Fréttablaðið - 22.07.2017, Síða 16
2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
EM 2017
Íslenska kvennalandsliðið er
með kenninöfnin á baki búninga
sína á EM en ekki fornöfnin.
Glódís Perla Viggósdóttir og
Sif Atladóttir útskýrðu á fundi
með blaðamönnum í gær að
þetta hefði verið rætt fyrir mót
og atkvæðagreiðsla farið fram.
„Síðustu tvær keppnir
hafa verið með
fornafninu en við
kusum um þetta og
ákváðum að vera
með eftirnöfnin
núna þar sem
við erum sam-
einaðar undir
„dóttir“,“
sagði Sif.
„Þetta
kemur
upprunalega úr
CrossFit-heim-
inum þar sem
stelpurnar okkar
þar fengu þetta
nafn á sig,“
sagði Glódís og
bætti við: „Þetta
stendur fyrir að
vera grjótharðar
og ógeðslega
flottar.“
EM 2017 í Hollandi
B-riðill
Svíþjóð - Rússland 2-0
1-0 Schelin (22.), 2-0 Blackstenius (51.).
Þýskaland - Ítalía 2-1
1-0 Josephine Henning (19.), 1-1 Ilaria
Mauro (29.), 2-1 Babett Peter, víti (67.)
Staðan í B-riðlinum: Svíþjóð 4, Þýskaland
4, Rússland 3, Ítalía 0.
Í dag er spilað í C-riðli
16.00 Ísland - Sviss Doetinchem
18.45 Frakkl.- Austurríki Utrecht
Um helgina
L 14.00 FH - ÍA Kaplakriki
S 17.00 KA - Breiðablik Akureyrarv.
S 17.00 Fjölnir - ÍBV Fjölnisvöllur
S 19.15 Víkingur R. - KR Víkingsv.
S 20.00 Stjarnan - Grindav. Garðab.
L 09.00 Opna breska Golfstöð
L 09.30 Bayern - AC Milan Sport 2
L 09.50 C. Palace - WBA Sport
L 12.20 Liverpool - Leicester Sport
L 13.50 FH - ÍA Sport 2
L 22.00 Juventus-Barcelona Sport
L 00.00 PSG - Tottenham Sport
L 00.00 UFC Fight Night Sport 2
S 08.00 Opna breska Golfstöð
S 16.50 KA - Breiðablik Sport
S 19.45 Stjarnan - Grindav. Sport
S 21.00 Real M. - Man. Utd. Sport 2
Grjótharðar og flottar
SEX JAFNIR OG NÝTT MÓTSMET
Gríðarleg spenna er í karla-
flokki þegar Íslandsmótið í golfi
á Hvaleyrarvelli er hálfnað. Sex
kylfingar eru jafnir á fimm höggum
undir pari. Axel Bóasson úr Keili
lék frábærlega á 68 höggum eða
-3 en hann er á -5 samtals eins og
þeir Ólafur Björn Loftsson úr GKG,
Andri Þór Björnsson úr GR, Fannar
Ingi Steingrímsson úr GHG, Egill
Ragnar Gunnarsson úr GKG og
Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr
GR. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr
Keili lék frábært golf í gær þegar
hún kom inn á -4 eða 67 höggum
sem er nýtt vallarmet. Guðrún Brá
er með tveggja högga forskot á
Valdísi Þóru Jónsdóttur úr Leyni og
Ragnhildi Kristinsdóttur úr GR.
FÓTBOLTI „Staðan á hópnum er
eins góð og kostur er á. Það eru
allir leikmenn heilir heilsu. Engin
veikindi hafa komið upp og verða
ekki,“ sagði Freyr Alexandersson
landsliðsþjálfari og barði þrisvar í
borðið (sjö, níu, þrettán) á blaða-
mannafundi íslenska liðsins í gær
þar sem hann sat fyrir svörum
ásamt miðvörðunum Glódísi Perlu
Viggósdóttur og Sif Atladóttur,
besta leikmanni íslenska liðsins í
síðasta leik á móti Frakklandi.
Mótherjar dagsins eru sviss-
nesku stelpurnar sem hafa reynst
okkar stelpum erfiðar í síðustu
leikjum Liðin mættust einu sinni á
ári frá 2013-2015 og vann Sviss alla
þrjá leikina með markatölunni,
7-0. Fyrsti leikur Íslands undir
stjórn Freys Alexanderssonar var
einmitt á móti Sviss árið 2013. Það
var dapur leikur hjá íslenska liðinu
en það er komið langað leið síðan
þá.
„Það er ýmislegt búið að gerast
síðan í þessum athygliverða fyrsta
leik mínum með landsliðinu þar
sem ég upplifði ýmislegt. Það var
ýmislegt sem ég rakst á sem var
gott mál. Við spiluðum illa og
áttum ekkert skilið úr leiknum. Við
erum bara á allt, allt, allt öðrum
stað í dag,“ sagði Freyr og bætti við:
„Óháð öllum hinum leikjunum
sem við höfum spilað við þær og
farið illa út úr er þetta nýr dagur,
nýr leikur á allt öðrum stað.“
Stelpurnar okkar skoruðu ekki í
fyrsta leiknum á EM á móti Frakk-
landi. Það var ekkert nýtt miðað
við það sem hefur verið í gangi
hjá liðinu að undanförnu en það
hefur ekki skorað í síðustu fjórum
leikjum. Markmiðið var aldrei að
raða inn mörkunum í Hollandi,
sagði landsliðsþjálfarinn.
Engin mörk – ekkert vandamál
„Við komum hingað með nokkur
markmið sem voru einföld og skýr.
Eitt af því var að vera með besta
varnarliðið í mótinu. Við lögðum
höfuðáherslu á það að spila sterk-
an varnarleik. Það ákváðum við út
frá styrkleikum hópsins okkar og
hvernig mótið er og hvaða þjóðir
eru hérna og hvað þarf til að ná
árangri,“ sagði Freyr sem er á því
að markastíflan bresti á morgun.
„Ég trúi því að ef við höldum
hreinu á morgun þá vinnum við.
Það þýðir að við skorum. Eitt stig
heldur örlögunum í okkar eigin
höndum. Við ætlum okkur samt
sem áður sigur.“
Íslenska liðið lenti í miklum
áföllum í aðdraganda mótsins
en eitt af því var að missa marka-
hrókinn Hörpu Þorsteinsdóttur út
vegna barnsburðar. Markaskorun
hefur gengið brösulega síðan þá en
Freyr minnti á hvernig þetta var í
síðustu undankeppni.
„Þið megið tala um áhyggjur og
það má gagnrýna þetta eins og þið
viljið en ég minni á það að við skor-
uðum mest allra í undankeppninni
í okkar riðli og þriðja mest af öllum
og áttum markahæsta leikmann
í undankeppni EM. Það hefur því
ekki verið vandamál hjá okkur en
við sem sitjum hér inni vitum alveg
hvað er búið að ganga á síðustu átta
mánuði hjá okkur,“ sagði Freyr.
Stoppa Sviss
Glódís Perla Viggósdóttir hefur mætt
Sviss áður og veit hvers svissnesku
stelpurnar eru megnugar í sóknar-
leiknum. Hún hefur samt engar
áhyggjur af morgundeginum eftir
frammistöðuna á móti Frakklandi.
„Þetta eru ekki þannig lagað
hættulegri einstaklingar. Þetta eru
ekki einstaklingar sem við þurfum
að hræðast ef við spilum sama
varnarleik og við gerðum á móti
Frökkum. Ef við erum allar á tánum
og allar saman í þessu þá munum
við stoppa þessa einstaklinga,“ sagði
Glódís Perla og Sif Atladóttir hefur
engar áhyggjur af slæmum minn-
ingum frá Tjarnarhæðinni þar sem
Ísland tapaði 4-0 fyrir Hollandi í
vináttuleik í apríl.
„Það eru allir brjálæðislega pepp-
aðir fyrir þennan leik. Við vildum
koma hingað aftur. Við þekkjum
völlinn vel þannig það eru bara
allir spenntir fyrir leiknum. Grasið
er grænt og sólin skín og Íslendingar
á svæðinu þannig að þetta verður
ekki betra,“ sagði Sif Atladóttir.
Stefnt að bestu vörninni á EM
Íslenska kvennalandsliðið mætir Sviss í öðrum leik liðsins á EM 2017 á morgun. Stelpunum hefur ekki
tekist að skora í síðustu fjórum leikjum en það verður helst að breytast á morgun. Markmiðið var að vera
með bestu vörnina á mótinu, sagði landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson á blaðamannafundi í gær.
Landsliðskonurnar Fanndís Friðriksdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir sjá hér eitthvað sniðugt á æfingu íslenska landsliðsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/TOM
Tómas Þór Þórðarson
tomas@365.is
Sif Atladóttir og Hallbera Gísladóttir á leið á æfingu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/TOM
Síðust til að skora í lands-
leik á móti Sviss var Kristín
Anna Arnþórsdóttir
23. ágúst 1986. Síðan hefur
íslenska liðið ekki skorað í
342 mínútur á móti Sviss.
Markatalan í síðustu þremur
leikjum þjóðanna er -7 (0-7).
Grasið er grænt og
sólin skín og Íslend-
ingar á svæðinu þannig að
þetta verður ekki betra.
Sif Atladóttir