Fréttablaðið - 13.05.2016, Blaðsíða 60
Áramótaheit Nú er fimmti mánuður
ársins nánast hálfnaður og ég get stolt
sagt frá því að ég hef nú þegar staðið
við tvö af mínum fjölmörgu áramóta-
heitum.
Hið fyrra var langtímamarkmið, ef
ég væri markþjálfi myndi ég kannski
kalla það lífsstílsbreytingu. Það felst í
því að drekka meira vatn. Hefur gengið
ægilega vel og engin ástæða til þess
að eyða fleiri orðum í það.
Hið síðara er annað og merki-
legra: Ég verslaði í fyrsta skipti
í netverslun á dögunum. En
líkt og ég uppljóstraði í upp-
hafi árs hefur það lengi verið
markmið.
Ég hef í gegnum tíðina
íhugað ýmsar misgáfulegar
fjárfestingar á hyldýpi inter-
netsins en aldrei látið slag
standa. Nú tók ég stökkið og
dembdi mér á bólakaf í djúpu
laugina og keypti appelsínu-
gulan alklæðnað; kvartbuxur
og bol.
lll
Kvartbuxur Nú hefur það
ekki farið fram hjá mér að
talsvert hefur hallað á
kvartbuxur á ýmsum
vettvangi, má þar nefna
Twitter sem og hin ýmsu tískutímarit.
Þær eru yfirleitt settar undir sama hatt
og einhvers konar víðar buxur með
vösum á lærunum og yfirleitt grænar
Kvartbuxur og fyrsti kossinn
@gydaloa
gydaloa@frettabladid.is
East of my Youth með
lag í bandarískum
sjónvarpsþætti
Raftónlistardúettinn East of my Youth seldi lag í bandaríska sjón-
varpsþáttinn Faking It sem sýndur er á MTV. Þær Herdís Stefáns-
dóttir og Thelma Marín Jónsdóttir, sem skipa dúettinn, eru bú-
settar í Berlín og eru að leggja lokahönd á fyrstu plötu sína.
á litinn. Nú skulum við bara fá það
strax á hreint að ég er alls ekki klædd í
svoleiðis buxur og því síður myndi ég
láta ferja slíkar á milli landa.
Nú ætla ég ekkert að fara að negla
mér í einhvern Morfís-gír og birta
orðabókarútskýringu en það eru til
margar týpur af kvartbuxum. Þær eiga
það bara allar sameiginlegt að vera
í eiginlegri kálfasídd en geta verið í
ýmiss konar útfærslum. Verandi lög-
og sjálfráða, það síðarnefnda í það
minnsta enn þá, þá klæðist ég nánast
bara kvartbuxum og skal bara vera
fyrst til að viðurkenna að mér
finnst fáar buxur klæðilegri.
Ég var svo alsæl með
appelsínugulu kvartbuxurnar að
ég keypti annað nákvæmlega eins
dress, að vísu í öðrum lit. Það er
væntanlegt til landsins á næstu
dögum – vonandi fyrir helgi því þá
getur okkar kona spásserað alsæl
um borgina í spánnýjum kvartbuxum.
lll
Sleikur Og talandi um helgina. Nú er
Eurovision-helgi. Ég er enginn sérstak-
ur aðdáandi en keppnin á sérstakan
stað í hjarta mínu þar sem það var ein-
mitt í teiti í tilefni söngvakeppninnar
sem ég fór í minn fyrsta sleik. Margir
myndu kalla mig seinþroska en ég var
í tíunda bekk þegar umrætt atvik átti
sér stað í blokkaríbúð í Kópavoginum.
Vinkona mín var að passa börn og fékk
leyfi til þess að bjóða nokkrum vinum
að horfa á Eurovision. Hún bauð auð-
vitað fleiri en nokkrum og sumir komu
með bjór með sér. Algjörir villingar.
Ég var fókuseraður trompetleikari
og meðlimur í lúðrasveit á þessum
tíma þannig að ég lét ekkert slíkt
inn fyrir mínar varir. Vín fer
misvel í fólk og hvað þá
þegar það er að neyta þess
í fyrsta sinn og kastaði
einn strákurinn upp fyrir
stigagjöf. Það var auðvitað
sjomlinn sem ég kyssti
stuttu síðar og eftir á að
hyggja ætla ég rétt að
vona að ég hafi beðið
hann um að fá sér tyggjó
– er samt ekki viss.
Aðalatriðið er að sjálf-
sögðu það að hann var
þekktur fyrir að vera
með stóra upphand-
leggsvöðva og ég var
auðvitað montin með
það. Annars vona ég
bara að sem flestir fari
í sleik um helgina, það
er svo gott og gaman.
Annars er ég að leita að gallakvart-
buxum – ef einhver sér svoleiðis má
láta mig vita.
Íslenski raftónlistardúettinn East of my Youth, sem starf-ræktur er í Berlín og skip-aður þeim Herdísi Stefáns-dóttur og Thelmu Marín Jónsdóttur, gaf nýverið út
lagið lagið Mother.
Lagið var frumflutt á vefsíðu i-D
Magazine í síðustu viku en það
verður á væntanlegri plötu þeirra
sem kemur út seint í sumar.
East of my Youth var stofnaður
fyrir rúmi ári og hefur meðal annars
leikið á tónlistarhátíðunum Sónar,
Iceland Airwaves og SxSW í Texas.
Lagið Mother var á dögunum selt
í bandaríska sjónvarpsþáttinn
Faking It sem sýndur er á MTV en
að sögn þeirra Thelmu og Herdísar
kom tækifærið til í tengslum við
tónlistarhátíðina Airwaves. „Þá
var umboðskonan okkar komin til
sögunnar og hún fór á svona „net-
working“ fund og hitti þar konu
sem vinnur fyrir umboðsskrifstofu
í L.A. og hún smellti heyrnartólum
á eyrun á henni og spilaði demó
af laginu,“ segir Thelma og Herdís
bætir við: „Og hún sagði bara strax:
Vá, hvað þetta passar í þættina.“
Þáttunum er lýst sem róman-
tískum gamanþáttum og voru þeir
fyrst sýndir í apríl árið 2014. Þriðja
sería þáttanna er nú í sýningu og
má heyra lag East of my Youth
í þættinum sem sýndur verður
þann 17. maí næstkomandi. Þætt-
irnir segja frá vinkonunum Karma
og Amy sem hafa lengi reynt að
öðlast vinsældir í skólanum. Ekki
hefur það gengið sem skyldi og
í kjölfar misskilnings koma þær
út úr skápnum sem par og öðlast
samstundis gríðarlegar vinsældir.
Í þáttunum er svo fylgst með marg-
víslegum afleiðingum þessa.
East of my Youth er með PR-skrif-
stofu í London þar sem umboðs-
kona þeirra er staðsett og hafa
þær meðal annars komið fram á
tveimur Showchase-tónleikum
þar í borg. Þær segja það vissulega
gott tækifæri og mögulegan stökk-
pall fyrir tónlist þeirra að fá lag í
þáttinn. „Nú er bara búið að læsa
lagið inn í þáttinn, þannig þetta er
bara „signed, sealed, delivered“,“
segir Thelma hlæjandi en töluverð
áhersla er lögð á að kynna nýja tón-
list í þættinum og er meðal annars
gerður lagalisti á tónlistarveitunni
Spotify eftir hvern þátt og er áhorf-
endamarkhópurinn ungt fólk.
„Reyndar ekki, en litli bróðir
minn sem er í MR froðufelldi alveg
af æsingi af því það eru víst allir í
MR að horfa á þetta,“ svarar Her-
dís þegar hún er spurð að því hvort
þær hafi horft á Faking It. „Þetta
er svolítið svona eins og The O.C.
fyrir okkar kynslóð,“ segir Thelma.
Þær eru því spenntar fyrir kom-
andi tímum og eru sem stendur í
Berlín þar sem þær vinna að því að
klára plötuna sína og skjóta ekki
loku fyrir að efnt verði til útgáfu-
tónleika hér á landi eftir útgáfuna.
„Það verða haldnir tónleikar með
pompi og prakt einhvers staðar,“
segir Thelma hress að lokum. gyda-
loa@frettabladid.is
REYndaR EKKi En
litli bRóðiR minn
sEm ER í mR fRoðufEldi
alvEg af æsingi af því það
ERu víst alliR í mR að hoRfa
á þEtta.
Þær Herdís
og Thelma
skipa
dúettinn
sem
stofn-
aður var
í maí fyrir
ári.
Mynd/
Pauline-
BaTisTa
Aðalfundur
Húnvetningafélagins í
Reykjavík verður haldinn í
Húnabúð þriðjudaginn
24. maí klukkan 20:00
Dagskrá er samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórnin
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
1 3 . m a í 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U R40 L í F i ð ∙ F R É T T a B L a ð i ð
Lífið