Fréttablaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 48
V onandi byrja íslenskir neytendur að spyrja sig spurninga þegar þeir versla hjá okkur. Ég vona að þeim finn-ist að þeir geti haft
áhrif. Sem einstaklingur getur manni
oft fundist maður lítill í þessum stóra
heimi, en allir eiga rödd og geta lagt
sitt af mörkum. Ef allir myndu taka
fyrstu skrefin í að kaupa vörur fram-
leiddar á sjálfbæran hátt myndi það
hafa mikil áhrif,“ segir Luisa Books,
framkvæmdastjóri sjálfbærnimála
hjá H&M á Íslandi og í Noregi.
Síðustu tvo áratugi hefur sænski
verslunarrisinn H&M lagt sitt af
mörkum til að þróa sjálfbærari
vörur og framleiðsluumhverfi, nú
hefur hann sett sér metnaðarfull
markmið varðandi sjálfbær efni og
vinnuskilyrði.
100% sjálfbært árið 2030
Fyrir árið 2030 hefur H&M sett sér
það markmið að öll efni verði úr
endurunnu eða sjálfbæru efni. „Núna
er hlutfallið 26 prósent en það var til
dæmis 11 prósent árið 2013.
Lykillinn að þessu er nýsköpun,“
segir Luisa. Það hefur gengið vel að
skipta út hefðbundinni bómull fyrir
sjálfbæra bómull. Árið 2012 var hlut-
fallið 13 prósent af allri bómull en
var orðið 43 prósent árið 2016. Stefnt
er að því að öll bómull verði sjálfbær
fyrir árið 2020 hjá fyrirtækinu.
Luisa bendir á að þar sem nýsköp-
unar sé krafist til að tryggja sjálf-
bærni sé áhersla á hana í raun til
þess fallin að skapa ný störf. „Það er
áætlað að sjálfbærni muni skapa 100
þúsund ný störf í framtíðinni.“
Það hefur þó ekki allt verið dans á
rósum í sjálfbærnimálum hjá fyrir-
tækinu og í gegnum árin hafa birst
skýrslur þar sem H&M er gagnrýnt.
The Guardian greindi síðast frá því
um miðjan júní að H&M væri meðal
þeirra fyrirtækja sem tengd væru
visk ósuverksmiðjum í Kína, Indó-
nesíu og Indlandi sem væru miklir
mengunarvaldar og hefðu heilsu-
spillandi áhrif. Ný skýrsla Changing
Markets Foundation sýndi fram á
þetta en benti einnig á að fyrirtækin
sem ættu í hlut væru að leita leiða til
að framleiða á ábyrgari hátt.
„John Ruggie, sem var skipaður til
að þróa leiðbeiningar Sameinuðu
þjóðanna fyrir viðskipti og mann-
réttindi sem við störfum eftir, sagði
að maður ætti ekki að dæmi fyrir-
tæki fyrir það sem gerist heldur hvað
þau geri svo og hvaða leiða þau leita
til að koma í veg fyrir að svona mál
komi upp aftur. Það eru ótrúlega
margar áskoranir í okkar starfi er
varða bæði mengun og félagslega
þætti. Við erum alltaf að vinna í
þessu,“ segir Luisa.
„Ég held að þessi grein hafi í raun
hampað okkur fyrir hvað við erum
gagnsæ þegar kemur að þessum
málum. Við viðurkennum að þetta
sé vandamál og hvernig við munum
taka á því. Við höfum virkilegar
áhyggjur af málum sem þessum. Við
erum að endurskoða hvaða efni við
notum og hvernig. Það er í raun gott
þegar svona skýrslur birtast. Við
getum þá talað um hvaða skref við
ætlum að taka fram á veginn,“ segir
Luisa. Hún bætir við að fyrirtækið sé
stöðugt að þróa betri efni til notk-
unar í framleiðslu.
Frá Afríku til H&M
Luisa er með meistaragráðu í þró-
unar fræði frá SOAS University of
London og starfaði í fjölda ára á vett-
vangi í Austur-Afríku. „Ég hef starfað
víða erlendis og meðal annars búið
í Austur-Afríku. Ég hef alltaf viljað
vinna við eitthvað þýðingarmikið
sem hefur áhrif á líf margra. Ég vildi
fyrst vinna á vettvangi þar sem ég
vann meðal annars með fórnar-
lömbum kynferðisofbeldis, og með
börnum og í heilbrigðismálum í
Tansaníu. Það kenndi mér mjög
mikið.“ Luisa starfaði meðal annars
hjá Save the Children, Care Inter-
national og UN Association.
„Mér finnst sjálfbærni svo áhuga-
verð af því að það er hægt að þróa
alls konar sniðugar stefnur en svo
þarf að hrinda þeim í framkvæmd á
vettvangi. Ég er núna að vinna fyrir
fyrirtæki sem hefur mannskap og
metnað til að gera mikið og stefnan
sem var kynnt í ár er mjög metn-
aðarfull. Við höfum stærðina til að
gera mikið og það er gaman að sjá
að fyrirtækið vill taka sjálfbærni-
stefnuna alla leið; ekki bara til að ýta
okkur áfram á því sviði heldur einnig
til að ýta við öllum iðnaðinum,“ segir
Luisa.
Hún hefur starfað hjá H&M síðan
árið 2014, fyrst sem sérfræðingur á
sviði mannréttinda fyrir alþjóða-
skrifstofu fyrirtækisins, svo hjá H&M
Foundation sem er styrktarsjóður
fyrirtækisins, í fyrra tók hún svo við
núverandi stöðu sinni. Luisa segist
spennt að starfa á Íslandi. „Hver
einasti markaður hefur sín einkenni
og að hafa áhrif á neytandann í átt
að sjálfbærni er mismunandi í hverju
landi.“
Sem fyrr segir hefur fyrirtækið náð
miklum árangri á sviðinu síðastliðin
árin. Í því samhengi má nefna að árið
2013 hóf fyrirtækið að taka á móti
gömlum flíkum til endurvinnslu.
Síðan þá hefur 39 þúsund tonnum af
flíkum verið skilað, eða sem nemur
190 milljónum stuttermabola. „Efnið
er notað í ýmislegt, meðal annars í
bílaiðnaðinum, við einangrun veggja
og í fyllingu í flugvélasæti. Einnig er
gallaefni endurunnið til að framleiða
nýjar flíkur úr því,“ segir Luisa.
Vilja hækka laun
H&M stefnir að því að tryggja að
raunhækkun verði á launum starfs-
manna verksmiðja fyrirtækisins í
löndum á borð við Bangladess og
Kambódíu. Sem stórfyrirtæki vill
H&M vinna að hækkun meðallauna
í þeim löndum og hafa forsvars-
menn þess starfað með Inter national
Labour Organisation (ILO) að því
markmiði.
Meðal annars hefur H&M unnið
að því að fræða starfsmenn verk-
smiðja og eigendur þeirra um rétt-
indi sín og ábyrgð. Luisa segir að
það geti verið snúið að hækka laun
starfsmanna verksmiðjanna þannig
að þeir geti lifað betra lífi þar sem oft
spyrjist það út og þá verði keðjuáhrif,
meðal annars sé leiga oft hækkuð hjá
einstaklingunum, og þá verði ekki af
raunhækkun launa. Þess vegna telur
hún mikla þörf á að allir vinni saman
að þessu markmiði, sér í lagi stjórn-
völd og ríkisstjórnir í framleiðslu-
löndunum.
Á að krefjast meira af risum
„Við erum stórt fyrirtæki, við höfum
tækifæri til að ákveða hver sé ábyrgð
vörumerkja á borð við okkar í
nútímanum. Okkar sýn er að leiða
breytinguna í átt að tísku sem fer í
hringi og er endurnýtanleg og á sama
tíma vera sanngjarnt fyrirtæki sem
leggur mikið upp úr jafnrétti,“ segir
Luisa. „Áður lögðum við áherslu á að
vera leiðandi í sjálfbærni, en núna
viljum við frekar leiða breytinguna
í iðnaðinum. Það á að krefjast meira
af okkur í þessum málum heldur en
minni fyrirtækjum.“
Á hverju ári eru framleidd ókjör af
fatnaði sem mengar töluvert. Blanda
af bómull og pólýester er í 85 pró-
sentum af öllu fataefni sem framleitt
er í heiminum. Það er áætlað að um
90 milljónir tonna af þeirri blöndu
séu framleidd árlega í fatnað. H&M
hefur reynt að draga úr því magni
sem fyrirtækið notar af þessu efni.
Meðal þess sem það hefur gert er að
framleiða árlega Conscious Exclusive
línuna.
„Þar er allt framleitt úr sjálfbærum
efnum. Á hverju ári þróum við nýtt
efni, í ár var það úr plastúrgangi og
nefnist bionic. Það var í fyrsta sinn
sem einhver framleiddi síðkjól úr því
efni. Við erum oft spurð hvers vegna
við framleiðum bara eina svona línu
á ári. Tæknin og nýsköpunin er því
miður ekki fyrir hendi til að fram-
leiða meira. Hins vegar notum við
þessa línu til að prufa efni sem við
nýtum oft seinna fyrir hefðbundnar
línur okkar og þá á stærri skala,“
segir Luisa.
Línan kom nýverið út og mun því
ekki koma á Íslandsmarkað fyrr en
næsta sumar þar sem fyrsta H&M-
búðin á Íslandi verður opnuð í ágúst.
Luisa segist spennt að sjá hvernig
Íslendingar bregðist við þessari línu.
„Við höfum lært það af reynslunni að
það er ekki nóg að línan sé sjálfbær,
hún þarf líka að vera flott og endur-
spegla tíðarandann.“
Spennt að sjá hegðun Íslendinga
Einnig hefur Luisa áhuga á að
sjá hversu opnir Íslendingar séu
almennt fyrir sjálfbærni. „Það mun
vera mitt starf á Íslandi að sjá hvaða
áhrif ég get haft á íslenska neytendur
til að hugsa meira um þetta. Það
verður gaman að meta áhugann hér
á landi.“
Nú þegar hefur H&M tekist að
uppfylla nokkur af sjálfbærnimark-
miðum sínum. Vörur eru til að
mynda fluttar með skipum en ekki
flugvélum til að draga úr kolefnis-
losun, einnig hefur fyrirtækið tak-
markað ýmislegt við vinnslu fatn-
aðarins, til dæmis er sandblástur á
gallaefnum bannaður.
Í hönnunarsamstarfi við tísku-
merkið Kenzo voru föt hönnuð
þannig að þau gátu hvort sem er
verið rétthverf eða ranghverf, en þá
var líklegra að fólk myndi nýta þau
betur að sögn Luisu.
Sólarorka næsta markmiðið
Hún segir að næsta markmið sé í
framleiðsluferlinu. Þar verður komið
upp sólhlöðum á þökum til að geta
nýtt sólarorku við framleiðslu. Luisa
er ánægð með afrakstur síðustu ára
en ljóst er að nóg verk er fyrir hönd-
um á sviði sjálfbærni hjá sænska
tískurisanum.
Allir geta ýtt undir
sjálfbærari tísku
H&M stefnir að því að nota einungis sjálfbær og endurunnin efni við
framleiðslu fatnaðar árið 2030. Áður hefur sænski verslunarrisinn
sætt nokkurri gagnrýni fyrir framleiðsluferli sitt, en vill gera betur.
Luisa Book hefur starfað hjá H&M frá árinu 2014 en vann áður á vettvangi í þróunarstarfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
EF ALLIR MYNDU TAKA
FYRSTU SKREFIN Í AÐ
KAUPA VÖRUR FRAM-
LEIDDAR Á SJÁLFBÆRAN
HÁTT MYNDI ÞAÐ HAFA
MIKIL ÁHRIF.
2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð