Fréttablaðið - 22.07.2017, Page 6
Tveir fórust í jarðskjálfta
6,7 stiga jarðskjálfti reið yfir grísku eyjuna Kos og tyrknesku borgina Bodrum í gær. Tveir ferðamenn fórust í
skjálftanum og rúmlega hundrað slösuðust, mismikið þó. Kos er vinsæll ferðamannastaður og sækja einkum
Grikkir og Tyrkir eyjuna heim. Upptök skjálftans voru um tíu kílómetra suður af Bodrum. NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Benedikt Jóhannes-
son fjármálaráðherra segir það rétt
hjá Bjarna Benediktssyni forsætis-
ráðherra að það sé skoðun Bene-
dikts og Viðreisnar að hafna beri
krónunni. Það sé hins vegar hlut-
verk stjórnmálamanna að benda á
lausnir við vandamálum. Nýr gjald-
miðill er þó ekki á döfinni.
„Ég held að sé mjög ólíklegt að
við tökum upp annan gjaldmiðil á
tímum þessarar ríkisstjórnar,“ segir
Benedikt. „Það er augljóst að það
verður ekki breytt um gjaldmiðil
nema það eigi sér aðdraganda og
aðdragandinn felst meðal annars í
því að menn tali um málin.“
Grein Benedikts í Fréttablaðinu á
fimmtudaginn þar sem hann ítrek-
aði afstöðu Viðreisnar um að fundin
yrði lausn á gengissveiflum íslensku
krónunnar vakti nokkra athygli. Í
henni sagði Benedikt Viðreisn
hafa verið stofnaða til þess að
stuðla að sátt og stöðugleika.
Slíkur stöðugleiki náist aldrei
nema með stöðugum gjaldmiðli
sem standi undir nafni og bjóði
upp á svipaða vexti og í nágranna-
löndum.
„Það sem hefur gerst að undan-
förnu er að menn sjá miklar sveifl-
ur á gengi krónunnar á stuttum
tíma. Það er auðvitað óheppilegt
ástand fyrir fyrirtæki. Ég bendi
á það að þetta ástand hefur ekki
breyst neitt og við þurfum að vera
óhrædd að tala um breytingar,“
segir Benedikt.
Hann segir að í ríkisstjórnarsátt-
málanum standi að flokkarnir vilji
finna lausn sem dragi úr sveiflum
á gengi krónunnar. „Ég hef sagt
að þetta gæti gerst í einhverjum
áföngum, fyrst gætum við sett okkur
markmið þar sem krónunni yrði
leyft að sveiflast innan ákveðins
ramma og ramminn svo þrengdur.“
Lausnin gæti að mati Benedikts
verið myntráð en jafnvel eitthvað
annað. „Við eigum að fá til-
lögur frá nefnd sem er núna
að störfum sem hefur þetta
markmið að reyna að
draga úr sveiflum á gengi
krónunnar. Ef menn koma
með aðra lausn sem leiðir
til annarrar niðurstöðu þá
hef ég mjög mikinn áhuga
á því að við nýtum okkur
hana. En myntráð er ein
lausn sem margar þjóðir
hafa nýtt sér.“
saeunn@frettabladid.is
Ekki gjaldmiðilsskipti
í núverandi ríkisstjórn
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segir að ekki verði breytt um gjald-
miðil nema það eigi sér aðdraganda. Hann talar fyrir lausn sem dregur úr sveifl-
um á gengi krónunnar, hvort sem það verður myntráð eða eitthvað annað.
Það er augljóst að
það verður ekki
breytt um gjaldmiðil nema
það eigi sér aðdraganda og
aðdragandinn felst meðal
annars í því að menn tali um
málin.
Benedikt Jóhannesson,
fjármálaráðherra
Gönguferðir um fjallendi Málaga og Cádiz á Spáni. Við kynnumst hinum „hvítu þorpum“ Andalucíu og
einnig gullnum ströndum Cádiz. Gist er á fallegu hóteli
í bænum Ronda fyrstu 4 næturnar og þaðan förum við
í dagsferðir og heimsækjum nokkur af hvítu þorpum
Andalúsíu: Grazalema og Zahara de la Sierra staðsett í
þjóðgarði Grazalemafjallanna og þorpin Benalauría og
Genalguacil í fjalllendi Málaga.
Gengið er í grennd við þorpin sem heimsótt eru hverju
sinni, um 4-6 tíma á dag, og flokkast göngurnar undir
léttar til miðlungserfiðar og henta því flestum sem eru í
nokkuð góðu formi.
Á fimmta degi keyrum við niður að strandbænum Conil
de la Frontera í Cádiz og njótum þess að liggja í sólinni og
kíkja á mannlífið, en Conil de la Frontera er einstaklega
skemmtilegur og fallegur bær með mikið úrval af búðum,
veitingastöðum og börum fyrir utan víðfeðma strönd sem
bærinn liggur við. Farið verður í kynnisferð síðasta kvöldið
til Vejer de la Frontera. Þorpið Vejer de la Frontera stendur
í 200 metra hæð uppi í fjalli og þaðan er hægt að sjá til hafs
og jafnvel til Marokkó í góðu skyggni. Á þessum glæsilega
stað ætlum við að njóta saman kvöldverðar á einum
þekktasta veitingastað bæjarins.
Við endum ferðina í Jerez de la Frontera og förum í
sherrívínsmökkun í einum frægasta vínkjallara Jerez áður
en flogið er aftur til Íslands.
RONDA – GRAZALEMA – ZAHARA DE LA SIERRA
BENALAURÍA – GENALGUACIL – CONIL DE LA FRONTERA
Frá kr. 219.995 m/fæði skv. ferð.
Netverð á mann frá kr. 219.995 m.v. 2 í herbergi.
Innifalið: Flug og skattar. Innrituð 23 kg taska, akstur til og frá
flugvelli, gisting m/morgunverði, 2 hádegisverðir og 1 kvöldverður.
Rúta og fararstjórn í göngur. Kynnisferð til Vejer de la Frontera,
vínframleiðslufyrirtækisins González Byass og smökkun á sherry.
Íslensk og ensk fararstjórn í göngum m.v. lágmarksþátttöku 14 manns.
– fáðu meira út úr fríinu
Fararstjóri: Ása Marin Hafsteinsd.
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
EN
N
EM
M
/
S
IA
•
N
M
79
54
9
HVÍTU ÞORPIN
á Spáni
GÖNGUFERÐ
17. sept. í 7 nætur
Hádegis- og
kvöldverður,
kynnisferðir o.fl.
innifalið
Frá kr.
219.995
m/morgunmat
2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð