Fréttablaðið - 28.05.2016, Blaðsíða 4
Betri ferð
- vita.is
fyrir betra verð
Verð frá:
107.900 kr.
Á mann m.v. 2 í herbergi á
Diamante**** í 7 nætur með
morgunmat.
Alicante
Tilboð 3. og 7.
júní fyrir tvo!
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
Kjaramál Mánaðarlaun Arn-
órs Guðmundssonar, forstjóra
Menntamálastofnunar, nema
alls 1.125.701 krónu, samkvæmt
ákvörðun Kjararáðs í mánuðinum.
Ákvörðunin er afturvirk og gildir
frá 1. október í fyrra.
Menntamálastofnun tók form-
lega til starfa 1. október síðast-
liðinn, en hún tók þá yfir verkefni
Námsmatsstofnunar og Náms-
gagnastofnunar. Í ákvörðun Kjara-
ráðs segir að hliðsjón hafi verið
höfð af launum forstjóra stofn-
ananna sem lagðar voru niður.
Heildarlaun forstjóra Námsmats-
stofnunar voru tæp 907 þúsund
á mánuði og tæp 952 þúsund hjá
forstjóra Námsgagnastofnunar.
Laun Arnórs eru því frá rúmlega 18
til rúmlega 24 prósentum hærri en
hjá forverum hans.
Þá hefur Kjararáð nýverið fært
laun Guðjóns Brjánssonar, for-
stjóra Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands (HSV), í sama launaflokk og
kollega hans hjá heilbrigðisstofn-
unum Norðurlands og
Suðurlands. Ráðið
segir það gert til að
gæta jafnræðis í
ákvörðunum.
H e i l d a r l a u n
f o r s t j ó r a
h e i l -
brigðis-
s t o f n -
ana eru
1.143.569,
rúmum fimm
p r ó s e n t u m
hærri en þau voru hjá
HSV. Ákvörðunin er
afturvirk frá og með 1.
október 2014.
Forstjóri HSV og forstjóri
Menntamálastofnunar eru í sama
launaflokki, en sá fyrrnefndi fær
greiddar 28 yfirvinnueiningar á
mánuði meðan hinn fær greiddar
26. Hver yfirvinnueining er 8.934
krónur. – óká
Laun forstjóra leiðrétt afturvirkt
Arnór Guðmundsson,
umhverfismál „Þessi tiltekna
þingsályktunartillaga er jákvæð,
hún á að vera hvetjandi fyrir
íslenska matvælaframleiðendur,
en kannski er nauðsynlegt að
henda fram tillögu sem er mun
róttækari, þá kannski fer fólk
að hlusta,“ segir Margrét Gauja
Magnúsdóttir, verkefnastjóri, bæj-
arfulltrúi og varaþingmaður Sam-
fylkingarinnar, um þingsálykt-
unartillögu sína um hvatningu til
íslenskra matvælaframleiðenda til
að draga úr umbúðanotkun.
Tillagan hefur verið lögð fram á
Alþingi í tvígang frá 2013 með full-
tingi 13 þingmanna allra flokka, en
dagaði uppi í bæði skiptin.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá á fimmtudag hvetja þær Arn-
dís Soffía Sigurðardóttir, eigandi
Hótels Fljótshlíðar, og Elísabet
Björney Lárusdóttir, umhverfis-
stjóri hótelsins, til þess að dreif-
ingarkerfi vöru á milli framleið-
enda, birgja og neytenda verði
hugsað upp á nýtt í þeim tilgangi
að minnka umbúðanotkun og
sóun. Engir opinberir hvatar eru
til þess að reka ferðaþjónustufyrir-
tæki undir slíkri stefnu.
Þingsályktunartillaga Margrétar
snýst um að Alþingi feli umhverfis-
og auðlindaráðherra að hvetja til
þess að íslenskir matvælafram-
leiðendur dragi úr notkun umbúða
utan um vörur sínar og nýti sér
efni sem eru umhverfisvæn. Þetta
verði gert í samráði við hags-
munaaðila - Samtök iðnaðarins,
Samtök verslunar og þjónustu,
Samtök atvinnulífsins og Alþýðu-
samband Íslands.
Margrét Gauja lýsir því að tillag-
an hafi aldrei vakið athygli stjórn-
valda en það eigi við um fleira.
„Það er búið að reyna margt til
að vekja áhuga Alþingis á þessu
sívaxandi vandamáli sem plastið
er og hver rannsóknin á fætur
annarri sýnir að ef við förum ekki
að taka á þessu, þá erum við í
vondum málum – og ekki eftir 100
ár heldur eftir 20 ár,“ segir Margrét
Gauja.
Hún lagði fram þingsályktunar-
tillögu um könnun á hagkvæmni
þess að draga úr plastpokanotkun
sem var samþykkt í lok september
2014. „Aðgerðaáætlun átti að liggja
fyrir í fyrra en ekkert bólar á henni
ennþá. Þessi tillaga er þverpóli-
tísk, uppáskrifuð af þingmönnum
allra flokka, en hún bara nær ekki í
gegn, sem er miður. Á meðan tekur
hver þjóðin á fætur annarri framúr
okkur og samþykkir hrein bönn við
t.d. plastpokum, frauðplasti og er í
markvissri vinnu í að vinna gegn
plasti,“ segir Margrét Gauja.
svavar@frettabladid.is
Stjórnvöld dofin fyrir vanda
vegna umbúða og sóunar
Þingmál sem tengjast lausnum til að draga úr umbúðanotkun og sóun virðast vekja takmarkaðan áhuga
stjórnvalda. Þverpólitísk samstaða er um að taka á vandanum en málum er ekki fylgt eftir með aðgerðum.
Ekkert bólar á aðgerðaáætlun sem átti að liggja fyrir í fyrra, segir varaþingmaður Samfylkingarinnar.
Endurvinnsla umbúða hvers konar er orðin stór iðnaðargrein – lítið er þó gert til að sporna við umbúðanotkun.
FréttAblAðið/VAlli
Tölur viKunnar 22.05.2016 Til 28.05.2015
17.500
krónur kostar hver hjónavígsla
og 6.000 krónur hver skírn
sem ekki er í messu.
19%
munaði á hæsta og lægsta tilboði
í útboði Hafnarfjarðarbæjar á raf-
magnskaupum sínum.
142
er fjöldi ríkisstofnana, en utanríkis-
ráðuneytið var í 137. sæti í starfs-
ánægjukönnun SFR, neðst allra
ráðuneyta.
250
kílómetrar voru eftir af 765 kíló-
metra göngu pars með tveggja ára
barn í byrjun vikunnar. Þau ganga
Jakobsveginn á Spáni.
40 milljarðar króna
eru skuldir Reykjanesbæjar. Halli
hefur verið á reglulegri starfsemi
bæjarins í 13 af síðustu 15 árum.
20.000
krónur fékk heyrnarlaus
kona, sem grunur leikur á
að sé fórnarlamb mansals,
greiddar í laun á tæpum
þremur mánuðum.
6,1%
mældist fylgi Samfylkingarinnar í
nýjustu könnun Fréttablaðsins,
Stöðvar 2 og Vísis, eða helmingur
kjörfylgis flokksins.
257
milljóna króna halli var á rekstri sjö
framhaldsskóla um áramót. Þeir
fengu 100 milljóna viðbótarframlag
frá ríkinu í vikunni.
Finnur Ingólfsson,
fyrrverandi Seðla-
bankastjóri,
segist ekki vita
til þess að þýski
bankinn Hauck
& Aufhäuser
hafi verið leppur
við kaupin á Bún-
aðarbankanum árið 2003. Málið er
til komið vegna þess að umboðs-
maður Alþingis sagði á fundi
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis að sér hefðu borist nýjar
upplýsingar sem gætu varpað ljósi á
sölu eignarhluta ríkisins í bank-
anum. Stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd hefur lagt fram þingsálykt-
unartillögu um að rannsókn skuli
fara fram á sölunni.
Lilja Alfreðsdóttir
utanríkisráðherra
lét það koma
sér á óvart
hversu illa
utanríkisráðu-
neytið kemur
út úr starfs-
ánægjukönnun
SFR, Stofnun ársins.
Utanríkisráðuneytið hafnaði neðst
allra ráðuneyta, eða í 137. sæti
könnunarinnar. Laun þar þykja
léleg, ímynd stofnunarinnar afleit
og stjórnun og jafnrétti skora lágt.
Daði Hreinsson,
framkvæmdastjóri
Félags heyrnarlausra,
hafnaði því í Frétta-
blaðinu að mansal
liðist við fjáröflun
hjá félaginu. Lög-
reglan hefur
meint mansal til
rannsóknar og kona
sem starfaði á vegum
félagsins dvelur í Kvennaathvarfinu
eftir sölu á happdrættismiðum fyrir
félagið. Heimildir Fréttablaðsins
herma að hún hafi fengið samtals 20
þúsund krónur í laun fyrir þriggja
mánaða vinnu.
Þrjú í fréttum
Starfsóánægja,
banki og mansal
Þessi tillaga er
þverpólitísk,
uppáskrifuð af þingmönn-
um allra flokka, en hún bara
nær ekki í gegn, sem er
miður.
Margrét Gauja
Magnúsdóttir,
verkefnisstjóri,
bæjarfulltrúi og
varaþingmaður
Laun Arnórs eru 18-24%
hærri en hjá forverum hans.
2 8 . m a í 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð