Fréttablaðið - 26.02.2014, Blaðsíða 4
26. febrúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LEIÐRÉTT
Áætlað er að samanlagt 100 þúsund
ferðamenn skoði náttúruperlur í landi
Reykjahlíðar árlega en ekki 300 þúsund
eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær.
VELFERÐARMÁL Eftir dvöl í
Kvennaathvarfinu fóru 27 prósent
kvennanna aftur heim í óbreytt-
ar aðstæður, samkvæmt nýrri
skýrslu frá Kvennaathvarfinu
fyrir árið 2013.
„Það vantar brú fyrir þessar
konur, eitthvað sem styður þær á
þessu erfiða tímabili,“ segir Sig-
þrúður Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastýra Samtaka um kvenna-
athvarf. „Þær sækja um skilnað en
mennirnir geta dregið það ferli á
langinn. Á meðan fá þær engan
stuðning í kerfinu og eru í miklu
óvissuástandi. Þá gefast þær oft
upp og fara aftur heim.“
Fleiri fóru þó heim í óbreytt
ástand árið 2012, eða 34 prósent.
„Það kemur mér ánægjulega á
óvart að konum sem fara aftur
heim til ofbeldismannsins fer
fækkandi. Það eru góðu fréttirn-
ar,“ segir Sigþrúður.
Athygli vekur að 51 pró-
sent kvennanna nefnir líkam-
legt ofbeldi sem ástæðu komu í
Kvennaathvarfið. Hærra hlutfall,
eða 64 prósent kvennanna, segj-
ast hafa hlotið líkamlega áverka í
sambandinu.
„Konurnar búa með og eiga í
nánum samskiptum við ofbeldis-
manninn sem veldur því að hann
yfirtekur skilgreiningarnar í sam-
bandinu. Hann kannski hrindir
konunni og hún fær mar, en hann
skilgreinir fyrir þau að þetta hafi
ekki verið ofbeldi og hans skýring-
ar gilda.“
Sigþrúður segir þó opnari
umræðu um ofbeldi, og þá sérstak-
lega kynferðislegt ofbeldi, hjálpa
konunum að skilgreina og segja
frá ofbeldi. Til dæmis nefni fleiri
konur en áður kynferðislegt ofbeldi
sem ástæðu komu í athvarfið.
„Það þýðir ekki endilega að fleiri
verði fyrir kynferðislegu ofbeldi,
þær segja bara frekar frá því, sem
er gott.“ erlabjorg@frettabladid.is
Tæpur þriðjungur fer aftur
heim til ofbeldismannsins
Í nýrri skýrslu frá Kvennaathvarfinu kemur fram að íbúum athvarfsins hefur fjölgað milli ára. Framkvæmda-
stýra athvarfsins segir jákvæðu fréttirnar vera að færri konur fari aftur heim í óbreytt ástand en árið 2012.
ÍBÚAR KVENNAATHVARFSINS ÁRIÐ 2013
Ástæður komu í Kvennaathvarfið ➜
Börnin voru frá því að vera
nýfædd til 16 ára gömul
37 ár er
meðalaldur
kvennanna
41 ár er
meðalaldur
karlanna
27% kvennanna fóru heim í óbreyttar aðstæður
en 18% fóru heim í breyttar aðstæður
Ekki er vitað um afdrif 15% kvennanna
15% fóru í
tímabundna dvöl til
ættingja eða vina
30% fóru í annað
athvarf, á sjúkra-
stofnun eða úr landi
13% fóru
í nýtt
húsnæði
46% ofbeldismanna voru eiginmenn eða sambýlismenn
18% voru fyrrverandi eiginmenn eða sambýlismenn
16% voru
fyrrverandi kærastar
6% voru
kærastar
125
konur og
í Kvennaathvarfinu
Íbúum fjölgaði um frá árinu 2012
97
börn dvöldu
22
íbúar voru
að meðal-
tali í athvarfinu á degi
hverjum
11
17
dagar er meðaldvöl
hjá konum
90%
andlegt ofbeldi
14%
morðhótun
18%
ofbeldi gegn
börnum
51%
líkamlegt ofbeldi
9%
höfðu kært ofbeldi
til lögreglu
16%
ofsóknir
fyrrverandi maka
21%
voru með áverka
við komu
25%
kynferðislegt
ofbeldi
Þá gefast
þær oft upp
og fara aftur
heim.“
Sigþrúður
Guðmunds-
dóttir, fram-
kvæmdastýra Samtaka um
kvennaathvarf.
Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stýra Samtaka um kvennaathvarf
185 býli höfðu tekjur af ferðaþjónustu árið
2010 meðfram landbúnaði
eða 7,1%. Önnur 1,2% framleiddu
græna orku og fullvinnslu var
að finna á 2,4% íslenskra býla.
Skógrækt var stunduð á 3,3% býla.
ATVINNUMÁL
Þungar áhyggjur af Hrísey
Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir þungum
áhyggjum af ótryggu atvinnuástandi
í Hrísey eftir að Útgerðarfélagið
Hvammur sagði upp öllu starfsfólki.
Mikilvægt sé að grípa til bráðaaðgerða
og afar brýnt sé að halda áfram
markvissri vinnu til að tryggja blómlegt
mannlíf í eynni til lengri tíma.
Leiðir til að fjölga konum á fag-
sviðum þar sem karlar hafa verið
í meirihluta verða ræddar á fundi
í dag.
Þar mun meðal annars Hilmar
Bragi Janusson, forseti verkfræði-
og náttúruvísindasviðs Háskóla
Íslands, fjalla um hvað virki best
til að jafna kynjahlutfall í verk-
fræði og náttúruvísindum.
„Einhverjir hafa haldið því
fram, að ekki eigi að grípa inn í
því það geti minnkað hæfni innan
sviðsins. En það er svo röng hugs-
un. Ójafnt kynjahlutfall í fagi,
sviði eða starfi þýðir að ekki er
aðgangur að öllum þeim hæfi-
leikum sem því ætti að standa til
boða,“ segir Hilmar Bragi.
Hann segir að þetta gerist ekki af
sjálfu sér. „Það sem þarf að gera er
að breyta ásýnd og innihaldi náms-
ins. Þá eykst fjölbreytni nemenda og
þar af leiðandi kynjahlutföllin.“
Aðgerðahópur stjórnvalda og
aðila vinnumarkaðarins um launa-
jafnrétti kynja stendur fyrir fund-
inum. - ebg
Ræða leiðir til að fjölga konum á fagsviðum með körlum í meirihluta:
Konur í hefðbundin karlastörf
TÉKKLAND Dómur tveggja
íslenskra stúlkna í Tékklandi
hefur verið styttur í fjögur og
hálft ár. Upphaflega fengu þær sjö
og hálfs árs dóm fyrir fíkniefna-
smygl, en áfrýjuðu dómnum og nú
er endanleg niðurstaða fengin.
„Dómarinn tók tillit til þess
hversu ungar þær eru og að þær
hefðu ekki gert sér grein fyrir
því hvað þær voru að gera. Þessi
dómari var mun tillitssamari en
fyrri dómari,“ segir Þórir Gunn-
arsson, aðalræðismaður Íslands í
Tékklandi.
Þær Aðalsteina Líf Kjartans-
dóttir og Gunnhildur Svava Guð-
mundsdóttir, sem eru 20 ára,
verða hér eftir í sama fangelsi.
„Nú fara þær í að sækja um flutn-
ing til Íslands og það þurfa þær
að gera sjálfar,“ segir Þórir.
- sks
Dómur styttur í Tékklandi:
Tillit var tekið
til ungs aldurs
HILMAR BRAGI JANUSSON segir að
breyta þurfi ásýnd og innihaldi náms-
ins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Föstudagur
Víða hægur vindur, síst NV-til.
LÍFSEIG NA-ÁTT Í dag og næstu daga ríkir NA-átt, hvassast verður norðvestantil en
á morgun og föstudag verður yfirleitt hægur vindur í öðrum landshlutum. Yfirleitt
úrkomulítið sunnan- og vestantil en einhver úrkoma norðan- og austanlands.
0°
11
m/s
1°
9
m/s
3°
5
m/s
6°
8
m/s
Á morgun
10-15 m/s NV-til, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
2°
-1°
3°
-1°
0°
Alicante
Aþena
Basel
19°
14°
7°
Berlín
Billund
Frankfurt
12°
10°
11°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
10°
7°
7°
Las Palmas
London
Mallorca
21°
11°
17°
New York
Orlando
Ósló
-2°
23°
3°
París
San Francisco
Stokkhólmur
12°
15°
4°
4°
3
m/s
6°
8
m/s
3°
5
m/s
3°
5
m/s
2°
4
m/s
3°
9
m/s
-3°
6
m/s
5°
1°
5°
4°
3°
SKIPULAGSMÁL „Þetta er mikill
og stór áfangi þar sem það hefur
verið deilt um ýmislegt. Við
höfum unnið þvert á flokka en
ég held að það sé breið samstaða
á bakvið niðurstöðuna,“ segir
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, um nýtt aðalskipu-
lag fyrir Reykjavík til ársins
2030. Áhersla er á breytta ásýnd.
„Þetta er mjög græn stefna. Við
viljum hafa matjurtagarða og
kaupmanninn á horninu í öllum
hverfum,“ segir Dagur. - þþ
Nýtt aðalskipulag staðfest:
Öll hverfi með
sína kaupmenn
FRÁ PRAG Stúlkurnar voru handteknar
vegna fíkniefnasmygls. NORDICPHOTOS/AFP
Gefum 80.000 kr.
af eldsneyti dagana
25-28. febrúar!
www.lodur.is - Sími 544 4540
Vertu vinur okkar á Facebook
og þú gætir unnið!