Fréttablaðið - 13.05.2016, Qupperneq 35
Sýningin um Pál
Óskar er afar víðtæk,
fjallað er um hann frá
barnsaldri. Þar má sjá
alls kyns muni og bún-
inga úr safni Páls en þeir
eru nú í eigu safnsins.
Tómas Young, framkvæmdastjóri
Hljómahallar og Rokksafns Íslands,
segir að gestafjöldi sé framar öllum
vonum. Íslendingar koma flestir í
hópum frá fyrirtækjum, alls kyns
félögum, grunnskólum og leikskól-
um til að skoða sýninguna. Þó er
alltaf eitthvað um að gestir, jafnt
íslenskir sem erlendir, kíki inn á
safnið á ferð um Reykjanesbæ.
Safnið er í Hljómahöllinni.
„Fólk hefur enn tækifæri til að
sjá Pál Óskar en við erum að vinna
í nýrri sýningu sem sett verður upp
í haust. Ekki er enn ljóst hver hún
verður,“ segir Tómas. „Grunnsýn-
ingin okkar sem segir sögu tón-
listar á Íslandi allt frá árinu 1835
þegar Jónas Hallgrímsson samdi
Hvað er svo glatt sem góðra vina
fundir, verður óbreytt. Fólk hefur
verið mjög ánægt sem hefur komið
til okkar. Safnið er miklu stærra en
fólk heldur, nútímalegra og flott-
ara. Allir fá afhenta spjaldtölvu við
komuna með öllum upplýsingum.“
Á Rokksafninu er hljóðbúr þar
sem gestir geta prófað rafmagns-
trommusett, gítar, bassa og hljóm-
borð. Meðal þess sem er á safn-
inu er trommusett Gunnars Jökuls
sem hann notaði til dæmis í Lifun
með Trúbroti, tréskúlptúr af reggí-
hljómsveitinni Hjálmum, flugvéla-
búningur úr myndbandi Sykurmol-
anna og fleira spennandi. Í safninu
er sömuleiðis frægðarveggur ís-
lenskrar tónlistar en þar er öllum
heiðursverðlaunahöfum Íslensku
tónlistarverðlaunanna gerð góð
skil.
Sýningin um Pál Óskar er afar
víðtæk, fjallað er um hann frá
barnsaldri. Þar má sjá alls kyns
muni og búninga úr safni Páls en
þeir eru nú í eigu safnsins. Tómas
segir að mögulega verði þessi sýn-
ing sett upp aftur eftir einhver ár.
Páll Óskar segir sjálfur frá ævi-
skeiði sínu með hjálp tækninnar.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu
safnsins rokksafn.is. elin@365.is
Páll Óskar verður brátt tekinn niður
Einkasafn poppstjörnu, fyrsta sérsýning Rokksafns Íslands um Pál Óskar Hjálmtýsson, er einstaklega vel heppnuð og hefur dregið
þúsundir gesta að safninu. Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna því hún verður tekin niður í júlí. Í haust kemur ný sýning.
Barnastjarnan Páll Óskar.Það geta ekki allir orðið gordjöss. Einkasýning Páls Óskars í Rokksafni Íslands er afar áhugaverð og margt að sjá.
Hótel Núpan er vistlega búið og
hvert herbergi einstaklega heimilis-
legt. Í boði eru gisting fyrir sextán
manns. Magnús Jónsson hótelstjóri
segir að áhersla sé lögð á að fólki
líði vel á hótelinu og njóti þeirrar
persónulegu þjónustu sem veitt er.
„Við aðstoðum fólk að komast út á
Keflavíkurflugvöll eða í Bláa lónið.
Við erum rétt við miðbæinn og stutt
er í góð veitingahús, söfn og aðra
áhugaverða staði. Síðan erum við
með heitan pott á veröndinni þar
sem gestir geta slakað á og notið
kyrrðarinnar hér,“ segir hann. „Við
bjóðum falleg, vel búin herbergi,
þráðlaust ókeypis net og frábæran
morgunverð. Hér á fólki að líða eins
og heima hjá sér.“
Magnús hóf reksturinn ásamt
móður sinni fyrir þremur árum.
Hann tók síðan alfarið við rekstrin-
um í janúar sl. Flestir gestir eru er-
lendir ferðamenn en Magnús segist
gjarnan vilja sjá fleiri Íslendinga.
„Við erum á Aðalgötu 10 í Keflavík
og ég býð upp á skutl upp á flugvöll
á vissum tímum. Einnig erum við
í samstarfi við „shuttle“ þjónustu
í Keflavík. Við geymum bíla fyrir
gesti okkar á meðan þeir bregða sér
til útlanda,“ segir Magnús.
Í haust ætlum við að bjóða fólki
að koma hingað á eins konar hvíld-
arhelgi þar sem boðið verður upp
á jógakennslu eða ferð í Bláa lónið.
Það er gott að komast aðeins burt
með makanum og eiga góða helgi.
Einnig tökum við á móti hópum sem
vilja upplifa óvissuferð til Keflavík-
ur. Það er margt skemmtilegt í boði
hér allt í kring.
Hægt er að kynna sér hótelið á
heimasíðunni www.hotelnupan.com
eða hringja í síma 565 3333.
Heimilislegt hótel
nálægt Leifsstöð
Hótel Núpan er heimilislegt hótel á frábærum stað rétt við sundlaugina í
Reykjanesbæ. Aðeins tekur 5 mínútur að aka í Leifsstöð. Frábær viðkomustaður
fyrir þá sem eru á leið til útlanda eða fólk sem langar í gott helgarfrí í Keflavík.
Hótel Núpan, Reykjanesbæ.
Gestir fá afslátt bóki þeir sig
á netinu, www.hotelnupan.
com með því að nota kóðann:
frettabladid
Golfklúbbur Vatnsleysustrandar - sími 4246529 / 8214266 - gvsgolf.is - gvsgolf@gmail.com
Velkomin á Kálfatjarnarvöll
FÉLAGSGJÖLD
Einstaklingar 26–66 ára 53.000
Einstaklingar 17–25 ára 26.500
Hjón og sambúðarfólk 83.000
Börn og unglingar 16 ára og yngri 0
Eldri borgarar 34.000
Sumarkort, félagar í öðrum golfklúbbum 21.500
Kynntu þér málin á gvsgolf.is
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
NÝTT OG BETRA APP
Smelltu þér á Fréttablaðsappið og
lestu blaðið í símanum
eða spjaldtölvunni
hvar og hvenær sem er.
Kynningarblað Komdu á REyKjaNES
13. maí 2016 7