjóri og dýralæknir forsætis-
ráðherra og alltaf eitthvað nýtt í hverri
viku?
Hvar nema í teiknimynd þarf ráð-
herra í fullkominni nauðvörn að
útskýra fyrir fólki að konan hans
sé ekki á leiðinni út í geim? Aðeins
sleggja úr tré, risastór kúla og tungan
út hefði túlkað fall æðsta ráðamanns
þjóðarinnar á kómískari hátt. Þetta
var eins og skrípó af gamla skólanum,
það vantaði bara bojojojojojong hljóð
og forsætisráðherrann dúandi upp og
niður í formi harmonikku og „that’s
all folks“ skrifað yfir til að fullkomna
fléttuna. Og talandi um harmonikkur.
Forsetinn að hætta, hætta við að hætta
og hætta við að hætta við að hætta.
Verður uppklappslag á þessu nikku-
balli?
Yndislegir tímar
Svo eru það allar hinar týpurnar.
Guðni Th. í hlutverki skelegga vitr-
ingsins sem var kvaddur til að útskýra
fléttuna en lendir svo í dauðafæri á að
erfa konungsdæmið (það hlýtur að
vera plottið í einhverju Grimms-ævin-
týrinu), Andri Snær með sína Palli var
einn í heiminum skandinavísku sæta-
brauðs-ásjónu og svo að lokum Davíð
Oddsson sem ég er ekki enn búinn
að gera upp við mig hvort hafi minnt
meira á Mr. Burns eða Hans Moleman
þegar hann parkeraði Land Cruis-
ernum sínum í Skaftahlíðinni og steig
inn á sjónarsviðið eftir sjö ára hlé.
Og við? Við erum múgurinn góði
sem pendúlumst til og frá í skoðana-
könnunum og svífum um eins og
mýstrókur. Og það er yndislegt – ég
segi þetta af einlægni og endurtek -
yndislegt að fá að vera hluti af þessu;
hluti af samfélagi þar sem allir þekkja
alla, allt er hægt og allt getur gerst.
Vorið ilmar, himininn er teiknimynda-
blár, sykurpúðalegir skýjabólstrar svífa
yfir. Það er nýr þáttur í hverri viku og
við erum að lifa hann.
Springfield
Bergur Ebbi
Hvar nema í
teiknimynd þarf ráðherra í
fullkominni nauðvörn að
útskýra fyrir fólki að konan hans
sé ekki á leiðinni út í geim?
Aðeins sleggja úr tré, risastór
kúla og tungan út hefði túlkað
fall æðsta ráðamanns þjóðar-
innar á kómískari hátt.
Aðalfundur Haga hf. 3. júní 2016
Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn
3. júní 2016 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica,
Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu
endurskoðanda, lagður fram til samÞykktar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu
2015/16.
4. Ákvörðun um Þóknun til stjórnarmanna.
5. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
6. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
7. Ákvörðun um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum.
8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem
löglega eru upp borin.
Ítarlegri upplýsingar um tillögur stjórnar, ársreikning og önnur gögn, ásamt
upplýsingum um póstatkvæðagreiðslu, rétt hluthafa til að bera fram tillögur og
framboð til stjórnar er að finna á vefsíðu félagsins,
http://www.hagar.is/hluthafaupplysingar/adalfundur-/
Stjórn félagsins vill einnig árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn,
Þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga og
annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða
einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.
Stjórn Haga hf.
Í lok árs 2014 lét LÍN framkvæma óháða úttekt á því hvað kostaði fyrir nemendur að framfleyta sér
í öllum löndum þar sem íslenskir
námsmenn tóku lán hjá sjóðnum, til
þess að kanna hvort framfærslulán
nægðu fyrir framfærsluþörf.
Í ljós kom að í sumum löndum
voru íslenskir námsmenn erlendis
með margföld framfærslulán miðað
við framfærslu í þeim ríkjum sem
þeir stunduðu nám. Á sama tíma
þurftu stúdentar við nám á Íslandi,
sem er langstærsti hópur lántakenda,
að sætta sig við skerta framfærslu.
Þetta ber að skoða í því samhengi að
framfærslulán LÍN eru að helmings-
hluta styrkur, og sjóðurinn er rekinn
sem félagslegur jöfnunarsjóður.
Nemar fá lánað í erlendri mynt
Skýringar þessa misræmis má meðal
annars rekja til þess að í upphafi síð-
asta kjörtímabils ákvað þáverandi
mennta- og menningarmálaráðherra
að hækka framfærslulán til náms-
manna á Íslandi um 20%, til þess að
mæta hárri verðbólgu og atvinnu-
leysi. Þetta var að mörgu leyti skyn-
samleg og skiljanleg ákvörðun.
Sambærileg hækkun á fram-
færslulánum var aftur á móti einn-
ig látin taka til þeirra sem voru
við nám erlendis þó að verðbólga
hafi víða verið hverfandi, þannig
að mismunur á framfærslu heima
og erlendis varð enn meiri en
áður. Afleiðing þessa, auk annarra
aðgerða þáverandi ríkisstjórnar,
veikti stöðu lánasjóðsins, enda
lánaði hann 500 milljónir umfram
framfærsluþörf á hverju ári.
Í óundirbúnum fyrirspurnatíma á
Alþingi í síðustu viku skýrði Oddný
G. Harðardóttir, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, hvers vegna þetta var
gert: „Ég vil aðeins minna hæstvirtan
mennta- og menningarmálaráðherra
á það hve veik krónan var. Hún féll,
manstu, haustið 2008 og það hafði
áhrif á kjör námsmanna erlendis.“
Þessi fullyrðing er röng. Fram-
færslulán til nema erlendis eru í
erlendri mynt. Breytingar á gengi
krónunnar gagnvart öðrum gjald-
miðlum hafa því engin áhrif á það
hvort nemendur geti framfleytt sér
með framfærslulánum í erlendri
mynt, og því stenst fullyrðingin
ekki sem rök fyrir hækkun erlendra
framfærslulána.
Mikilvægt að byggja á réttum
upplýsingum
Með úthlutunarreglum fyrir næsta
skólaár sem stjórn LÍN samþykkti
með sjö atkvæðum af átta, var ákveð-
ið að reyna að halda áfram að leið-
rétta misræmið á milli framfærslu-
lána eftir námslandi. Þess vegna voru
framfærslulánin hér heima hækkuð
og erlendis voru þau færð í átt að
framfærsluviðmiðinu, hvort sem var
til hækkunar eða lækkunar.
Þessu mótmælti Oddný, bæði í
áðurnefndri ræðu á Alþingi en einn-
ig í grein í Fréttablaðinu. Í greininni
kom fram að markvisst væri unnið
að því að fækka nemendum erlend-
is. Þessu til stuðnings var vitnað í
ársskýrslu LÍN frá 2014 og fullyrt að
nemendum erlendis hefði fækkað.
Þetta er einnig rangt. Í ársskýrslu
LÍN kemur fram að lánþegum hjá
sjóðnum hafi fækkað á Norður-
löndunum, en fjölgað víðast annars
staðar. Í skýrslunni segir beinlínis
að „námsmönnum erlendis hafi
frekar fjölgað en fækkað sl. fimm
ár.“ Fullyrðingin fær því ekki staðist
miðað við það sem kemur fram í til-
vitnaðri ársskýrslu LÍN.
Leiðrétting á rangfærslum
Jóhannes
Stefánsson
aðstoðarmaður
mennta- og
menningarmála-
ráðherra
Breytingar á
gengi krónunn-
ar gagnvart
öðrum gjaldmiðlum hafa því
engin áhrif á það hvort
nemendur geti framfleytt sér
með framfærslulánum í
erlendri mynt.
Í dag
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F Ö s T u d a g u R 1 3 . m a Í 2 0 1 6