Fréttablaðið - 13.05.2016, Síða 28
„Listin felst í því að gera annarra
manna hús að heimili sínu en þetta
er þriðja íbúðin sem við búum í
síðan við fluttum út,“ segir Rakel
Hinriksdóttir en hún býr ásamt
Jóni Þorsteini Reynissyni á Vester
bro í Kaupmannahöfn.
Þar hafa þau búið síðustu fjögur
árin frá því að Jón hóf nám í Kon
unglega tónlistarskólanum. Rakel
er grafískur hönnuður og vinnur á
lítilli hönnunarstofu, Monokrom.
Fyrir einu og hálfu ári kom sonur
þeirra Úlfur Már í heiminn. „Hann
er því algjör Dani enn sem komið
er,“ segir Rakel, sem kann afar vel
við sig í borginni.
Hvernig er hverfið? „Vesterbro
er ofsalega vinalegt hverfi og
spennandi. Ég þarf bara að hjóla
250 metra í vinnuna, en fer samt
fram hjá kebabbúllu, bódegu,
bókaútgáfu, pólitískri bókabúð,
hjólaverkstæði, leikhúsi, tveimur
matvörubúðum, rakarastofu,
beyglusjoppu og öryggishurða
sölu.
Um helgar reynum við að fara
út, það er alltaf eitthvað um að vera
einhvers staðar. Ég er frekar sjúk
í flóamarkaði til dæmis. Við förum
svo yfirleitt með Úlf á einn af leik
völlunum í grenndinni eða leyfum
honum að eltast við dúfur í almenn
ingsgarði.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum á
heimilinu? „Hippastíll væri ekkert
langt frá hinu sanna. Ég vil hafa
liti, kontrasta og alls konar ólíka
hluti í bland. Ég er líka hrifin af
viðarlitum og vil hafa viðarhús
gögn í bland við hvítt og ljóst. Ég
hef mjög gaman af því að föndra
eitthvað og hengja upp. Núna eru
það hangandi spottar sem ég límdi
hringi á og skreytti hurðirnar
með. Áður var það stór veggmynd
sem ég bjó til úr spilastokkum.
Sem betur fer er Jón mjög skiln
ingsríkur og kvartar lítið sem
ekkert, blessaður.“
Ég er mikil myndamanneskja og
vil til dæmis hafa myndir af fólk
inu mínu uppi við. Stofan er í miklu
uppáhaldi. Það er hátt til lofts en
húsið er frá því rétt um 1920. Uppá
haldshluturinn minn er Bang&Oluf
sen plötuspilari frá 1988 sem ég
fann hálflemstraðan á flóamarkaði
og lét laga. Hann er einstaklega fal
legur og hljóðið er ekta. Ég á mikið
af plötum og finnst fátt betra en að
smella einni góðri á fóninn.“
Hver er sagan á bak við vegg-
spjöldin? „Hugmyndin að plak
ötunum kom þegar ég var langt
komin með fæðingarorlof og var
farið að lengja eftir því að skapa
eitthvað. Mig langaði að prófa
mig áfram með geómetrísk form
í nokkur plaköt á mína eigin
veggi, og byrjaði á því að búa til
úlf, bætti svo við lunda, snæuglu
og heiðlóu. Verkefnið vatt upp á
sig og fékk nafnið Undra. Nú hef
ég gert 17 mismunandi plaköt og
viðtökurnar hafa komið mér mjög
skemmtilega á óvart,“ segir Rakel
en veggspjöldin má kynna sér á
Facebook/undraposters og undra.
tictail.com.
List að vera
Leigjandi
Rakel Hinriksdóttir býr ásamt manni sínum
og syni í fallegri íbúð í Kaupmannahöfn. Hún
segir ákveðna list að vera leigjandi sem þurfi
að gera sér heimili, oft á ólíkum stöðum.
Veggspjöldin eru verk Rakelar sjálfrar og má kynna sér þau nánar á Facebook undir
heitinu Undra.
Rakel og Jón hafa flutt þrisvar á fjórum árum. Hún segir ákveðna list að búa sér
notalegt heimili í annarra manna húsum.
Rakel og Úlfur í stofunni sem er uppá-
haldsstaðurinn í íbúðinni sem þau leigja
á Vesterbro í Kaupmannahöfn. Krummi
eftir Rakel hangir á vegg og fallegir
munir og myndir skreyta kommóðuna.
myndiR/RaKel HinRiKsdóttiR
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
FL
IR
a
lm
an
na
te
ng
sl
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ö
nn
un
Viltu gerast vinur JSB?
Danslistarskóli JSB er á facebook
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili
að Frístundakorti Reykjavíkurborgar
Nú er tækifærið!
Tilvalin til að kynna sér dansnám hjá JSB
Námskeiðin hefjast 25. maí og standa til 14. júní
Skráning er hafin í síma 581 3730. Nánari upplýsingar á jsb.is
Búið er að opna fyrir skráningu á haustönn 2016!
Jazzballettnámskeið
fyrir 7-9 ára og 10-12 ára
Stutt dansnámskeið
fyrir hressa krakka
Dans- og leikjanámskeið
fyrir 3-6 ára
Nám og kennsla
Upplýsingar um nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB.
Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu
sem listdansskóli á grunn- og framhaldsskólastigi.
1 3 . m a í 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U R6 F ó l k ∙ k y n n i n G a R b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l