Fréttablaðið - 22.07.2017, Síða 2
Veður
Vaxandi suðaustanátt í dag, 8-15 m/s
við suðvesturströndina síðdegis, en
10-18 á norðanverðu Snæfellsnesi.
Þar má búast við hvössum vind-
hviðum og ekki ráðlegt að ferðast
á ökutækjum sem taka á sig mikinn
vind þar. SJÁ SÍÐU 38
Barist við eiturplöntur
Starfsmenn Reykjavíkurborgar íklæddir sérstökum hlífðarbúningum, tóku í gær til við að uppræta hættulega bjarnarkló, eða tröllahvönn, í Laugar-
nesi. Sú planta vex víða í borginni og annað afbrigði, húnaklóin, er skyndilega farin að dreifa úr sér líka. Báðar þessar plöntur geta valdið alvarleg-
um brunasárum og jafnvel varanlegri blindu ef vökvi úr þeim berst í augu að sögn Snorra Sigurðssonar, líffræðings hjá borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNTAMÁL Listgreinar hafa vaxið
að vinsældum hjá Borgarholtsskóla
og vill skólinn nú byggja séraðstöðu
fyrir greinarnar. Í byrjun sumars
sendi skólinn erindi til mennta-
málaráðuneytisins um uppbygg-
ingu kennsluaðstöðu fyrir skapandi
greinar.
„Aðsókn í listnám hefur verið að
aukast töluvert hjá okkur í Borgar-
holtsskóla. Það er búið að vera mjög
vinsælt og búið að sprengja utan af
sér hjá okkur,“ segir Ársæll Guð-
mundsson, skólameistari Borgar-
holtsskóla. Skráðir nemendur í list-
námi eru í dag 167 talsins.
„Við höfum sent óskir um að fá
hreinlega að huga að byggingu lista-
skóla. Við erum meðal annars með
leiklist, kvikmyndagerð og grafíska
hönnun. Það er búin að vera spreng-
ing í atvinnulífinu í kvikmyndageir-
anum, meðal annars vegna Baltas-
ars Kormáks og allra kvikmyndanna
sem hafa verið teknar hér á landi.
Unga fólkið sér þarna tækifæri og
sækir um í þetta nám,“ segir Ársæll.
„Við erum eins og aðrir að kenna
þetta í skóla sem var byggður til að
kenna bóklegar greinar,“ segir hann.
Búið er að breyta hefðbundnum
kennslustofum í myndver, leiksvið,
myndlistar- og hönnunarstofu, með
litlum möguleikum á að koma fyrir
nauðsynlegum tækjabúnaði, meðal
annars vegna stærðar og lofthæðar.
Engar geymslur né pláss eru fyrir
leikmyndir, leikmuni, búninga,
ljósaborð, teiknitrönur eða annað
nauðsynlegt. Pláss er á lóð skólans
fyrir húsnæði sem þetta. – sg
Borgarholtsskóli
vill nýtt listahús
MÁLVERKASAFN IÐNÓ - LISTMUNIR
Til sölu í einu lagi málverka og listmunasafn Iðnó ehf vegna
brottflutnings rekstraraðila úr húsinu.
Um er að ræða perlur eftir m.a. Ásgrím Jónsson, Þórarinn
B. Þorláksson, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Finn
Jónsson, Jón Engilberts,Svein Þórarinsson,Jóhann Briem,Er-
ró,Valtý Pétursson,Snorra Arinbjarnar og marga fleiri þekkta
myndlista menn.
Æskilegt að selja heildarsafnið enda upplagt fyrir stofnanir
og fyrirtæki að stofna góðan grunn af listaverkasafni með
þessum kaupum.
Verkin verða til sýnis áhugasömum eftir nánara samkomulagi
og fyrirspurnum verður einungis svarað berist þær í rafpósti
á; idno@idno.is
Verkin verða afhent kaupanda hinn 01.október n.k. þegar
núverandi rekstraraðili tæmir fasteignina.
Ársæll Guð-
mundsson,
skólameistari
Borgarholtsskóla
EM2017 Þó að krossbandsslit hafi
slökkt í EM draumi systranna Elísu
og Margrétar Láru Viðarsdætra eru
Eyjameyjarnar engu að síður mætt-
ar til Hollands þar sem þær dvelja í
sumarhúsabyggð með hátt í þrjátíu
manns úr fjölskyldunni.
Systrunum fannst erfitt að vera í
stúkunni í leiknum gegn Frakklandi.
„Mér fannst það mjög erfitt þótt
við höfum báðar undirbúið okkur
mjög vel. Ég setti upp sólgleraugun
í þjóðsöngnum,“ segir Margrét Lára.
Tárin voru af tvennu tagi.
„Bæði er maður svekktur yfir að
vera ekki að spila og svo var maður
grátandi smá gleðitárum, og nú
hljóma ég eins og hundrað ára, en ég
er búin að vera í þessu í fimmtán ár
og sjá hvað við Íslendingar erum frá-
bærir,“ segir Margrét Lára og minn-
ist þess að fimmtíu manns hafi fylgt
liðinu á EM í Finnlandi 2009. Um
þrjú þúsund manns eru í Hollandi.
„Að hafa fengið að fara þennan
stiga með liðinu, maður fyllist svo
miklu stolti. Maður veit að ásamt
fleiri leikmönnum á maður smá þátt
í því og það er gaf manni óneitan-
lega mikla gleði líka.“
Elísa, sem er 26 ára varnarmaður,
sleit krossband í vináttulandsleik
gegn Hollandi í apríl. Tveimur mán-
uðum síðar sleit markadrottningin
svo krossband í leik í Pepsi-deild
kvenna. Í báðum tilfellum varð
fljótlega ljóst að þær yrðu ekki með
á EM. Elísa segir lærdómsríkt að að
vera hinum megin við borðið.
„Þetta er eitthvað sem mótíverar
mann í endurhæfingunni. Maður
einhvern veginn er ofboðslega
viljugur að gera þetta vel og koma
sterkari til baka,“ segir Elísa. Hún
setti sömuleiðis upp sólgleraugun á
Frakkaleiknum.
Það eru ekki bara stundirnar
á vellinum sem systurnar sakna.
Stelpurnar í landsliðinu eru dug-
legar á samfélagsmiðlum og má sjá
að lífið á hótelinu er skemmtilegt,
mikið hlegið. „En við eigum líka
frábærar stundir hérna saman fjöl-
skyldan,“ segir Elísa.
Margrét Lára tekur undir að for-
vitnilegt sé að vera hinum megin
við borðið. „Nú vitum við hvað þau
verða að gera á HM eftir tvö ár þegar
við verðum í harkinu á vellinum,“
segir hún og tekur af allan vafa um
hvort hún hyggi á endurkomu.Hún
verður 31 árs síðar í mánuðinum.
Þær eru bjartsýnar fyrir leikinn
gegn Sviss í dag. Margrét minnir
á að 1-0 tap gegn Frakklandi séu
„bestu verstu“ úrslitin sem hægt
var að fá. „Ég sé ekki mörg lið fara
svona í gegnum Frakklandsleiki,“
segir hún og talar af reynslu því
hún skoraði óvænt sigurmark gegn
Frökkum árið 2007 í leik sem mark-
aði upphafið að EM ævintýrum
stelpnanna. Tíu árum síðar eru þær
stoltar af stöðu landsliðsins og Elísa
segir varnarfærslurnar í Frakklands-
leiknum hafa verið svo til upp á tíu.
„Það eina sem vantaði var smá
heppni upp við markið,“ segir Mar-
grét Lára. Eflaust hafi verið stress
gegn Frökkum og ekki náðst að
halda boltanum nógu vel innan
liðsins. Það verði betra gegn Sviss.
„Ég held við séum að fara að vinna
þennan leik, ég er eiginlega viss um
það.“ kolbeinntumi@365.is
Sólgleraugu földu tárin
Krossbandsslit slökktu í EM draumi systranna frá Heimaey, Margrétar Láru og
Elísu Viðarsdætra, sem ætluðu að vera í eldlínunni með landsliðinu í Hollandi.
Eyjasysturnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur eru báðar á EM í Hollandi.
SAMGÖNGUR Isavia vill að opnað
verði á meira millilandaflug frá
Reykjavíkurflugvelli, bæði til að létta
á Keflavíkurflugvelli og til að stytta
ferðatíma flugfarþega.
„Við erum að ræða við yfirvöld og
reyna að athuga hvort það sé ekki
hægt að fá þessu banni, eða þessum
reglum, breytt að því leyti að þær
verði þá opnari þannig að það sé
hægt að stunda meira flug hér út.
Þannig að við erum að beita okkur í
því, já, að fá að minnsta kosti umræðu
í gang um málið,“ sagði Jón Karl Ólafs-
son, framkvæmdastjóri flugvallasviðs
Isavia, við fréttastofu í gær.
Jón Karl benti jafnframt á að
meðan Keflavíkurflugvöllur sé orðinn
þéttsetinn sé völlurinn í Reykjavík
vannýttur. Með nýtingu hans væri
hægt að dreifa álagi betur. – kmu
Millilandaflug
frá Reykjavík
2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð