Fréttablaðið - 28.05.2016, Side 16
Sumarsýning Porsche í dag
Mögnuðustu sportbílar landsins eru komnir í sumarbúning!
Porsche á Íslandi | Bílabúð Benna:
Vagnhöfða 23 | 110 Reykjavík | S: 590 2000
www.benni.is | www.porsche.is
Morgunsólin dansar á glansandi húddinu og þú upplifir sanna ökugleði.
Það er ekkert sem jafnast á við ferðalag í Porsche á fallegum sumardegi
á Íslandi.
Við ætlum að framkalla þá tilfinningu á Sumarsýningu Porshe í dag og
höfum flutt inn sérstaklega nokkra glænýja ofurjeppa og sportbíla frá
Porsche af því tilefni.
Nú eru nýkomnir til landsins:
• Glæsilegir Porsche 911 S
• Porsche Cayenne S E-Hybrid í sportútgáfu
• Sportjeppinn Macan í nýrri mynd
Komdu á magnaða Sumarsýningu Porsche í dag.
Opið frá kl. 12:00 til 16:00.
Samgöngur Vonir eru um að Borgar-
lína sem tengi saman helstu svæði
höfuðborgarsvæðisins verði tekin í
notkun eftir fimm ár, eða að minnsta
kosti innan næstu tíu ára. Þetta kom
fram í máli Þorsteins R. Hermanns-
sonar, samgöngustjóra umhverfis- og
skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, á
málþingi um almenningssamgöngur
á höfuðborgarsvæðinu í gær.
„Við erum ekki að hugsa fjörutíu
ár fram í tímann með þetta,“ sagði
hann. Borgarlína verður annaðhvort
léttlesta- eða hraðvagnakerfi, ekki
er búið að ákveða hvaða tækni á að
nota. Verið er að skoða möguleikann
á að tengja frá Keflavíkurflugvelli við
Borgarlínuna, þó nokkrar útfærslur
séu á borðinu.
Borgarlínan er hryggjarstykkið
í Höfuðborgarsvæðinu 2040, nýju
svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðis-
ins og samgönguáherslum þess. Fram
kom á fundinum að árið 2040 gæti 40
kílómetra Borgarlína verið komin í
gagnið. Heildarstofnkostnaðar væri 70
til 150 milljarðar króna. Hægt væri að
ljúka fyrsta áfanga fyrir árið 2022 með
18 kílómetra línu, sú fjárfesting myndi
nema 30 til 65 milljörðum króna.
Þorsteinn rökstuddi uppbyggingu
Borgarlínu í Reykjavík með því að
vísa til þess að sambærileg kerfi hefðu
verið byggð upp víðsvegar um Evrópu
fyrir borgir með innan við 300 þúsund
íbúa og jafnvel 200 þúsund íbúa. Í
Frakklandi hefur verið byggt upp létt-
lestarkerfi í 33 borgum frá árinu 1985,
þar af í 25 borgum með færri en 250
þúsund íbúa.
Akstursleiðirnar eru ekki endanleg-
ar en greining og samanburður hefur
verið gerður á mögulegum aksturs-
leiðum eftir tólf leggjum milli kjarna.
Þær akstursleiðir sem eru meðal
annars til áframhaldandi skoðunar
eru Fjörður í Hafnarfirði, Garðabær,
Hamraborg, Kringlan, Miðbær, BSÍ,
Ártún og Eiðistorg. Innan við fjögur
hundruð metra frá akstursleiðum á
korti eru 80 þúsund íbúar, 68 prósent
af verslunar- og skrifstofuhúsnæði og
51 prósent af atvinnuhúsnæði.
„Við gerð Borgarlínu er skoðaður
hver sé þéttleiki byggðar í dag, en
ekki síður hvar uppbyggingin verður,“
sagði Þorsteinn á fundinum. „Kerfið er
ekki bara fjárfesting heldur leiðir líka
af sér fjárfestingu. Áætlanir um upp-
byggingu húsnæðis og Borgarlínu eru
samtvinnaðar til að hægt sé að upp-
fylla ferðaþarfir sem flestra íbúa og
ferðamanna með kerfinu.“ Þorsteinn
bætti við að höfð væri í huga fjölgun
um næstu sjötíu þúsund íbúa á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þorsteinn vék að fjármögnun Borg-
arlínu á fundinum og benti á dæmi frá
Danmörku og Frakklandi. Þar hefur
fjármögnunin skipst milli sveitarfé-
laga, ríkisstjórna og hverfa.
Í Frakklandi hefur ríkið fjármagnað
stofnkostnað með skattheimtu, til
dæmis frá bílastæðagjöldum og fyrir-
tækjum í grenndinni.
Fjölbreyttar fjármögnunarleiðir eru
því í boði, meðal annars samstarf við
einkamarkaði um framkvæmdir, fjár-
mögnun og rekstur, svokölluð PPP-
leið. Opinber fjármögnun er ýmist í
formi almennrar eða sértækrar skatt-
heimtu. Sérstakur skattur er þá eyrna-
Vonir um Borgarlínu
innan fimm til tíu ára
Borgarlína með léttlestum eða hraðvögnum getur tengt saman helstu hverfi
höfuðborgarsvæðisins. Sambærileg kerfi hafa verið byggð upp víðsvegar um
Evrópu fyrir minni borgir. Uppbygging kerfisins þarf ekki að taka langan tíma.
merktur almenningssamgöngum, til
dæmis vegtollar, gjaldtaka af bíla-
stæðum og fleira.
Í Norður-Ameríku og Vestur-Evr-
ópu hefur PPP-kerfið gengið vel
í uppbyggingu og rekstri hágæða
almenningssamgöngukerfa, en þeim
hefur stöðugt fjölgað þar síðustu 24 ár.
Í York fyrir utan Toronto er Viva- kerfi
við lýði, þar sáu samgönguyfirvöld
um stærstan hluta fjármögnunar, en
einkaaðilar sáu um hönnun, uppbygg-
ingu, innkaup og rekstur að hluta.
Þorsteinn benti á að uppbygging
léttlestarkerfis tæki ekki langan tíma
þegar ákveðið væri að taka af skarið.
„Í Viva-kerfinu liðu 36 mánuðir milli
þess sem undirbúningur verkefnisins
hófst og þangað til fyrstu vagnarnir
hófu akstur,“ sagði Þorsteinn.
✿ möguleg útfærsla Borgarlínu
Heimild: Reykjavíkurborg
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
Í Viva-kerfinu liðu
36 mánuðir milli
þess sem undirbúningur
verkefnisins hófst og þangað
til fyrstu vagnarnir hófu
akstur.
Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngu-
stjóri umhverfis- og skipulagssviðs
2 8 . m a í 2 0 1 6 L a u g a r D a g u r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð