Fréttablaðið - 26.02.2014, Side 24
KYNNING − AUGLÝSING MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen, ivarorn@365.is, s. 512-5429 Ábyrgð-
armaður: Jón Laufdal.
Gró Einarsdóttir, rannsakandi við
sálfræðideild Háskólans í Gauta-
borg, átti nýlega þátt í því að landa
rúmlega 100 milljóna króna styrk
fyrir nýtt rannsóknarverkefni við
háskólann.
Sjálfbær hagvöxtur
„Við erum fimm fræðimenn sem
stöndum að þessu verkefni og sótt-
um um styrk fyrir rannsókn sem
miðar að því að skoða skilyrði fyrir
hagvöxt í framtíðinni sem tekur
mið af bæði umhverfis-, félags-
og efnahagslegum takmörkunum
með það að markmiði að reyna að
ná sjálfbærni. Þetta verður dokt-
orsverkefnið mitt og áætlum við
að verkefnið í heild taki um fimm
ár en minn hluti tekur líklega þrjú
ár,“ segir Gró.
Einblínt á skammtímalausnir
Með verkefninu vonast Gró til að
hægt sé að varpa ljósi á hvort upp-
lifun á skorti hafi ákveðið hegð-
unarmynstur í för með sér. „Við
munum skoða hvernig fólk lítur á
bjargir sínar, það er efnahags-, fé-
lags- og tilfinningalegar auðlindir.
Það er ýmislegt sem bendir til þess
að það hvernig fólk upplifir bjarg-
ir sínar og hvort að það sé skort-
ur á þessum björgum hafi áhrif á
ákvarðanatöku og hegðun. Upp-
lifuð vöntun getur haft það í för
með sér að einblínt er á skamm-
tímalausnir á kostnað langtíma-
lausna.“
Nýtist fræðasamfélaginu
Niðurstöðurnar á svo að vera hægt
að nota í framtíðinni við stefnu-
mótun og ákvarðanatöku, bæði
í fyrirtækjum og í stjórnmálum.
Markmiðið er að þetta nýtist bæði
fræðasamfélaginu og almenningi.
Ekkert gert án styrkja
Styrkurinn hljóðar upp á um sjö
milljónir sænskra króna eða ríf-
lega hundrað og tuttugu millj-
ónir íslenskra króna. „Þetta er
grunnurinn að því að ég geti ein-
beitt mér að mínu doktorsnámi, að
verkefninu og rannsóknunum. Án
styrkveitinga er ekki hægt að gera
neitt. Þetta þykir ansi stór styrkur
innan félagssálfræðinnar og hefur
sviðið fengið aukna athygli í kjöl-
farið. Fólk hefur stöðvað okkur á
göngunum til að óska okkur til
hamingju og þykir þetta spenn-
andi,“ segir Gró.
Mikil vinna að fá styrk
Gró segir mikla vinnu liggja að
baki því að fá styrk og til að landa
svona styrk þurfi bæði að hafa
þekkingu á sviðinu og á sama
tíma að þora að fara ótroðnar
slóðir. „Ég stefni að því að halda
rannsóknum áfram eftir þetta
verkefni en ég, eins og aðrir rann-
sakendur, er háð fjárveitingum.
Það þarf að berjast fyrir þeim en
ég kvíði því ekki. Ég verð bara að
hafa trú á sjálfri mér.Maður kemst
ekkert áfram án þess að reyna.”
Fengu milljóna styrk
Gró Einarsdóttir fékk ásamt fimm fræðimönnum við sálfræðideild Háskólans í
Gautaborg rúmlega hundrað milljóna króna styrk til að gera rannsókn sem
miðar að því að skoða skilyrði fyrir sjálfbæran hagvöxt í framtíðinni.
Gró Einarsdóttir, rannsakandi við sál-
fræðideild Háskólans í Gautaborg.
Velkomin
í Háskólann
á Bifröst
Háskóladagurinn verður haldinn laugardaginn
1. mars kl. 12-16 í húsnæði Háskólans í Reykjavík.
Komdu og kynntu þér grunnnám, meistaranám
og nám í Háskólagátt við Háskólann á Bifröst.
Sjáumst á háskóladeginum!
– hvar sem þú ert!