Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 4
Sigríður María
Egilsdóttir
frambjóðandi Viðreisnar
segir nýjustu tölur um
óútskýrðan launa
mun kynjanna
óásættanlegan
en munurinn er
10 prósent. Sig
ríður kveðst ekki
tilbúin að vinna
í heilan mánuð á ári
launalaust. „Mér finnst ég
bara meira virði en það,“
segir hún. Ráðast þurfi í
herferð vegna málsins. Það
er jafnframt mat Sigríðar
að nýtt Lánasjóðsfrumvarp
vegi alvarlega að jöfnuði í
landinu.
Stefán Már
Stefánsson
prófessor emeritus
við lagadeild HÍ
segir opinbera
hagsmunaskrán
ingu ekki síður
eiga við hand
hafa dómsvalds en
handhafa löggjafarvaldsins.
Þetta sé mikilvægt þar sem
dómarar beri ábyrgð á því
hvernig réttaröryggi kemur
fram út á við.
Lilja Katrín
Gunnarsdóttir
stofnandi vefsíð-
unnar blaka.is
grét gleðitárum
þegar forseti
Íslands, Guðni
Th. Jóhannesson,
mætti óvænt við lok
sólarhrings kökumaraþons
hennar til styrktar Krafti,
stuðningsfélagi fyrir ungt
fólk með krabbamein. Að
sögn Lilju söfnuðust um
400 þúsund krónur þennan
sólarhring.
Þrjú í fréttum
Launamunur,
hagsmunir og
kökumaraþon
Tölur vikunnar 18.09.2016 – 24.09.2016
var hækkunin á B-
vítamín sprautulyfi
í innkaupum SÁÁ
þegar eitt fyrirtæki
fékk einkaleyfi á
sölunni á Íslandi.
Verðið fór úr
525 krónum
á skammt í
rúmar 25
þúsund
krónur.
4.700%
heimsóttu Laugardalslaugina
fyrstu átta mánuði þessa
árs. Heildaraðsókn í laugina
hefur aukist um 43 þúsund frá
því í fyrra. Yfir tvær millj-
ónir heimsóttu sundlaugar á
höfuðborgarsvæðinu fyrstu
átta mánuði þessa árs.
544.089
slys og óhöpp þar
sem 19 slösuðust
urðu á gatnamótum
Grensásvegar og
Miklubrautar frá
2010 til 2014.
162 tonn af eldisfiski vilja sjókvíaeldis-fyrirtæki
framleiða
árlega. Nú eru
15 þúsund
tonn fram-
leidd af fiski á
ári.15
0.
00
0
mörk skoraði kvennalands-
liðið í knattspyrnu í undan-
keppni EM 2017 en fékk
aðeins tvö á sig. Stelpurnar
unnu sjö leiki af átta.
34
hótelherbergi áætlar
greiningar-
deild Arion
banka að
verði byggð
í Reykjavík
fram til
ársins 2020.
2.500
Samgöngur Isavia hyggst ekki
taka ákvörðun um úthlutun rútu
stæða til Sambands sveitarfélaga
á Suðurnesjum (SSS) á Keflavíkur
flugvelli vegna strætóferða fyrr en
nýtt umferðarskipulag Leifsstöðvar
liggur fyrir.
Þetta kemur fram í svari Isavia
við fyrirspurn Fréttablaðsins, en
stjórn sambandsins sendi formlega
beiðni til fyrirtækisins í lok maí þar
sem hún fór fram á að fá stæði við
brottfarar og komuinnganga flug
stöðvarinnar. Þar eru nú fyrirtækin
Kynnisferðir ehf. og Iceland Excurs
ions Allrahanda ehf. með rútustæði
á grunni samninga við Isavia sem
renna út í árslok.
Að sögn Berglindar Kristins
dóttur, framkvæmdastjóra SSS, hafa
óformlegar viðræður staðið yfir við
Isavia frá febrúar 2012 um málið, en
sambandið ber ábyrgð á skipulagi
almenningssamgangna á Suður
nesjum. Hún segir mikla hagsmuni
undir í málinu fyrir sveitarfélögin á
Suðurnesjum og er stjórnin sann
færð um að aðsókn í strætó muni
aukast ef vagnar geti stoppað við
inngang.
„Við vorum með einkaleyfi á
akstri frá Flugstöðinni til Reykja
víkur en þáverandi innanríkisráð
herra felldi þann hluta einhliða út
úr samningum á sínum tíma. Þessi
leið var hryggjarstykki samningsins
sem gerði okkur kleift að reka kerfið
sjálfbært,“ segir Berglind og bendir
á að uppsafnaður halli á rekstri þess
um síðustu áramót hafi numið 74
milljónum króna. Hún segir að þessi
upphæð muni falla á sveitarfélögin.
„Ef ekkert verður að gert gætum við
neyðst til að endurskoða alla þjón
ustuna. Það eru miklir hagsmunir í
húfi fyrir Suðurnesjamenn.“
Ólafur Kr. Ólafsson, varafor
maður SSS, segir ástandið óboð
legt, en núverandi stoppistöð er við
langtímabílastæði flugstöðvarinnar
nokkra tugi metra frá flugstöðinni.
„Frá sjónarhóli sveitarfélaganna
snýst þetta um að aðgangur að
almenningssamgöngum sé boð
legur á flugvallarsvæðinu og standi
jafnfætis öðrum samgöngum sem
boðið er upp á,“ segir Ólafur sem
bindur vonir við að vilji SSS nái fram
að ganga. „Um leið og við náum að
efla tekjustreymið þá náum við að
efla almenningssamgöngukerfið.
Þá minnkar það sem sveitarfélögin
þurfa að borga með almennings
samgöngunum og þar með aukast
líkurnar á að við getum bætt þjón
ustuna við íbúana,“ segir hann.
Isavia hyggst efna til valferlis um
rútustæði við flugstöðina á næst
unni, en stefnt er að því að ljúka
ferlinu eftir áramót. Nákvæm
tímasetning verður ákveðin þegar
hönnun á nýju umferðarskipulagi
við flugstöðina liggur fyrir.
hlh@frettabladid.is
Árangurslausar viðræður um
strætóskýli við Leifsstöð
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum vill að strætisvagnar á vegum sambandsins fái rútustæði við inn-
ganga Leifsstöðvar. Forsvarsmenn sambandsins segja um mikið hagsmunamál sveitarfélaganna að ræða.
Forsvarsmenn Isavia hyggjast efna til valferlis í stæðin þegar nýtt umferðarskipulag er tilbúið.
Núverandi stoppistöð strætisvagna á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum er við langtímabílastæðin. Ganga þarf
dágóðan spöl til þess að komast þangað. Forsvarsmenn sveitarfélaganna vilja breytingar. Fréttablaðið/Pjetur
aTvinnulíf Páll Erland er hættur
sem framkvæmdastjóri Orku nátt
úrunnar.
Páll kynnti ákvörðun sína um
að hætta í vikunni. Ástæða upp
sagnarinnar er mismunandi sýn
Páls og stjórnar ON á mikilvæg
viðfangsefni í rekstri fyrirtækis
ins og hvernig eigi að takast á við
þau, að því er Bjarni Bjarnason,
stjórnarformaður ON, segir í bréfi
til samstarfsfólks. Bjarni er for
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur sem
er móðurfélag ON.
Þá kemur fram hjá Bjarna að
Hildigunnur H. Thorsteinsson,
framkvæmdastjóri Þróunar hjá
Orkuveitu Reykjavíkur, hafi tekið
við starfi Páls tímabundið. Fram
kvæmdastjórastaðan verði auglýst á
næstu dögum. Páll verður fyrirtæk
inu innan handar næstu mánuði.
Páll sem tók við sem fram
kvæmdastjóri ON í byrjun árs 2014
hafði starfað fyrir Orkuveituna í
fimmtán ár. Bjarni segir Pál meðal
annars hafa unnið að krefjandi
verkefnum á afar erfiðum tímum.
ON framleiðir og selur rafmagn.
Hildigunnur hefur verið fram
kvæmdastjóri Þróunarsviðs OR frá
því í ársbyrjun 2013. – gar
Ágreiningur við stjórn olli uppsögn
Páll Erland hefur verið forstjóri Orku náttúrunnar frá því í ársbyrjun 2014.
Fréttablaðið/GVa
Þessi leið var
hryggjarstykki
samningsins.
Berglind Krist-
insdóttir, fram-
kvæmdastjóri SSS
Um leið og við
náum að efla
tekjustreymið þá náum við
að efla almenn-
ingssam-
göngukerfið.
Ólafur Kr. Ólafsson,
varaformaður SSS
2 4 . S e p T e m b e r 2 0 1 6 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð