Fréttablaðið - 22.07.2017, Qupperneq 26
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
Byggingastjóri
Óska eftir að ráða byggingastjóra, með haldgóða reynslu á
húsbyggingum.Verkefnið felst í daglegum rekstri bygginga-
svæðiss,amskiptum við byrgja og verktaka.
Áhugasamir sendi fyrirspurn á netfangið: krikar@simnet.is
Strandabyggð leitar að
öflugum starfsmanni
Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar
- framtíðarstarf
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf
fostöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar á Hólmavík.
Verkefni forstöðumanns felast m.a. í:
• Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum
og rekstri íþróttamiðstöðvar
• Að hafa umsjón með viðhaldi og rekstri tækja og búnaðar
• Faglegri forystu
• Að stuðla að framþróun íþróttamiðstöðvarinnar
• Ráðningum afleysingafólks og mannauðsstjórnun
Gerðar eru kröfur um að viðkomandi:
• Uppfylli skilyrði sem fram koma í reglugerð nr. 814/2010 um
hollustuhætti á sund- og baðstöðum og hafi hreint sakavottorð
• Búi yfir skipulags- og stjórnunarfærni
• Búi yfir góðri samskiptafærni og getu til að tjá sig í ræðu og
riti.
• Hafi til að bera frumkvæði og styrk til ákvarðanatöku
• Sé í starfi sínu hvetjandi og góð fyrirmynd
Starfinu fylgir töluverð samvinna og samskipti við skriftstofu
og aðrar stofnanir sveitarfélagsins, s.s. leik- og grunnskóla,
tómstundafulltrúa og áhaldahús sem og íþróttafélög og önnur
félög á staðnum.
Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst 2017 en umsóknir
og fyrirspurnir skulu berast til sveitarstjóra á netfangið
sveitarstjori@strandabyggd.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins
að Höfðagötu 3, 510 Hólmavík.
Um Íþróttamiðstöðina
Sveitarfélagið Strandabyggð á og rekur íþróttamiðstöð þar sem er
íþróttahús og sundlaug. Í íþróttamiðstöðinni fer fram íþrótta- og sund-
kennsla allra grunnskólabarna í Strandabyggð auk þess sem íþróttafélög
á staðnum fá þar aðstöðu fyrir starfsemi sína. Auk þess geta einstaklingar
og hópar leigt íþróttasalinn, farið í sund og heita potta, auk tækjasalar sem
einnig er á staðnum. Tjaldstæði sveitarfélagins eru rekin af íþrótta-
miðstöðinni og er töluverður rekstur þar í kring yfir sumartímann. Mikil
hefð er fyrir ýmissri íþróttaiðkun í Strandabyggð og hefur starf íþróttafélag-
anna eflst undanfarin ár og mikil sókn er í aðstöðu íþróttahússins. Við íþrótta-
miðstöðina starfa 2 starfmenn yfir vetrartímann en yfir sumarið eru starfs-
menn um 7. Sveitarfélagið er í vottunarferli EarthCheck ásamt Vestfjörðum
öllum og tekur starfsemin mið af því.
GER innflutningur, rekstraraðili
Húsgagnahallarinnar, Betra Bak og Dorma
óskar eftir bílstjórum og lagerstarfsmönnum,
skilyrði er að þeir séu 20 ára eða eldri.
Bílstjóra- og lagerstörf
100% VINNA
Hægt er að hefja störf strax.
Umsóknir ásamt upplýsingum
um umsækjanda sendist á netfangið
vinna@ger.is
Starfsferilskrá og meðmæli
eru æskileg fylgigögn.
STÖRF Í BOÐI
Við hjá Einingaverksmiðjunni óskum eftir
umsóknum um framtíðarstörf hjá fyrirtækinu.
Múrarar, smiðir, vélvirkjar og almennir
verkamenn eru hvattir til að sækja um.
Umsóknir óskast sendar á svanur@ev.is
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu í síma 414 8770
Einingaverkmiðjan var stofnuð árið 1994. Frá upphafi hefur fyrirtækið framleitt forsteyptar einingar til húsbygginga. Innan fyrir-
tækisins hefur skapast gríðarleg sérþekking og verkkunnátta í áranna rás. Við höfum á að skipa öflugum tækjabúnaði og afar fullkominni
verksmiðju. Frá árinu 2008 höfum við einnig rekið verksmiðju í Færeyjum eftir að hafa flutt forsteyptar einingar þangað í allmörg ár.
Múrarar, smiðir, vélvirkjar og almennir verkamenn
Laust er starf lögfræðings við vettvangsathuganir hjá Fjármálaeftirlitinu. Vettvangs- og verðbréfaeftirlitssvið
annast vettvangsathuganir og verðbréfamarkaðseftirlit þvert á þá markaði sem Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með.
Vettvangsteymi sviðsins aflar upplýsinga og gagna með sjálfstæðri skoðun á vettvangi þar sem athuganir geta
m.a. beinst að tilteknum afmörkuðum þáttum í starfsemi eftirlitsskyldra aðila eða heildarathugunum hjá einstökum
aðilum. Leitað er að starfsmanni sem býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur reynslu af störfum á fjármálamarkaði.
Starfssvið
• Undirbúningur og framkvæmd vettvangsathugana
• Greining gagna og skýrslugerð
• Verkefnastjórnun
• Þátttaka í innlendu samstarfi
• Þátttaka í innra starfi Fjármálaeftirlitsins
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
• Meistara- eða embættispróf í lögfræði
• Þekking á stjórnsýslurétti og löggjöf á fjármálamarkaði
• Reynsla af eftirlitsstörfum eða störfum tengdum fjármálamarkaði
• Rík greiningarhæfni
• Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
• Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum
• Frumkvæði, ábyrgð, sjálfstæði og metnaður í starfi
• Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku
LÖGFRÆÐINGUR Í
VETTVANGSATHUGUNUM
Frekari upplýsingar veita Sigurveig
Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Vettvangs- og verðbréfaeftirlitssviðs
(sigurveig@fme.is) og Árni Ragnar
Stefánsson, mannauðsstjóri
(arni@fme.is).
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir
að sækja um starfið á heimasíðu
Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is eða
á www.starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst
nk. Umsóknum um starfið þarf að fylgja
ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og hæfni viðkomandi til að gegna
starfinu rökstudd.
Vettvangs- og verðbréfa-
eftirlitssvið leitar að öflugum
lögfræðingi.
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
THE FINANCIAL SUPERVISORY AUTHORITY, ICELAND
Ef þú ert með rétta starfið
— erum við með réttu
manneskjuna
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.