Fréttablaðið - 13.05.2016, Side 26
Hvernig myndir þú lýsa þínum
stíl? Ég myndi segja að ég væri
með svona „Gunnþórunnar stíl“.
Ætli það sé ekki sambland af
einhverjum töffarastælum og
þægilegum efnum. Ágætis blanda
finnst mér.
Hvar kaupir þú fötin þín? Uppá-
haldsbúðin mín hér heima er
klárlega Aftur. Bára er einfald-
lega brilljant fatahönnuður og
ég er dyggur stuðningsmaður.
Svo verð ég að viðurkenna að ég
dett stundum inn á eBay og svo
er ég hrifin af einstaka netversl-
unum. Hins vegar er það ákveðin
áhætta að versla á netinu. Maður
þarf að vera ansi lunkinn að lesa
í stærðir því ég er alls ekki týpan
til að nenna að standa í því að
skila vörum eitthvert út í heim,
því miður.
Eyðir þú miklu í föt? Ég neita því
ekki að ný flík gleður mig mikið.
Það er bara þannig. En ég er hins
vegar farin að vanda valið betur
og kaupi færri en gæðameiri
flíkur. Það skiptir máli hvaðan
flíkin kemur. Ég er samt langt
frá því að vera fullkomin
hvað þetta varðar
og ég get alveg
týnt mér í þessum
klassísku búðum
á borð við H&M,
Urban Outfitters
og Forever21.
En það gerist þó
mun sjaldnar en
áður.
Hver er uppá-
haldsflíkin þín?
Ætli það sé
ekki svarta
Yves Saint
Laurent
síðpeysan
mín. Hún er úr
kasmír, passar
við hvaða tilefni
sem er.
Hverju verður bætt við fata-
skápinn næst? Ég er búin að
vera dugleg í gegnum tíðina að
koma mér upp fallegum fataskáp.
Hef líka alltaf selt flíkur inn á
milli og skipt út og er orðin bara
nokkuð sátt í bili. Ætli ég fjár-
festi ekki í einhverjum útivistar-
fatnaði næst!
Hver er helsti veikleiki þinn þegar
kemur að tísku og útliti? Ætli það
séu ekki skór. Ég á svakalega
mikið af skóm. Það er erfiðara
að selja skópörin sín heldur en
fatnað. Ég nota líka stærð 36,
ekki margar í því númeri nema
kannski grunnskólabörn. Ef ein-
hver þrjátíuogsexa vill kíkja á
úrvalið, endilega hafðu samband!
Notar þú fylgihluti? Já, en ég
er mjög vandlát. Ég er mikill
aðdáandi Jóhönnu Methúsalems-
dóttur sem hannar undir merkinu
Kría. Ég á orðið nokkur dásam-
lega falleg hálsmen frá henni,
eyrnalokka og armband sem ég
nota á hverjum degi. Mér finnst
hreinlega erfitt að skipta þessu
skarti út ef tilefni er til
að nota eitthvað
annað. Ég
er
einnig mjög vanaföst hvað veski
varðar og nota yfirleitt alltaf það
sama, klassískt leðurveski sem
amma mín og alnafna átti.
Áttu þér tískufyrir-
mynd? Það eru margar
alveg hrikalega flottar
stelpur á Íslandi, sem
klæða sig alltaf töff og
ég er heppin að þekkja
slatta af þeim! En svo að
ég nefni einhverja þá er
hún móðir mín, Kristín
Björgvinsdóttir hönnuður
og stílisti, langflottust. Hún
einfaldlega ber af.
Hvað er fram undan hjá þér?
Ég er í fæðingarorlofi með
annan drenginn minn og við
erum dugleg að heimsækja
Johansen Deli, sælkeraverslun
sem maðurinn minn, Ámundi
Óskar Johansen, og pabbi hans,
Carl Jónas Johansen, opnuðu nú
í byrjun mars. Við förum aldrei
svöng þaðan. Annars hlakka
ég til að eyða sumrinu með
fjölskyldunni minni og góðum
vinum.
töff og þægilEgt
Gunnþórunn Jónsdóttir blaðamaður hefur komið sér upp fataskáp
fullum af fallegum flíkum. Hér sýnir hún þær sem eru í uppáhaldi.
Í grárri „boyfriend“ kasmírpeysu frá Aftur. Sjóarahattinn keypti hún handa Ámunda manni sínum. Rifnu gallabuxurnar eru
keyptar í H&M, Coachella-línunni. Frye-mótorhjólastígvélin keypti hún á eBay. Mynd/Anton BRink
Hlébarðadressið er
frá Just Female, 100%
silki. Gunnþórunn
keypti það þegar hún
var kasólétt á brunaút-
sölu í debenhams.
Beið síðan spennt eftir
að geta klætt sig í það.
Svarta ySL-kasmírpeysan
sem er í mestu uppáhaldi.
Gallasam-
festingur
sem Gunn-
þórunn
keypti í new
york í fyrra.
Gunnþórunn heldur mikið upp á skart
frá kríu.
Sölustaði má finna á celsus.is
AÐEINS ÞAÐ BESTA FYRIR BÖRNIN
SÓLARVÖRNIN SEM HÚÐLÆKNAR MÆLA MEÐ
LANGVIRK
SÓLARVÖRN.
10x10.indd 1 11.5.2016 12:59:08
365.is Sími 1817
1 3 . m a í 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U R4 F ó l k ∙ k y n n i n G a R b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l