Fréttablaðið - 22.07.2017, Side 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
Um nýliðna helgi var haldin hátíð í Reykholti til að minn-ast þess að 70 ár eru liðin
síðan Norðmenn gáfu staðnum
styttu af Snorra. Mikið var um dýrðir.
Snorri Sturluson, frændi minn, er
merkasti Íslendingur allra tíma.
Hann bjargaði norrænni goða-
fræði frá glötun og skrifaði ævi-
sögu forföður okkar beggja, Egils
Skallagrímssonar. Heimskringla
skáldsins gerði Noregskonunga og
hetjudáðir þeirra ódauðlegar. Það
er kaldhæðni sögunnar að einmitt
norskur kóngur lét drepa Snorra
með aðstoð fyrrum tengdasonar
hans, Gissurar Þorvaldssonar, og
tveggja smáglæpona, Símonar
knúts og Árna beisks. Þetta morð
er mesti menningarglæpur á
Norðurlöndum. Enginn veit hvaða
meistaraverk Snorri hafði í koll-
inum þegar lið undirmálsmanna
sótti að honum.
Norðmenn hafa með tímanum
eignað sér Snorra. Meira að segja
höggmyndin í Reykholti er af norska
listamanninum Kristjáni Krogh
(f. 1852) en ekki af skáldinu. Sjálfs-
mynd Kroghs var fyrirmynd Wige-
lands sem gerði styttuna. Norðmenn
gáfu því myndastyttu af ferkönt-
uðum, nítjándualdar Norðmanni,
íklæddum kufli og skrítnum hattkúfi
með gamla símaskrá undir hendinni.
Enginn ættarsvipur er með styttunni
og ættmennum Snorra Sturlusonar
að mati færustu sérfræðinga.
Þótt liðnar séu tæpar átta aldir frá
glæpnum hafa Norðmenn ekki sýnt
neitt samviskubit. Fulltrúar norsku
krúnunnar koma saman á morð-
staðnum til að upphefja sjálfa sig.
Við afkomendur Snorra teljum að nú
sé nóg komið. Krafan er að styttunni
af Kristjáni Krogh verði skilað til
föðurhúsanna og stjórnmálasam-
bandi við Noreg verði slitið þangað
til Norðmenn og norska konungs-
fjölskyldan sýna tilhlýðilega iðrun og
biðjast opinberlega fyrirgefningar á
morðinu á Snorra Sturlusyni.
Reykholtshátíð
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ICELAND ENGIHJALLA,
VESTURBERGI,
ARNARBAKKA
OG GLÆSIBÆ
Allt það
helsta úr heimi
TÍSKUNNAR
á einum stað
GLAMOUR.IS
.is