Fréttablaðið - 26.02.2014, Blaðsíða 22
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Það tekur innan við klukkustund að aka frá Baltimore til Washington. Ástæða þess að Baltimore varð fyrir
valinu er að ódýrara er fyrir kvikmynda-
fyrirtæki að taka þar upp en í Washing-
ton DC. Sumar senurnar í þáttunum eru
gerðar í yfirgefnum húsum í borginni.
Þættirnir fjalla um amerísk stjórnmál,
innsta kjarnann í Hvíta húsinu, klæki og
pólitíska refskák auk persónulegra erfið-
leika í einkalífi aðalleikendanna. Kevin
Spacey fer með aðalhlutverkið í þáttunum
en meðleikari hans, Robin Wright, hlaut
Golden Globe-verðlaunin nýlega fyrir
bestan leik.
Ferðamenn sem eru á leið til Baltimore
geta farið um götur sem þekktar eru úr
þáttunum, en þeir munu þó ekki finna
veitingahúsið Freddys BBQ þar sem sá
staður er ekki til. Hann var þó settur
upp fyrir þættina í niðurníddu húsi á
Greenmount Avenue 2605, en þar er hægt
að skoða húsið að utanverðu.
Heimili Francis Underwoods í þátt-
unum má sjá á 2605 Park Avenue númer
2605 og íbúð Zoe er á 6 East Preston
Street. Nokkrir staðir eru vel þekktir í
þáttunum og eru til í raunveruleikanum,
til dæmis Red Maple, þar sem Zoe Barnes
fær sér oft drykk eftir vinnu. Sögupersón-
urnar Francis og Zoe hittast oft leynilega
í Listasafni Baltimore og senur sem eiga
að gerast á blaðinu The Washington Her-
ald eru teknar þar sem einu sinni var
The Baltimore Sun. Óperuhúsið er í raun
Lyr ic-óperuhúsið í Baltimore. Allt sem
fram fer innanhúss í Hvíta húsinu er tekið
upp í stúdíói. Aðra staði sem koma við
sögu er alla að finna í Baltimore.
Netflix framleiðir House of Cards og
voru allir þættirnir í hverri þáttaröð settir
á netið í einu lagi svo áhorfendur gætu
horft á þá að vild. Önnur sería Spilaborgar
er nú sýnd á RÚV.
SPILABORGIN ER
Í BALTIMORE
Í SPORUM KEVIN SPACEY House of Cards, Spilaborg, er vinsæl þáttasería í
sjónvarpi. Látið er að því liggja í þáttunum að tökur fari fram í Washington
DC. Svo er ekki því Baltimore varð fyrir valinu hjá framleiðendum þáttanna.
HOUSE OF CARDS
Stórleikarinn Kevin
Spac ey fer með aðal-
hlutverk í þáttunum sem
eru mjög vinsælir.
FREDDYS BBQ Þessi niðurníddu hús voru meðal annars notuð fyrir veitinga-
húsið Freddys BBQ í þáttunum.
Daglegt álag á fæturna, svo sem það að ganga á háhæluðum skóm og ganga mikið, getur haft í för
með sér sprungur á hælum, harða húð
eða þurra fætur.
„Þurr eða
hrjúf húð
myndast vegna
skorts á raka í
efsta lagi yfir-
húðarinnar. Því
er mikilvægt
fyrir húðina að
fá raka til að
viðhalda mýkt
sinni og teygj-
anleika,“ segir
Magðalena S.
Kristjánsdóttir,
vörumerkja-
stjóri hjá Hall-
dóri Jónssyni,
sem flytur inn
Scholl-fótavör-
urnar. „Þegar
eitthvað í um-
hverfi okkar
truflar það að húðin fái nægan raka get-
ur það valdið því að hún þornar. Þykk
og hörð húð myndast við stöðugt álag,
svo sem nudd eða núning, sem húðin
verður fyrir í langan tíma. Sprungur á
hælum myndast þegar þurr og hörð húð
verður fyrir álagi því hún er ekki eins
teygjanleg og mjúk og venjuleg húð.“
Scholl býður upp á ýmis fótakrem
við þessum vandamálum. „Kremin eru
ýmist til að mýkja húðina og gefa henni
raka eða fjarlægja harða húð sem getur
valdið sársauka og óþægindum.“
KREM TIL AÐ MÝKJA FÆTURNA
HALLDÓR JÓNSSON EHF. KYNNIR Álag á fæturna getur haft í för með sér harða húð og þurra og sprungna hæla. Scholl-fótakremin
geta lagað ýmiss konar húðvandamál. Þau mýkja húðina og gefa henni raka og fjarlægja harða húð sem getur valdið óþægindum.
SCHOLL-FÓTAVÖRUR
Magðalena S. Kristjáns-
dóttir, vörumerkjastjóri hjá
Halldóri Jónssyni, segir
Scholl-fótavörurnar sem
fyrirtækið flytur inn vera
lausn á margs konar
húðvandamálum.
MYND/VALLI
HÆLAKREM Á SPRUNGNA
HÆLA
Hælakremið lagar og bætir
hrjúfa og sprungna hæla
þannig að munur er sjáanlegur
á aðeins þremur dögum. Húð-
in á hælunum verður slétt og
sveigjanleg á aðeins einni viku.
Kremið inniheldur karbamíð
sem hjálpar húðinni að endur-
nýja sig og hindrar myndun
nýrra sprunginna hæla á sem
náttúrulegastan hátt.
STIFTI Á SPRUNGNA HÆLA
Stifti fyrir sprungna hæla er
einföld og áhrifarík lausn gegn
sprungnum hælum. Mýkir og
endurheimtir mjúka og slétta
hæla frá fyrsta degi. Auðvelt
er að bera á hælinn án þess
að klístrast. Sýnilegur árangur
á aðeins viku. Hægt að nota
stiftið til að fyrirbyggja mynd-
un á sprungnum hælum og til
að viðhalda þeim mjúkum og
sléttum.
SCHOLL-KORNAKREM SEM
FJARLÆGIR HRJÚFA HÚÐ
Kornakrem fjarlægir þurra og
dauða húð og gefur húðinni
raka. Kremið inniheldur nátt-
úruleg vikurkorn og ávaxta-
sýrur sem fjarlæga hrjúfa og
harða húð fljótt og vel. Kremið
gerir fæturna mjúka og slétta
og hjálpar til við endurnýjun
húðarinnar.
SCHOLL-KREM SEM MÝK-
IR HART SKINN
Mýkjandi krem fyrir hart
skinn, tilvalið til að fjar-
lægja stór svæði af þykkri
harðri húð. Kremið inniheldur
salisýru sem brýtur niður og
fjarlægir dauðar húðfrumur
og mjólkursýru sem gefur
húðinni raka og mýkir hana.
SCHOLL MOISTURISING
KREM SEM VIÐHELDUR
MÝKT OG RAKA Í HÚÐINNI
Rakagefandi krem sem
smýgur djúpt inn í húðina og
skilur fæturna eftir mjúka og
vel nærða. Rakastig fótanna
hækkar um áttatíu prósent og
helst þannig í sólarhring.
Sjá fleiri myndir á
Allar peysur 5000 kr í dag
PEYSUSPRENGJA Í FLASH