Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.07.2017, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 22.07.2017, Qupperneq 20
Ég vonaði það. Átti kannski ekki von á því en vonaðist eftir því sem er alls ekki sami hluturinn,“ segir Gunnar Helgason um velgengni barna- bókanna sinna en um þessar mundir standa yfir tökur á kvikmynd eftir Víti í Vestmannaeyjum í leikstjórn Braga Þórs Hinrikssonar en framleið- andi er Saga Film. „Ég byrjaði á því að skrifa Gogga og Grjóna sem kom út 1992 og svo koma tvær bækur í kjölfarið áður en ég fór til útlanda að vinna. Var mikið í því í nokkur ár en fór svo að vinna í Latabæ hérna heima og þá sá ég þungann í þessu. Sá þá í fyrsta skipti fjöldann allan af fólki sem tók barnaefni alvarlega. Þarna var ekki litið niður á barna- efni. Það var enginn að spyrja, hve- nær ætlarðu að hætta í Stundinni okkar? Heldur var spurningin: Hve- nær ætlarðu að koma með næstu barnabók? Ætlarðu ekki að byrja að skrifa aftur? Þarna var barnaefni alvarlegt mál, alvöru bransi og mér leið vel í þessum bransa. Það var engin tilviljun að ég fór í Stundina okkar, tuttugu og fimm ára, á þeim aldri þegar allir leikarar á Íslandi vilja verða kyntákn. Fólki fannst þetta algjör brandari að ég væri að fara í þetta og það smitaðist auðvitað á okkur Felix sem vildum fyrir vikið gjarnan gera eitthvað annað í lífinu en að vera barnastjörnur. En á síð- ustu sex til sjö árum hefur viðhorfið breyst og maður áttað sig á því að þetta er flottur, alvöru bransi. Núnar er ég að gera bíómynd með frábæru og flinku fólki og allir krakkar eru að spyrja mig hvenær hún komi í bíó og svona til að svara þeim þá er það um næstu páska og ég hlakka geðveikt mikið til.“ Fyrir strákana mína Gunnar segir að þegar hann hafi byrjað skrifa fótboltabækurnar hafi þetta allt breyst. „Fyrsta bókin í þeim flokki hitti strax beint í mark, hitti lesandann, gekk mjög vel. Þær fjalla um ákveðinn raunveruleika og for- sendan var að mig langaði til þess að skrifa fyrir stráka, einfaldlega vegna þess að mér fannst vanta bækur fyrir strákana mína en ég á enga stelpu. Þeir nenntu ekkert að lesa, fannst ekkert nógu skemmtilegt og spenn- andi og ég var alltaf að spyrja þá að því hvað þeir vildu lesa. Mér fannst þetta alveg hrikalegt, eldri strákurinn minn hætti að lesa ellefu ára, og ég vildi skrifa eitthvað til þess að ná til þeirra. Það eina sem ég fékk út úr þeim var að þeir vildu lesa eitthvað um fótbolta og einu bækurnar sem ég mundi eftir voru Hæðargarðs- bækurnar sem ég las, komu út þrjár í sex bóka seríu, ég er enn þá með ör á sálinni, að vita ekki hvernig þetta endaði,“ segir Gunnar og skellihlær sínum ráma og smitandi hlátri. „Þessi bókaflokkur gerist í Svíþjóð árið nítján hundruð fimmtíu og eitt- hvað og aðalgæjarnir brunuðu um á skellinöðrum og fengu sér kók og sígó á æfingu og jafnvel léttöl á eftir. Ekki alveg málið. Þannig að ég varð bara að skrifa þetta sjálfur og þetta hitti í mark. Svo kom bara í ljós að það var fullt af stelpum líka að lesa þessar bækur og þá var varð ég að bregðast við því og skrifaði Rósu inn í Aukaspyrnu á Akureyri og hef gefið henni sífellt meira vægi síðan þá. Í rauninni finnst mér ég skulda stelpum að skrifa fótboltabók fyrir þær sem gerist á Símamótinu eða Siglufirði. Ég var bara búinn að ákveða að þetta væri komið gott af fótboltabókum en ef myndin gengur vel og svona þá er aldrei að vita, það væri gaman að gera eitthvað fyrir stelpurnar, því þetta markmið að skrifa fyrir stráka er að baki. Núna er ég að skrifa fyrir bæði stráka og stelpur en það er allt inni í myndinni því höfundurinn er lifandi,“ segir Gunnar og glottir prakk aralega. Leiðin fram á við er að setja börnin alltaf í öndvegi Gunnar Helgason, barnabókahöfundur og leikari, hefur framleitt efni fyrir börn í áraraðir og hann er með sterkar skoðanir á mál- efnum barna hvort sem varðar listir eða önnur mál. Gunnar segir að við eigum að hafa hátt börnum til varnar og samfélaginu til góðs. Gunnar Helgason á góðri stundu með strákunum sem leika í Víti í Vestmannaeyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Aldrei verið stelpa Starf rithöfundarins er oft talið afar einmanalegt, jafnvel svo að það reynist sumum um megn, en Gunn- ar segir að hann hafi sínar aðferðir við að halda sönsum í þessu. „Í fyrsta lagi þá er ákaflega mikill krakki í mér en auðvitað er ég líka orðinn gamall kall. Ég man þó æskuna ákaflega vel og þá ekki síst ákveðnar tilfinningar. Mér fannst fullorðnir oft vera ákaflega ósanngjarnir og sagði oft við sjálfan mig: Þegar ég er orðinn stór þá ætla ég að muna þetta. Muna hvernig mér leið og vera ekki ósanngjarn þegar ég verð stór,“ segir Gunnar og leikur pirrað, stórt barn með tilþrifum. „Þessi andartök sem ég ætlaði mér að muna virðast hafa fest í minninu. Svo er ég auðvitað tvíburi, þannig að ég er með sjónminni líka yfir atburði sem voru að gerast fyrir framan mig, og ég veit ekki hvort það var ég eða Ási því við lítum alveg eins út. Þannig að þá þurfum við að spyrja mömmu hver gerði hvað, en hún man það ekkert. Nína systir man þetta og er með þetta allt á hreinu.“ Varðandi ritstörfin segir Gunn- ar að mikilvægur hluti af ferlinu hjá honum sé að hann taki aragrúa við- tala. „Í undirbúningnum að hverri bók þá tek ég eins mikið af við- tölum og ég get og það hjálpar alveg rosalega. Ég tek viðtöl við börn og fólk sem hefur verið í aðstæðum á barnsaldri sem eru sambærilegar við það sem ég er að skrifa um og þetta hjálpar mér óendanlega mikið. Þetta er eins og vítamín fyrir mig sem höf- und. Núna fyrir Ömmu best, sem kemur út í október, þá hitti ég stelpu á Júróvisjónkvöldinu í Laugardals- höll. Hún heitir Guðrún Nanna, er í hjólastól og algjör gella. Ég var að leikstýra þessu kvöldi, sé að henni er hleypt inn á undan, er í smá pásu sem ég nýtti til þess að fara til hennar og kynna mig og biðja hana um að hitta mig fljótlega. Hún var til í það og hún og kærastinn sögðu mér svo ofboðs- lega mikið sem nýttist mér svo vel við bókina, eitthvað sem ég hefði aldrei áttað mig á sjálfur því ég hef aldrei verið í hjólastól og ég hef aldrei verið stelpa.“ Þurfum að skrifa fokking … Talið berst að mikilvægi barnabóka fyrir samfélagið og Gunnar segir okkur þurfa að spyrja mikilvægra spurninga og þora að svara þeim. „Þurfum við að gera eitthvað fyrir íslenskuna? Þurfum við að gera eitt- hvað fyrir menntum og læsi? Þurfum við öll að kunna að lesa? Það er talað mikið um læsi og í hverri einustu viku frá áramótum hefur einhver stjórn- málamaður komið fram og talað um vanda íslenskunnar og læsis en enginn þeirra hefur sagt eitt einasta orð um barnabækur. Hvernig aukum við læsi hjá börnum? Með því að láta þau hafa eitthvað skemmtilegt að lesa. Það er ekkert flóknara en það. En eng- inn barnabókahöfundur, kannski tveir í besta falli, geta lifað af því að skrifa barnabækur á Íslandi. En þá þurfa viðkomandi að sætta sig við að vera láglaunamenn og ég sætti mig ekki við það þannig að ég vinn með þessu.“ Nú er Gunnari greini- lega orðið mikið niðri fyrir. „Hvít- bókin kom út í fyrra án þess að þar sé minnst einu orði á barnabækur. Í lestrarátaki menntamálaráðu- neytisins er ekki minnst á þetta. En núna held ég að það sé að verða hugarfarsbreyting. Í vetur endur- lífguðum við samtök ungmenna- og barnabókahöfunda þar sem ég bauð mig fram sem formann, hlaut kosn- ingu og sit með frábærri stjórn. Við erum að undirbúa málþing um læsi, menntun og þá staðreynd að barna- bókin er undirstaða menntunar í þessu landi. Margrét Tryggvadóttir er búin að rannsaka mikið stöðu og mikilvægi barnabóka og málþingið sem verður haldið þann 4. október verður tileinkað þessu. Bókmennta- borgin ætlar að koma að þessu með okkur og við erum búin að fara á fund með Menntamálastofnum og þar er opnun því þau ætla að endurhugsa allt sitt efni varðandi læsi alveg frá grunni. Menntamálaráðherra ætlar að koma og vonandi getum við endað þetta málþing með því að taka einhverjar ákvarðanir, það er svona okkar draumur í stjórninni. Ákvarð- anir á borð við þá að barnabækur sem koma út á Íslandi séu keyptar inn á bókasöfnin. Í Noregi er það t.d. þannig að þeir líta á norskuna sem örtungumál sem sé í vörn og þess vegna kaupa þeir 1.500 eintök af hverri einustu barnabók sem er ekki drasl. Að auki fá barnabókahöfundar alltaf rithöfundalaun. Hér hefur ↣ HVÍTBÓKIN KOM ÚT Í FYRRA ÁN ÞESS AÐ ÞAR SÉ MINNST EINU ORÐI Á BARNABÆKUR. Í LESTRARÁTAKI MENNTA- MÁLARÁÐUNEYTISINS ER EKKI MINNST Á ÞETTA. EN NÚNA HELD ÉG AÐ ÞAÐ SÉ AÐ VERÐA HUGARFARSBREYTING. 2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.