Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 82
Hvaða Ingólf?“ – hnussaði úfinn fornleifafræðingur í sjónvarpsvið-tali fyrir mörgum árum. Fréttakona hafði mætt á vettvang uppgraftar í Kvosinni og spurt: „Eruð þið búin að finna Ingólf?“ Óþol fornleifafræðinga fyrir þeirri hvimleiðu en þó skiljanlegu tilhneigingu fólks að tengja forn- leifafundi við nafngreindar mann- eskjur er löngu þekkt. Ritheimildir um landnám Íslands virðast í meg- inatriðum í samræmi við rann- sóknir fornleifafræðinga og raun- vísindafólks að því marki að Ísland virðist hafa byggst býsna hratt í byrjun tíundu aldar af fólki ættuðu frá Noregi. Það segir þó ekkert um hvernig fyrstu skrefum landnámsins var háttað, hvort hér hafi verið ver- stöðvar eða jafnvel takmörkuð föst búseta um langt árabil áður en aðal- bylgja fólksflutninganna skall á. Því síður gefur það okkur tilefni til að taka bókstaflega frásagnir Land- námu um nafngreinda og stórætt- aða höfðingja sem fyrstir settust að í hverjum firði eða vík. Það er í sjálfu sér ekkert útilokað að maður að nafni Ingólfur hafi fyrstur sest að í víkinni í Kvosinni á seinni hluta níundu aldar, nytjað eyjarnar á Kollafirði og geymt skip sín og báta í grunnu tjörninni stein- snar frá bænum sem hann reisti sér. Þessi Ingólfur gæti vel hafa verið Arnarson eða Björnólfsson líkt og heimildunum greinir á um. Og það er vel líklegt að nokkrum kynslóðum síðar hafi afkomendur hans staðhæft, líklega í góðri trú, að langalangafi hafi verið fyrsti land- námsmaðurinn. Hafi Ingólfur ekki verið uppi í raun og veru var nauðsynlegt að búa hann til. Öll samfélög þurfa sína upprunasögn, nafngreindan einstakling (oftast stórættaðan karl) sem hægt er að kalla stofnanda eða ættföður. Landnám, stofnun borga eða fæðing þjóða verður helst að geta smættast niður í einn atburð, afmarkaðan í tíma og rúmi. Þess vegna er sagan um Ingólf, önd- vegissúlurnar og fund Reykjavíkur svo hentug. Þrælamorðinginn Ingólfur Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um landnámsmenn. Einhver þarf að vera fyrstur Sú hefð að ársetja landnám Ingólfs við 874 er frá ofanverðri nítjándu öld og var að sumu leyti fengin með lestri heimilda og að sumu leyti endurspeglaði hún praktíska nauðsyn. Íslendingar áttuðu sig á að það hlyti að fara að líða að þúsund ára afmæli byggðar í landinu og að slíku stórafmæli bæri að fagna. Talan 874 var engan veginn augljós út frá mótsagnakenndum heimildunum, en hentaði vel þar sem hún gaf rúman en þó ekki of langan tíma til að undirbúa veg- lega veislu. Öld síðar þótti lands- mönnum auðveldara að halda sig bara við þetta ártal en að þurfa að útskýra hvers vegna minna en hundrað ár liðu milli 1000 ára og 1100 ára afmælisins. 874 var heppilegt ártal og Ing- ólfur var heppilegur fyrsti land- námsmaður, enda kennum við börnunum okkar hvort tveggja í skóla – þrátt fyrir að kennslubækur slái varnagla um að hvort tveggja sé ágiskun og líklega ekki hár- nákvæmt. Eina alvarlega atlagan að stöðu Ingólfs sem hins táknræna fyrsta landnámsmanns tengist nafni ann- ars manns, sem jafnvel enn minna er vitað um. Hann hét Náttfari. Náttfara er aðeins getið í þremur línum í Landnámu. Hann er sagður hafa verið í för með Garðari Svav- arssyni, sænskum manni sem sigldi umhverfis Ísland og hafði vetur- setu við Skjálfandaflóa. Um vorið, þegar Garðar bjó sig til heimferðar „sleit frá honum mann á báti er hét Náttfari, ok þræl ok ambátt.“ Síðar í ritinu er getið um Náttfara í framhjáhlaupi, þar sem segir að landnámsmaðurinn Eyvindur Þor- steinsson hafi hrakið hann frá bæ sínum í Reykjadal í eyðilega vík yst við Skjálfandaflóa, Náttfaravík. Á grunni þessarar stuttu og slitr- óttu frásagnar ákváðu Húsvíkingar að efna til sinnar eigin landnáms- hátíðar sumarið 1970 og skákuðu þar með öðrum landsmönnum um fjögur ár. Hátíðin stóð í nokkra daga og hafði flest einkenni hefð- bundinna bæjarhátíða eins og þær hafa verið haldnar í seinni tíð. Þótti Norðanmönnum ekki leiðinlegt að ná að slá við liðinu fyrir sunnan með sinn ofmetna Ingólf. Ingólfur norðursins Náttfarahátíðin var ekki bara hentug átylla til að slá upp veislu. Mörgum nyrðra var full alvara með að rétta hlut síns manns í sögunni, líkt og sést af því hve hugleikinn Náttfari var norðlenskum rithöf- undum á fimmta, sjötta og sjöunda áratugnum. Árið 1941 skrifaði rit- höfundurinn og þingmaðurinn Bjartmar Guðmundsson ljóð- rænan sagnaþátt eða smásögu um landnámsmanninn Náttfara, Jón Sigurðsson frá Ystafelli ritaði heila bók um Náttfara og Garðar Svavars- son sem út kom árið 1968 og 1960 kom út skáldsagan Náttfari eftir Flateyinginn Theodór Friðriksson. Allir þurftu höfundarnir að geta í risastórar eyður í frásögn sinni. Þeir eiga það sameiginlegt að freistast til að gera Náttfara að ættgöfgum manni, að álykta að hann hljóti að hafa strokið frá Garðari í stað þess að hafa slitið óvart á brott og daðra við þá hugmynd að ástin hafi átt þar hlut að máli sem skýri ambáttina í strokubátnum. Lengst gengur Theodór í skáld- sögu sinni, þar sem hann gerir Náttfara að fóstbróður Garðars og hvatamanni að siglingunni til Hann varð fyrStur manna til að bera morðvoPn að Hjarta undirStéttarinnar. Íslands. Sá leiðangur hafi ekki verið nein slysni, heldur útpældur rannsóknarleiðangur að undirlagi móður Náttfara, sem hafi haft vitn- eskju sína um landið frá grískum sæförum. Á Íslandi leiðir flókinn ástarþríhyrningur til þess að Nátt- fari flýr með ambáttinni, en saman eiga þau fjölda dætra sem hver um sig giftist frægum landnáms- mönnum og urðu þannig ættmæð- ur göfugustu fjölskyldna landsins. Með slíkri hugarleikfimi reyndu höfundarnir ekki að rísa gegn hefð- bundinni upprunasögu Íslendinga, heldur aðeins að bæta Náttfara við hana og fella hann að staðalmynd- inni um landnámsmenn sem djarfa höfðingja, helst af höfðingjakyni. Áratugum áður hafði rithöfund- urinn og kommúnistinn Gunnar Benediktsson hins vegar ritað grein um Náttfara, fyrsta landnámsmann Íslands, þar sem hann gekk á hólm við hina höfðingjamiðuðu sögu- sýn. Tilefnið var 1000 ára afmæli Alþingis árið 1930. Hátíðarhöldin einkenndust af skefjalausri dýrkun á „gullöld Íslendinga“, þjóðveldis- tímanum. Íslenskir kommúnistar voru þeir einu sem ekki tóku þátt í þeim kór. Ekkert gleðiefni Í tímaritinu Rétti túlkaði Einar Olgeirsson stofnun Alþingis með sínum hætti: „930 var, – með stofn- setningu löggjafarsamkundunnar, Alþingi, – stjettarvald jarðeig- endanna, þrælaeigendanna og þrælamorðingjanna löghelgað, hnefavaldið gert að lagavaldi, hin rænda jörð að lögverndaðri eign, víkingarnir að drottnendum lands og þjóðar, ræningjarnir að ríkis- stjórum. … Þess ætlar nú íslensk yfirstjett að minnast.“ Grein Gunnars birtist í sama tölublaði Réttar. Að hans mati var Náttfari fátækur húskarl sem réðst til Íslandsfararinnar, ef til vill til að vera í námunda við ambáttina sem hann elskaði. Þegar færi gafst, létu þau sig hverfa frá húsbóndanum til að skapa sér nýtt líf, frjáls í hinu nýja landi. Að mati Gunnars var það lítil- sigld hégómagirnd íslenskra sagn- ritara sem olli því að Náttfari fékk ekki nafnbót fyrsta landnáms- mannsins: „Þem mun hafa þótt það ekki skammlaust fyrir þjóðina, að í svona veglegu sæti sögu hennar sæti óbrotinn húskarl með ambátt við hlið sér. Ingólfur var maðurinn, sem þjóðin var sæmd af að eiga í því sæti, – af ríkum ættum kominn, þrælaeigandi og þrælamorðingi, gripdeildarmaður, að stórum hluta af landinu, sem hann síðan úthlut- aði öðrum af ríkdómi náðar sinnar.“ Að einu leyti taldi Gunnar Bene- diktsson þó réttmætt að miða upphaf Íslandsbyggðar við búsetu Ingólfs og telja hann fyrsta land- námsmanninn. „Það er fyrst við komu hans, og undir eins við komu hans, að stéttabaráttan og stétta- kúgunin tekur sér aðsetur hér á Íslandi. Hann varð fyrstur manna til að bera morðvopn að hjarta undir- stéttarinnar, og kveða þannig niður frelsisbaráttu hennar. Hann gaf for- dæmið að því, að einstakir menn slægju eign sinni á heil landsvæði, til að úthluta síðan öðrum og þar með fá vald yfir bjargráðum þeirra og lífsskilyrðum. Það er hann, sem flytur hingað til lands það skipulag, sem hefir fært flestum Íslendingum þrældóminn að vöggugjöf, og örfá- um réttinn til að drottna yfir lífs- skilyrðum fjöldans.“ Niðurstaða Gunnars var sú að á sama hátt og með Ingólfi hafi saga hinnar alþjóðlegu kúgunar hafist á Íslandi, þá hafi með stroki Nátt- fara byrjað frelsisbarátta kúgaðrar alþýðu á Íslandi. Gat höfundurinn, sem fæddur var í Skaftafellssýslum, ekki stillt sig um að senda pillu á mölina með því að benda á að sú barátta hafi eins og aðrar félags- hreyfingar hafist í Þingeyjarsýslu. „En enn þann dag í dag lýtur íslensk alþýða dýpst og átakanlegast auð- valdi yfirstéttarinnar og kúgun hennar í landnámi þrælamorðingj- ans Ingólfs Arnarsonar.“ 2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r38 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.