Fréttablaðið - 22.07.2017, Page 28

Fréttablaðið - 22.07.2017, Page 28
 4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 365 er framsækið fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtæki sem veitir lifandi og upplýsandi þjónustu við landsmenn, 365 daga ársins. 365 starfar á öllum sviðum fjölmiðlunar; sjónvarps- og útvarpsrekstri, blaðaútgáfu og vefmiðlun, auk þess að bjóða fjarskiptaþjónustu, bæði net og farsíma. Félagið á auk þessa Midi.is sem annast miðasölu á mannfagnaði og viðburði, svo sem á leiksýningar, tónleika, kvikmyndasýningar, íþróttaleiki og fleira. Hjá 365 starfa um 400 manns. 365 óskar eftir góðu fólki FRÉTTAMAÐUR Á STÖÐ 2 VILTU SLÁST Í HÓP ÖFLUGUSTU FRÉTTAMANNA LANDSINS? Okkur vantar sjónvarpsfréttamann, í boði er áhugaverð vinna á skemmtilegum vinnustað í stöðugri sókn. Umsækjandi þarf: • að hafa góða þekkingu á íslensku samfélagi og brennandi áhuga á málefnum líðandi stundar • að hafa gott vald á íslenskri tungu • að vera fær í mannlegum samskiptum • að geta unnið undir álagi Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á: www.365.is undir „laus störf“. Nánari upplýsingar gefur Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 frétta, kristinth@365.is Umsóknarfrestur er til og með 25. júlí. Reynsla af fréttamennsku er skilyrði. VERKEFNISSTJÓRI Hlutverk Íslandsstofu er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Jafnframt veitir Íslandsstofa fyrirtækjum faglega aðstoð við sölu á vörum, þjónustu og þekkingu erlendis og styður við kynningu á íslenskri menningu ytra. Kröfur um menntun og hæfni Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfinu Þekking og reynsla af markaðssetningu á erlendum mörkuðum Reynsla af verkefnisstjórnun Reynsla úr ferðaþjónustu Framúrskarandi ensku- og íslensku kunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta kostur Menningarlæsi, frumkvæði, samskipta og samstarfshæfni, jákvæðni og hugmyndaauðgi Upplýsingar veitir Rannveig J. Haraldsdóttir, rannveig@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með miðvikudeginum 9. ágúst nk. á sviði ferðaþjónustu og skapandi greina Ábyrgð og helstu verkefni Erlent tengslastarf, ferðasýningar og viðburðir Viðburðastjórnun og samskipti vegna viðburða og sýninga erlendis Viðburðastjórnun og samskipti vegna markaðsverkefna innanlands Tengiliður við valda erlenda markaði Uppbygging erlends tengslanets og samskipti við erlenda söluaðila Yfirsýn yfir markaðsaðgerðir og þróun markaða Erlend almannatengsl og fjölmiðlaferðir Skipuleggja fjölmiðlaferðir og svörun fyrirspurna fjölmiðlamanna Samskipti við almannatengslaskrifstofur Vinnutími er eftir samkomulagi en er í samræmi við opnunartíma verslunarinnar. SPORTS DIRECT LEITAR AÐ STARFSFÓLKI Í FRAMTÍÐARSTÖRF. SÆKIÐ UM Á SPORTSDIRECT.RADA.IS Hæfniskröfur: Þjónustulund stundvísi skipulagni samskiptahæfni Reynsla í þjónustustörfum mikill kostur Æskilegt að einstaklingur hafi náð 17 ára aldri Kröftugum einstaklingum sem vilja vinna sig upp í starfi sem og ábyrgð. Sanngjörn laun og veglegir sölubónusar í boði fyrir öflugt fólk. Sæktu um á sportsdirect.rada.is eða í versluninni. Frekari upplýsingar veitir Ásta Sigrún Friðriksdóttir, verslunarstjóri (asta.fridriksdottir@sportsdirect.com) í síma 571-3010

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.