Fréttablaðið - 28.05.2016, Síða 8
GARÐYRKJUSTÖÐ
INGIBJARGAR
Hveragerði
Garðyrkjustöð Ingibjargar, ein veglegasta garðyrkjustöð
landsins, staðsett á 10.000m2 svæði í Hveragerði er til sölu.
Í ræktun stöðvarinnar nú og í sölu er mikið úval af
garðplöntum; sumarblómum, fjölærum plöntum, runnum,
trjáplöntum og matjurtum.
Einnig framleiðir Garðyrkjustöð Ingibjargar og flytur inn
pottaplöntur fyrir smásölu og heildsölu. Tryggir viðskiptavinir.
Velta hefur verið stöðugt vaxandi og hagnaður góður.
Kröftug starfsemi allt árið.
Hér er um að ræða skemmtilegt og óvenjulegt tækifæri
með mikla möguleika.
Nánari upplýsingar veitir Brynhildur Bergþórsdóttir,
brynhildur@kontakt.is
H
a
u
ku
r
0
5
.1
6
Til sölu:
Tyrkland Sýrlenskir flóttamenn
hafa aukið hagvöxt í Tyrklandi
samkvæmt nýrri skýrslu Standard
& Poor’s.
Sýrlendingar hafa stofnað 4.000
ný fyrirtæki í Tyrklandi frá árinu
2011, þar af 1.600 á síðasta ári og
590 til viðbótar á fyrstu þremur
mánuðum ársins, að því er fram
kemur í frétt The Financial Times en
2,7 milljónir Sýrlendinga hafa flúið
frá Sýrlandi til Tyrklands á síðustu
fimm árum.
The Financial Times bendir á að
þó flestir sýrlenskir flóttamenn í
Tyrklandi búi við mjög bág kjör í
og við flóttamannabúðir séu margir
þeirra úr sýrlenskri millistétt, sem
eigi sparnað og hafi aðgang að lánsfé.
Einn þeirra er Remo Fouad, fimm-
tugur bakari, sem flúði Aleppo,
fjölmennustu borg Sýrlands, fyrir
þremur árum. Hann byrjaði á því
að opna sætabrauðs- og sælgætis-
verslun í Egyptalandi, svo Líbanon,
með sparnaði sem hann hafði falið
á líbönskum bankareikningum, en
báðar verslanirnar fóru á hausinn.
„Í Egyptalandi áttu viðskiptavinirnir
engan pening,“ segir Fouad. „Í Líb-
anon, komu þeir mjög illa fram við
Sýrlendinga,“ bætir hann við.
Fyrir tveimur árum opnaði hann
litla verslun í Istanbúl og rekur í dag
verksmiðju á fjórum hæðum, tvær
verslanir og stefnir á að opna þá
þriðju. „Ég borga mína skatta, borga
fólki góð laun og fer að lögum,“ segir
hann.
Mohamed Nizar Bitar rak kera-
míkverksmiðjur í Sýrland, en flúði
land þegar hann var varaður við
því að stjórnvöld hygðust handa-
taka hann. Varði hann nærri fjórum
milljónum króna af sparifé sínu til
að koma sér og fjölskyldu sinni úr
landi. Afgangurinn af sparifé hans,
ríflega hundrað þúsund krónur, fór
í að opna arabískan matsölustað og
heimsendingarþjónustu í kjallara
í Tyrklandi. Í dag rekur hann veit-
ingahúsakeðju á sjö stöðum með
330 starfsmönnum og hefur um
260 milljónum króna verið varið í
að fjárfesta í búnaði og húsnæði á
vegum fyrirtækisins.
Hagvöxtur í Tyrklandi var 5,7 pró-
sent á síðustu þremur mánuðum
síðasta árs en ýmsar áskoranir fylgja
þessum miklu þjóðflutningum.
Fjögur prósent af íbúum Tyrk-
lands eru Sýrlendingar og margir
þeirra kunna lítið í tyrknesku. Þá
er atvinnuleysi í landinu ellefu pró-
sent og sumir tyrkneskir verkamenn
telja Sýrlendinga vera að stela af
þeim störfum. ingvar@frettabladid.is
Flóttamenn auka hagvöxt í Tyrklandi
Sýrlenskir flóttamenn hafa stofnað fjögur þúsund fyrirtæki í Sýrlandi frá árinu 2011 og hafa jákvæð áhrif á efnahag landsins samkvæmt
nýrri skýrslu. 2,7 milljónir Sýrlendinga búa nú í Tyrklandi. Margir þeirra eru úr millistétt, eiga sparnað og hafa aðgang að lánsfé.
Kúluskítur er horfinn, bleikjan að hverfa og hornsílastofninn í sögulegu lágmarki. Fréttablaðið/GVa
umhverfismál Þrír þingmenn
Vinstri grænna, þau Stein grím ur J.
Sig fús son, Bjarkey Ol sen Gunn ars-
dóttir og Svandís Svavars dótt ir, hafa
lagt fram þingsályktunartillögu um
ráðstafanir til að bæta fráveitumál
á landsbyggðinni og viðbrögð við
náttúruvá við Mývatn.
Þau gera að tillögu sinni að
umhverfis- og auðlindaráðherra sé
falið af Alþingi að skipa starfshóp
sem fari yfir ástand fráveitumála í
sveitarfélögum utan höfuðborgar-
svæðisins og geri tillögur til úrbóta
sem miðist við að fráveitur sveitar-
félaganna uppfylli lögmælt skilyrði
og samræmist sjónarmiðum um
umhverfisvernd. Enn fremur geri
starfshópurinn kostnaðaráætlun
vegna þeirra fráveituframkvæmda
sem talin er þörf á í hverju sveitar-
félagi. Forgangsröðun í þessu starfi
verði þannig að fyrst verði fjallað
um fráveitur sveitarfélaga þar sem
friðlýst svæði eru, þá um fráveitur
sveitarfélaga sem ekki liggja að sjó
og loks um fráveitur sveitarfélaga
almennt. Nauðsynleg aðkoma ríkis-
ins að lausn mála verði skilgreind í
hverjum fyrrgreindra flokka sveitar-
félaga um sig.
Þá álykti Alþingi að veittar verði
15 milljónir króna ár hvert, næstu
þrjú ár, til Náttúrurannsóknastöðv-
arinnar við Mývatn sem varið verði
til að styrkja rannsóknir á umhverfi
og lífríki Mývatns í því skyni að
leita orsaka þeirra lífríkisbreytinga
sem þar hafa orðið á undanförnum
árum.
Enn fremur að veittar skuli 170
milljónir króna til helminga á þessu
og næsta ári, til fyrsta áfanga fyrir-
hugaðrar uppbyggingar á hreinsi-
og fráveitumannvirkjum í Skútu-
staðahreppi með það að markmiði
að lágmarka áhrif byggðar og starf-
semi í hreppnum á Mývatn og
vatnasvæði þess.
Tilefni tillögunnar er verulegar
breytingar sem hafa orðið til hins
verra á lífríki Mývatns, og eru raktar
til ofauðgunar í vatninu af manna-
völdum. – shá
Kalla eftir viðbrögðum vegna Mývatns
45
milljónir til rannsókna við
Mývatn er meðal tillagna
þingmannanna.
Ég borga mína
skatta, borga fólki
góð laun og fer að lögum.
Remo Fouad, verksmiðju-
og verslunareigandi í Istanbúl
4%
íbúa Tyrklands
eru Sýrlendingar.
Sýrlenski flóttamaðurinn Mohmad bozan í verslun sem hann stofnaði í landamærabænum reyhanli í tyrklandi. bozan er einn
af fjölmörgum flóttamönnum sem komið hafa á fót atvinnurekstri í landinu. NordicPhotoS/Getty
2 8 . m a í 2 0 1 6 l a u G a r d a G u r8 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð