Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 10
Komið,prófið ogsannfærist ! Fyrstu heyrnartækin sem taka eðlilegri heyrn fram í háværu umhverfi Siemens Pure binax eru fyrstu heyrnartæki veraldar sem gera þér kleift að heyra betur en fólk með eðlilega heyrn. Þessi nýju tæki nota háþróaða binaural tækni sem dregur sjálfvirkt fram einmitt það sem þú vilt heyra en síar jafnframt burt eða dempar þau óþarfa hljóð sem þú vilt ekki heyra. Þú getur einnig stefnumiðað hlustunarsviði tækjanna og þannig beint hlustun þinni að einmitt þeirri manneskju sem þú ræðir við hverju sinni. Þannig gera tækin þér auðveldara að halda uppi samræðum í háværu fjöl- menni. Rannsóknir sýna ennfremur að binax tækin greina tal betur í hávaða en fólk með eðlilega heyrn getur. Binax tækin tengjast einnig snjallsímanum þínum svo þú getur stjórnað styrk, hlustunar- kerfum og fleiru í gegnum símann. Siemens heyrnartækin Söluaðili á Íslandi: Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Háaleitisbraut 1, s:5813855, www.hti.is www.bestsound-technology.is Bólusetning gegn árlegri inflúensu Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli á því að skipulögð bólusetning gegn inflúensu hefst á heilsugæslustöðvum mánudaginn 26. september 2016. Bóluefnið myndar mótefni gegn þremur inflúensuveirustofnum þ.á m. svonefndri svínainflúensu. Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?  Öllum sem orðnir eru 60 ára  Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum  Heilbrigðisstarfsmönnum sem daglega annast fólk með aukna áhættu, sbr. ofantalið  Þunguðum konum Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða komugjald samkvæmt reglugerð nr. 1144 / 2015. Fyrirkomulag bólusetningar getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva. Vinsamlegast leitið upplýsinga á vef Heilsugæslunnar www.heilsugaeslan.is, eða hafið samband við hlutaðeigandi heilsugæslustöð. Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík s: 585 7800 Heilsugæslan Efra-Breiðholti , Reykjavík s: 513 1550 Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800 Heilsugæslan Fjörður, Hafnarfirði s: 540 9400 Heilsugæslan Garðabæ s: 520 1800 Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík s: 599 1300 Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600 Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500 Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík s: 585 2300 Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi s: 594 0400 Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík s: 585 2600 Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík s: 513 1500 Heilsugæslan Mosfellsumdæmi s: 510 0700 Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ s: 513 2100 Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 2600 Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300 Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900 Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er bent á sína heilsugæslustöð. Frekari upplýsingar er að finna á vef Heilsugæslunnar, www.heilsugaeslan.is Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is Reykjavík, 24. september 2016 Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Álfabakka 16, 109 Reykjavík sími 585 1300 www.heilsugaeslan.is StjórnSýSla Könnun starfsmanns Hornafjarðarbæjar leiddi í ljós að stofnanir sveitarfélagsins bjóða upp á kynhlutlaus salerni að undan- skildum félagsheimilum í sveitum. Samtökin ’78 hafa ekki vitneskju um að stofnanir sveitarfélags á Íslandi hafi áður boðið upp á kynhlutlaus salerni. Jón Kristján Rögnvaldsson, félags- málastjóri Hornafjarðar, segir að ungmennaráð bæjarins hafi borið upp erindi um merkingar á opin- berum salernum og í kjölfarið hafi starfsmaður kannað hvernig staðan væri í sveitarfélaginu. „Niðurstaðan var að allir skólar og byggingar sem við ráðum yfir nema eldri byggingar úti í sveitum bjóða upp á kynhlut- laus salerni. Það eru byggingar sem eru lítið í notkun og þarf að skoða samfara viðhaldi,“ segir Jón. Í eldri byggingu skólans eru eldri nemendur skólans og þar eru bæði merkt og ómerkt klósett. „Við vorum ekkert að stefna að því að vera fyrsta sveitarfélagið en við erum glöð að þetta sé svona,“ bætir Jón við. – bbh Kynhlutlaus klósett eru algeng í Hornafjarðarbæ reykjavík „Okkar skyldur eru gagn- vart verst setta og tekjulægsta hópn- um og við þurfum að eiga íbúðir fyrir þennan hóp. Það er númer eitt, tvö og þrjú en þessar tillögur eru alveg þess virði að skoða,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, um nýtt úrræði sem Kópavogsbær kynnti í fyrradag í félagslegu íbúða- kerfi bæjarins. „Það þarf hins vegar að rýna vel í það hvort það sé yfir- höfuð skynsamlegt að lána fé til kaupanna úr borgarsjóði.“ Úrræði Kópavogsbæjar felst í því að bærinn býður leigjendum félagslegra íbúða sem eru komnir yfir viðmiðun- artekjumörk að kaupa leiguíbúð sína, en hingað til hefur þurft að segja upp leigusamningi á slíkum tímamótum. Um leið býður bærinn þessum ein- staklingum upp á 15% verðtryggt lán úr bæjarsjóði til að auðvelda fjár- mögnun íbúðarkaupanna. Á móti er gert ráð fyrir að kaupandinn taki 80% lán hjá fjármálastofnun og leggi fram 5% eigið fé. Bæjarsjóðslánið er verð- tryggt og til 25 ára, en gert er ráð fyrir að það sé vaxta- og afborgunarlaust fyrstu 3-5 árin. „Þetta hefur verið rætt en við erum í vandræðum með að kaupa íbúðir,“ segir Ilmur um úrræðið. Hún bætir því við að það sé bagalegt að þurfa að segja upp leigusamningi við einstaklinga í félagslega kerfinu þegar hagur þeirra sé farinn að vænkast, en tekur þó fram að slíkt sé ekki algengt. Ilmur minnir á að ef opnað verði á þann möguleika að félagslegar íbúðir séu seldar með sama hætti og í Kópavogi þurfi Reykjavíkurborg engu að síður að eiga áfram íbúðir fyrir þá tekjulægstu. Þetta eigi sér- staklega við um litlar einstaklings- íbúðir. „Ef það væri hægt að kaupa fleiri íbúðir þá þætti mér þetta mjög eðlilegur framgangur, ekki síst ef aðstæður á húsnæðismarkaði breyt- ast,“ segir hún og ítrekar að meta þurfi vel hvort ráðlegt sé að lána fé úr borgarsjóði vegna þessa. Nú þegar hefur einn einstakl- ingur keypt íbúð í Kópavogi í gegn um nýja úrræðið. Samkvæmt upp- lýsingum frá Kópavogsbæ hafa fleiri íbúar sýnt úrræðinu áhuga. – hlh Eðlilegt ef hægt væri að kaupa nýjar íbúðir Kópavogsbær kynnti í vikunni nýtt úrræði sem gerir leigjendum yfir viðmið- unarmörkum í félagslegu íbúðakerfi bæjarins kleift að kaupa leiguíbúð sína. Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir að skoða þurfi málin vel. Bandaríkin Fjölmenn mótmæli voru í borginni Charlotte í fyrri- nótt þrátt fyrir útgöngubann, sem lögreglan gerði að vísu enga tilraun til að framfylgja. Mótmæli hafa verið þar alla daga frá því á þriðjudaginn, þegar svartur maður, Keith Lamont Scott, féll fyrir byssukúlu lögreglumanns. Lögreglan hefur fullyrt að hinn látni hafi verið vopnaður en fjöl- skylda hans mótmælir því, segir hann aðeins hafa verið með bók í hendi. Fjölskyldan krefst þess að lög- reglan birti opinberlega mynd- band, þar sem sjá má hvað gerðist. Lögreglan hefur neitað að verða við því en hefur leyft fjölskyldunni að skoða myndbandið. Lögmaður fjölskyldunnar segir ekki hægt að sjá á myndbandinu að Scott hafi verið vopnaður. Hann hafi virst hafa verið hinn rólegasti þegar hann varð fyrir skotinu. Lögreglan segir hins vegar að Scott hafi neitað að verða við fyrir- mælum lögreglunnar og því hafi það verið metið svo að hætta stafaði af honum. Á fimmtudaginn var lögreglu- kona í bænum Tulsa ákærð fyrir manndráp, en hún varð óvopn- uðum manni að bana þar í borg á föstudaginn var. – gb Mótmæli þrátt fyrir útgöngubann Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Frá miðborg Reykjavíkur. FRéttablaðið/andRi maRinó Þetta hefur verið rætt. Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðar- ráðs Reykjavíkur- borgar mótmælendur stóðu vaktina alla nóttina í borginni Charlotte í norður- Karólínu. noRdiCphotos/aFp 2 4 . S e p t e m B e r 2 0 1 6 l a U G a r d a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.