Fréttablaðið - 22.07.2017, Page 52

Fréttablaðið - 22.07.2017, Page 52
Við höfum aldrei hald-ið tónleika saman, bara tvær. Erum greinilega ekki með bisnissvitið í botni. En Gyðu bauðst að spila á Gljúfrasteini og hún spurði hvort ég vildi ekki vera með henni. Þá var kannski kominn tími til að stilla saman strengi – á hljóðfærum. Það þurfti tilefni til,“ segir Kristín Anna Valtýsdóttir sem ætlar að spila og syngja á tónleikum í húsi skáldsins á morgun klukkan 16 með tvíburasystur sinni Gyðu. „Dagskráin okkar fer út um víðan völl því við verðum bæði með okkar eigin tónsmíðar og annarra og spilum á selló, píanó og gítar og syngjum,“ upplýsir Gyða. Kristín Anna bætir um betur: „Við ætlum að spila klassísk verk sem okkur eru hugleikin, útsetningu Gyðu á þýsk- um ljóðasöng og nokkur þjóðlög, frá Írlandi og Katalóníu. Eitt gamalt íslenskt dægurlag sem ég pikkaði upp af plötu hjá ömmu minni flýtur með. Það er lag sem fáir þekkja en er eftir Hörð Torfa við ljóð eftir Stein Steinarr og heitir Sláðu hægt mitt hjarta. Ég tók það einhvern tíma upp á kasettu fyrir löngu og gaf út á fágætri sjötommu.“ Þriðja systirin, Ásthildur, kemur líka fram á Gljúfrasteini að sögn Gyðu. Skyldi hún vera farin að keppa við þær? „Nei, nei, Hún er miklu betri en við í öllu, enda eldri. Þess vegna verðum við tvíburarnir að leggja okkar krafta saman. Hún syngur smá með okkur. Annars er hún að klára lögfræði.“ Þær systur vöktu upphaflega athygli um síðustu aldamót sem hluti poppsveitarinnar Múm en Gyða sagði skilið við þá sveit árið 2002 og Kristín Anna 2006. Báðar héldu þær samt áfram í tónlistar- sköpun, hvor á sínum forsendum. Kristín fór að koma ein fram með tónlist sína eftir að hún fluttist til New York 2006 og kallaði sig þá Kríu Brekkan, gaf út nokkrar dular- fullar upptökur á 7" og geisladiski. Kveðst líka á tímabili hafa leiðst algjörlega út í gjörningalistform. „Leiðir skildi dálítið mikið þegar Gyða hætti í Múm og fór í sellónám- ið sitt. Ég flutti til Berlínar, svo fór hún til Rússlands og ég til Ameríku og hún til Þýskalands meðan ég var í Ameríku. Einhvern veginn tókst okkur að vera hvor í sinni heims- álfu í áratug,“ lýsir Kristín Anna. „Og ekkert í miklu sambandi,“ segir Gyða. „Við vorum svolítið lengi að stökkva á þessa samskiptamiðla, Skype og svoleiðis. Skrifuðum frekar bara bréf í pósti. Reyndar höfum við unnið tals- vert með Ragnari Kjartans. Hann leiddi okkur dálítið saman,“ heldur Gyða áfram og nefnir meðal annars verkin The Visitors og Forever Love. „Já,“ segir Kristín Anna. „Ragnar fékk okkur og tvíburabræðurna úr rokksveitinni The National til að semja tónlistina og fremja gjörning- inn Forever Love. Lékum í upphafi par sem gengur um sviðsmyndar- landslag og syngjur. Það verk byggði algjörlega á tvíbura-sviðstrikkum og því vorum við eins klædd og klippt. Það var innblásandi fyrir okkur systur að kynnast þeim tvíbura- bræðrum Aaron og Bryce og sjá styrkinn sem það gaf þeim að vera eins nánir og þeir eru. Ragnar tók tvíburaímyndina sem við Gyða vorum kannski ómeðvitað að reyna að brjótast undan og fékk okkur til að …“ „ … umfaðma hana og sjá fegurðina og húmorinn,“ botnar Gyða. Á Gljúfrasteini segir Gyða þær ætla að flytja eitt lag sem þau sömdu öll fimm saman, þær, strákarnir og Ragnar, við ljóð eftir Shelley og heitir Music. „Við höfum flutt það lag bæði í brúðkaupi og jarðarför, það er tær klassík.“ Nú eru þær systur einmitt að æfa fyrir Gljúfrasteinstónleikana, staddar á æskuheimilinu í Elliðaár- dalnum. Segjast hafa alist þar upp við spilamennsku og söng en þó hafi aldrei hvarflað að þeim í uppvext- inum að tónlistin gæti orðið atvinna þeirra. „En við fórum báðar í klass- ískt nám þegar við vorum börn, ég á píanó og Gyða á selló,“ segir Kristín Anna. „Ég hætti á píanói fyrir tvítugt og leit ekki við því í nokkur ár en Gyða fór alla leið, tók alveg tvöfalda mastersgráðu, eina fyrir mig líka.“ Tónlistarverkefnin hafa leitt þessar systur út um allan heim og þær vilja ekki lesa á prenti að þær séu „komnar til að vera“ á Íslandi. Gyða segist þó farin að vera meira á Íslandi en úti. „En er með svona þrjár tær í New York,“ segir hún. „Ég er líka búin að fatta að ég bara breyti til eftir því sem ég hef þörf fyrir. Núna þarf ég að vera meira hér heima en áður.“ Kristín Anna kveðst líka hafa verið á flakki út um allar trissur í áratug. „Ég hélt ég hefði enga sér- staka tengingu við Ísland en svo bara þurfti ég að koma heim og þreifa eftir rótunum. Það vildi svo til að það var á sama tíma og Gyða fann fyrir álíka þörf. Kannski er það partur af leitinni okkar að bindast aftur sterkari böndum.“ Kominn tími til að stilla saman strengi Tvíburasysturnar Gyða og Kristín Anna Valtýsdætur sem skutust upp á stjörnuhimininn um síðustu alda- mót með Múm munu koma í fyrsta skipti fram tvær saman á stofutónleikum á Gljúfrasteini á morgun. Gyða og Kristín Anna. Einhvern veginn tókst þeim að vera hvor í sinni heimsálfu í áratug og skrifa hvor annarri bara bréf í pósti en nú eru þær að treysta böndin og þreifa eftir rótunum á Íslandi. MYND/LAUFEY ELÍASDÓTTIR Systurnar við æfingu á sviðsverkinu Forever Love eftir Ragnar Kjartansson. Nýjustu viðfangsefni systranna Gyða gaf út plötuna Epicycle síð- asta vetur, þar sem hún útsetti og flutti ýmis verk úr tvö þúsund ára sögu skrifaðrar tónlistar eftir eigin höfði. Nú er hún að vinna í plötu með eigin verkum. Auk þess er hún að gera tón- list fyrir kvikmyndina Mikhel sem verður frumsýnd í haust. Kristín Anna gaf fyrir tveimur árum út spunaplötuna Howl. Brátt mun koma út plata með upptökum af píanósönglögum sem hún hefur samið síðan 2005 og verið að vinna að af og á í tvö ár. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is ÉG HÉLT ÉG HEFÐI ENGA SÉRSTAKA TENGINGU VIÐ ÍSLAND EN SVO BARA ÞURFTI ÉG AÐ KOMA HEIM OG ÞREIFA EFTIR RÓTUNUM. Kristín Anna VIÐ VORUM SVOLÍTIÐ LENGI AÐ STÖKKVA Á ÞESSA SAMSKIPTAMIÐLA, SKYPE OG SVOLEIÐIS. SKRIF- UÐUM FREKAR BARA BRÉF Í PÓSTI. Gyða 2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.