Fréttablaðið - 28.05.2016, Side 12
StjórnSýSla Hagmunasamtök fyrir-
tækja í atvinnulífinu sem skilað hafa
greinargerð við frumvarp um breyt-
ingar á lögum um opinber innkaup
leggjast öll gegn afnámi sérstaks
samkeppnismats sem samkvæmt
gildandi lögum þarf að eiga sér stað
áður en opinber fyrirtæki fá heimild
til útboðs innan Evrópska efnahags-
svæðisins (EES).
Með breytingunni er tekið tillit til
Evróputilskipunar sem tekur fyrir
að aðildarríki geti hindrað „samn-
ingsyfirvald“ í að nýta sér þjónustu
miðlægrar innkaupastofnunar í
öðru aðildarríki Evrópska efnahags-
svæðisins.
Í umsögn Félags atvinnurekenda
(FA) segir hins vegar að ákvæði um
samkeppnismat í gildandi lögum,
sem fellur út í þeim nýju, komi ekki
í veg fyrir þátttöku í útboðum. Bent
er á að heildarinnkaup ríkisins séu
rúmlega 140 milljarðar króna á ári
og tilfærsla viðskipta til annarra
ríkja komi til með að hafa gríðarleg
áhrif á fyrirtæki hér á landi.
Í umsögn Viðskiptaráðs á þriðju-
dag segir líka að samkeppnismat sé
forsenda þess að innkaupastefna
hins opinbera taki tillit til heildar-
áhrifa útboða. Liggja þurfi fyrir að
neikvæð áhrif á innlendan markað
vegi ekki þyngra en ávinningur af
lægra vöruverði.
Viðskiptaráð leggur til að sam-
keppnismat verði notað áfram
þótt þátttaka opinberra fyrirtækja í
útboðum verði ekki háð samþykki
Samkeppniseftirlitsins á matinu.
Frumtök – samtök framleiðenda
frumlyfja vilja að samkeppnismatið
haldi sér eða að heimild til þátttöku
í útboði verði bundin samþykki
Samkeppniseftirlits. Í sama streng
taka Samtök atvinnulífsins (SA),
Samtök iðnaðarins (SI) og Samtök
verslunar og þjónustu (SVÞ).
Á hinum vængnum er Land-
spítalinn (LSH), en í umsögn hans
er breytingunni fagnað. Ákvæði
um samkeppnismat hafi hamlað
möguleikum LSH við að ná fram
hagkvæmari innkaupum á lyfjum.
Á Norðurlöndum nái heilbrigðis-
stofnanir fram afslætti frá skráðu
verði lyfja, en hér skili fyrirtæki,
sem séu í eiginlegri einokunarað-
stöðu, í síauknum mæli tilboðum
með engum afslætti. „Enda vita þau
sem er að hér er um að ræða lyf sem
LSH er nauðsynlegt að kaupa vegna
þeirra sjúklinga sem til meðferðar
eru, ekki eru til önnur lyf sem komið
geti í staðinn, og/eða ekki er unnt að
skipta um lyf í miðri meðferð.“
Í umsögn velferðarráðuneytisins
eru sögð nýleg dæmi um að norsk
sjúkrahús hafi náð að kaupa inn lyf
á um 72 prósentum lægra verði í
útboðum en boðist hafi hér á landi.
„Um er að ræða lyf sem keypt eru
fyrir um einn milljarð króna á ári.“
Nýja frumvarpið taki af allan vafa
um heimildir undirstofnana ráðu-
neytisins til innkaupa á aðföngum
í sameiginlegum útboðum erlendis.
olikr@frettabladid.is
Vilja ekki að viðskiptin hverfi úr landi
Velferðarráðuneytið segir norsk sjúkrahús hafa í útboði fengið keypt lyf á 72 prósentum lægra verði en bjóðist hér. Breytingar á lögum
um opinber innkaup miða að því að auðvelda þátttöku í útboðum innan EES. Hagsmunasamtök vara við áhrifum á samkeppni hér.
Ríkiskaup vilja vera til ráðgjafar
Samkeppniseftirlitið hefur bent á að fái hið opinbera ótakmarkaða heimild til að færa viðskipti til útlanda komi mörg lítil og
meðalstór fyrirtæki sem tekið hafi þátt í opinberum útboðum til með eð eiga mjög erfitt uppdráttar. Fréttablaðið/Vilhelm
Eftirlitsstofnanir ríkisins, utan Samkeppnis-
eftirlitsins, taka ekki afstöðu til ágætis
ákvæðis um samkeppnismat í lögum um
opinber innkaup. Lyfjastofnun áréttar að
ákvæði lyfjalaga gildi hér, burtséð frá þátt-
töku í útboðum innan EES. Ríkiskaup leggja
til að óánægju með brottfall ákvæðis um
samkeppnismat verði mætt með því að gera
aðstoð Ríkiskaupa að skyldu taki stofnanir
þátt í útboðum í öðru ríki EES.
Samkeppniseftirlitið segist í umsögn
19. maí þurfa að móta verklag tengt nýju
lögunum, enda hafi stofnunin í þeim engar
heimildir til íhlutunar. Í umsögn í janúarlok
varar Samkeppniseftirlitið hins vegar við
ráðgerðum breytingum. Ákvæði um sam-
keppnismat var tekið inn í lögin að beiðni
stofnunarinnar, því innkaup í öðru landi
gætu í einhverjum tilvikum raskað sam-
keppni hér. Smæð íslenskra fyrirtækja geti
útilokað þau frá viðskiptunum, vegna um-
fangs þeirra þegar þau ná til fleiri ríkja.
Nánari upplýsingar má finna á landsvirkjun.is/heimsoknir.
Til hamingju!
Gagarín hefur hlotið gullverðlaun European Design Awards
2016 fyrir stafræna hönnun orkusýningar Landsvirkjunar,
Orka til framtíðar, í Ljósafossstöð.
Á sýningunni gefst gestum á öllum aldri kostur á að kynnast
eðli raforkunnar og hvernig krafti endurnýjanlegra orkugjafa
á borð við vatn, jarðvarma og vind er umbreytt í rafmagn.
Við þökkum Gagarín og þeim fjölmörgu sem komu að
sýningunni fyrir samstarfið og hvetjum fólk á öllum aldri
til að líta við í Ljósafossstöð. Sýningin er opin alla daga
kl. 10-17.
milljarðar
króna eru
heildarinn-
kaup ríkis-
ins á ári.
140
2 8 . m a í 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð