Fréttablaðið - 26.02.2014, Page 14
26. febrúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
VALDIMAR SÆVAR HALLDÓRSSON
skipstjóri,
Eyjaholti 3, Garði,
varð bráðkvaddur laugardaginn 15. febrúar. Útför hans fer fram
frá Útskálakirkju fimmtudaginn 27. febrúar kl. 15.00. Blóm og
kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Slysavarnafélag Íslands.
Ingibjörg Bragadóttir
Halldór Kristinn Valdimarsson Jocelyn Doroon
Helga Birna Valdimarsdóttir
Unnur Katrín Valdimarsdóttir
Ingunn Rós Valdimarsdóttir Arnmundur Sigurðsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
BOGEY KRISTÍN
DAGBJARTSDÓTTIR
er látin. Jarðarför hennar mun fara fram í kyrrþey.
Sigurður Kr. Sigurðsson Erla Möller
Margrét Guðlaug Sigurðardóttir Þórir Steingrímsson
Óttarr Þór Sigurðsson Guðrún Tinna Valdimarsdóttir
Arnþrúður Dögg Sigurðardóttir Sindri Páll Kjartansson
Sigurður Kristinn Sigurðsson Stefanía Steinarsdóttir
Sigurður Þórisson
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR ÁRNASON
frá Vík í Mýrdal,
síðast til heimilis að Brákarhlíð,
dvalar- og hjúkrunarheimili í Borgarnesi, lést
laugardaginn 22. febrúar. Útförin fer fram frá Hjallakirkju
í Kópavogi föstudaginn 28. febrúar kl. 13.00.
Helga Einarsdóttir Karl Magnús Kristjánsson
Arna Einarsdóttir Konráð Konráðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSDÍS BJARNADÓTTIR
frá Suðureyri við Tálknafjörð,
Laugarnesvegi 87,
sem lést 16. febrúar, verður jarðsungin frá
Langholtskirkju mánudaginn 3. mars kl. 13.00.
Þórey Magnúsdóttir
Bjarni Eiríkur Magnússon
Jóna Þórdís Magnúsdóttir Salvar Guðmundsson
Guðmundur Sigurður Magnússon
Einar Magnússon Gunnhildur Konráðsdóttir
Magnús Ásgeir Magnússon Heiða Hringsdóttir
Kristján Magnússon Ásdís Ásgeirsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
Davíð
útfararstjóri
Jóhanna Erla
guðfræðingur
útfararþjónusta
Óli Pétur
útfarars jt óri 551 3485 • udo.is
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HÓLMFRÍÐUR FINNSDÓTTIR
frá Straumfjarðartungu,
andaðist sunnudaginn 23. febrúar. Hún verður jarðsungin frá
Fáskrúðarbakkakirkju föstudaginn 28. febrúar kl. 14.00. Þeim
sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar
í Borgarnesi.
Valgeir Ingólfsson Jóhanna Þ. Björnsdóttir
Guðbjörg Ingólfsdóttir Gunnar Ragnarsson
Finnur Ingólfsson Guðríður Ebba Pálsdóttir
Páll Ingólfsson Brynja Þórhallsdóttir
Þórður Ingólfsson
Haraldur Ingólfsson
Steinunn Ingólfsdóttir Helgi Valur Friðriksson
Baldur Ingólfsson Guðrún Helga Helgadóttir
ömmu- og langömmubörn.
Okkar innilegustu þakkir fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
HAFSTEINS SIGURÞÓRSSONAR
Eyktarsmára 8, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
líknardeildar LSH og Karítasar fyrir kærleiksríka umönnun.
Ingibjörg Birna Þorláksdóttir
Sigurþór N. Hafsteinsson
Laufey Hafsteinsdóttir Bjarni Hauksson
barnabörn og langafabörn.
Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn brann, í fyrra skiptið,
þennan dag árið 1794. Hún var síðan endurreist en brann aftur
árið 1884.
Kristjánsborg hýsti áður danska kóngafólkið en eftir brun-
ann 1794 flutti það yfir í Amalíuborg. Nú hýsir Kristjánsborg
framkvæmda-, löggjafar- og dómsvaldið í Danmörku. Þingið á þó
flest sætin í höllinni. Hvergi annars staðar í heiminum þekkist
það að meginstoðir stjórnkerfisins séu hýstar í einu og sömu
byggingunni.
Höllin státar af þremur ólíkum stefnum í arkitektúr sem
rekja má til brunanna tveggja árin 1794 og 1884. Aðalbygging
hallarinnar er þó mun yngri, eða frá árinu 1928, og er hún byggð
í síð-barokkstíl.
ÞETTA GERÐIST 26. FEBRÚAR 1794
Kristjánsborg brennur
„Við erum að fara að leika mikið af til-
tölulega nýju efni sem við ætlum að
fara með í hljóðver á næstunni,“ segir
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítarleikari
ASA tríósins sem kemur fram á næstu
tónleikum Múlans á Björtuloftum í
Hörpu sem fram fara í kvöld.
ASA tríóið er skipað miklum fag-
mönnum í tónlistargeiranum og varð
eiginlega til fyrir tilviljun, þegar
Andrés Þór hóaði í Agnar Má Magnús-
son og Scott Mclemore fyrir lítið gigg á
djasshátíð Reykjavíkur 2005. Hafa þeir
getið sér gott orð síðan fyrir túlkun á
afar fjölbreyttu efni, meðal annars frá
Jimi Hendrix, Fionu Apple, John Coltr-
ane og Thelonious Monk. „Við tökum þó
bara frumsamið efni í kvöld þó að við
höfum tekið efni eftir aðra áður. Við
höfum meðal annars leikið efni eftir
Red Hot Chili Peppers,“ segir Andrés
léttur í lundu.
Tónleikarnir eru eins og fyrr segir
tónleikar á vegum djassklúbbsins
Múlans og fara fram í Björtuloftum
í Hörpu. „Þetta er nýr tónleikastaður
sem hýsir tónleika Múlans. Mér líst vel
á hann og ég held að það geti orðið ansi
flott og góð djassstemning þarna.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00.
Það kostar 1.500 krónur inn og 1.000
krónur fyrir námsmenn og eldri borg-
ara en miðasalan fer fram á Midi.is.
gunnarleo@frettabladid.is
Íslenskur djass frum-
fl uttur í Björtuloft um
ASA tríóið er á leið í hljóðver og ætlar að prufukeyra nýtt og fj ölbreytt frumsamið efni á
tónleikunum í kvöld. Sveitin er ánægð með Björtuloft sem tónleikastað.
ÍSLENSKUR DJASS ASA tríóið ætlar að frumflytja nýjan og íslenskan djass í Björtuloftum í kvöld. MYND/DANÍEL STARRASON
ASA tríóið er skipað
miklum fagmönnum í
tónlistargeiranum og varð
eiginlega til fyrir tilviljun,
þegar Andrés Þór hóaði í
Agnar Már Magnússon og
Scott Mclemore fyrir lítið
gigg á djasshátíð Reykja-
víkur 2005.
Andrés Þór Guðlaugsson
gítarleikari