Fréttablaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 18
Við verðum þarna, ég og systir mín, Elsa María Blöndal sem er jú, talin ein af best og svalast klæddu verum landsins,“ segir Magga
Stína. „Eins og alltaf verður mikið um
huggulegheit inni á Kaffi Vest, fólk
getur fengið sér heitt kakó, bröns,
mímósur og möndlukökur og annað
skemmtilegt.
Við Elsa verðum svo fyrir utan og
seljum þar alla kjóla og klæði sem
safnast hafa í sarpinn hjá okkur í
tímans rás. Og já, hreinlega allt sem
við eigum til í okkar fórum. Svo
leikum við skemmtilega tónlist af
geisladiskum, einnig úr okkar eigu,
sem allir verða til sölu.“
Magga Stína er þekkt fyrir líflegan
klæðaburð og Elsa María er fata-
hönnuður, það er því ljóst að ein-
hverjar gersemar munu leynast á
markaði þeirra systra. „Þarna verða
til að mynda margir magnaðir rokk
og ról-kjólar sem ég hef komið fram
í á undanförnum árum.“
Magga Stína mælir svo með að
tónlistaráhugafólk hafi augun opin
fyrir spennandi geisladiskum. „Nú
sel ég plötusafnið mitt, eða svona 98
prósent þess. Og ég get sagt þér það
að þegar ég fór að fara í gegnum þetta
allt, þá fékk ég létt á tilfinninguna að
ég væri viti mínu fjær, því magnið var
þvílíkt. En svo áttaði ég mig auðvitað
á því að ekkert er heilbrigðara en að
eyða peningunum sínum í góða tón-
list og nú mun tónlistin af þessum
diskum og vínylplötum gleðja hug og
hjörtu annarra,“ segir Magga Stína og
hlær. „Svo verða líka til sölu æðisleg
póstkort, ég er nefnilega póstkorta-
safnari í laumi, gæti haldið póst-
kortasýningu sem næði hringinn í
kringum hnöttinn.“
Spurð út í hvort henni þyki ekki
erfitt að selja kjólana sína og dýr-
mætt geisladiskasafn sem hún hefur
safnað í gegnum tíðina segir Magga:
„Jú, það er erfitt en bara í fimm mín-
útur því það er líka rosalega frels-
andi. Að losna undan eignaþung-
anum og halda léttleikandi með
andann einan að vopni á vit nýrra
ævintýra.“
Aðspurð hvað bíði hennar í San
Francisco segir Magga Stína: „Ég er
að fara í framhaldsnám í tónsmíðum.
Magga Stína hvetur fólk til að
mæta á markað þeirra systra, hún
lofar miklu fjöri. „Við ætlum að gera
okkur glaðan dag og reyna að galdra
fram sólina með öllum tiltækum
ráðum. Þetta verður útihátíð eins og
þær gerast allra bestar,“ segir Magga
Stína um markaðinn sem hefst
klukkan 11.30. gudnyhronn@365.is
Selur kjólana sína og plötusafnið
Tónlistarkonan hressa Margrét Kristín Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína, er að fara að skipta um gír og flytja
til San Francisco til að fara í nám. Hún ætlar af því tilefni að selja eigur sínar fyrir utan Kaffi Vest í dag, laugardag.
Magga Stína ætlar að halda uppi stuðinu fyrir utan Kaffi Vest ásamt systur sinni, Elsu Maríu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JÚ, ÞAÐ ER ERFITT EN
BARA Í FIMM MÍNÚTUR
ÞVÍ ÞAÐ ER LÍKA ROSA-
LEGA FRELSANDI.
Hvað á að gera um helgina?
SKOÐAÐU
Ragnar Kjartansson heldur fyrstu safn-
sýningu sína á heimavelli í Hafnar-
húsinu eftir sigurför á erlendri grund
á undanförnum árum. Sýningin ber
titilinn Guð, hvað mér líður illa og
endurspeglar óð Ragnars til listarinnar
í allri sinni dýrð, til tónlistar, leikhúss,
kvikmynda, bókmennta og– að sjálfsögðu–
myndlistar. Hylling listamannsins birtist í völdum verkum,
frá árinu 2004 til dagsins í dag.
LESTU
Litla bakaríið við Strandgötu eftir Jenny Colgan
er hugljúf ástarsaga um líf Pollyar Waterford.
Fyrirtæki hennar er gjaldþrota, fína íbúðin horfin
undir hamarinn og kærastinn fluttur heim til
mömmu. Sárblönk neyðist Polly til að flytja í
hrörlegt hús í litlu sjávarþorpi í Cornwall. Til að
gleyma sorgum sínum hellir hún sér út í það
sem veitir henni mesta ánægju í lífinu: að baka
brauð. Litla bakaríið við Strandgötu er alþjóðleg
metsölubók sem hefur komið út í 15 löndum.
HLÆÐU
Ari Eldjárn hefur fengið einn
fremsta uppistandara Finnlands,
Ismo Leikola, til liðs við sig og
munu þeir setja saman sann-
kallaða grínveislu í Tjarnarbíói.
Sýningin er öll á ensku og uppselt
er á sýningu þeirra á laugardaginn
en aukasýningu hefur verið bætt
við og verður hún á sunnudaginn í
Tjarnarbíói klukkan 20.00
2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN