Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 48

Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 48
| AtvinnA | 28. maí 2016 LAUGARDAGUR8 Tónmenntakennari við Naustaskóla Akureyri Við Naustaskóla er laust til umsóknar starf tónmenntakennara frá 1. ágúst 2016. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans. Menntunarkröfur: • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla. • Sérhæfing í tónlist / tónmenntakennslu. Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Akureyrar- bæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt. Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2016 Fjármálastjóri í Þjóðskjalasafni Laust er til umsóknar starf fjármálastjóra Þjóðskjalasafns Íslands. Ábyrgð og verksvið Starfið felst í fjármálastjórn, launavinnslu og starfsmanna­ stjórn. Þá eru á hendi fjármálastjóra yfirumsjón með rekstri tölvu­ og upplýsingakerfa, yfirumsjón með skjalavörslu stofnunarinnar og umsjón með verkbókhaldi. Jafnframt er umsjón með rekstri skrifstofu, afgreiðslu og símsvörun hluti verkefnanna. Viðkomandi tekur þátt í ýmsum öðrum verkum. Fjármálastjóri situr í framkvæmdastjórn safnsins. Menntunar- og hæfniskröfur • Gerð er krafa um háskólapróf í viðskipta- eða rekstrarfræðum. • Reynsla af fjármálastjórn, bókhaldi og áætlanagerð er nauðsynleg. • Reynsla af starfsmannahaldi og þekking starfsmannamálum ríkisins er æskileg. • Krafist er þekkingar og reynslu af Oracle kerfi ríkisins. • Þá er krafist þekkingar í upplýsingatækni og skjalastjórn. • Mjög gott vald á íslensku er áskilið. • Góð kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli er æskileg. • Leitað er að fjölhæfum og áhugasömum starfsmanni, með góða samskiptahæfni og frumkvæði í starfi. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2016. Sótt er um starfið rafrænt á; www.skjalasafn.is undir „laus störf“. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynnin­ garbréf þar sem greinir frá ástæðu umsóknar og hæfni viðko­ mandi til að gegna starfinu. Afrit prófskírteina fylgi. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar veitir Eiríkur G. Guðmundsson þjóðskjalavörður – eirikur@skjalasafn.is ­ 820­3330. Þjóðskjalasafn Íslands starfar skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Hlutverk safnsins er að varðveita og veita aðgang að opinberum skjölum, einkum íslenska ríkisins, og einka­ skjalasöfnum með réttindi borgaranna, hag stjórn sýslunnar og varðveislu sögu íslensku þjóðarinnar að leiðarljósi. FORSTÖÐUMAÐUR SÖLU- OG MARKAÐSSVIÐS FLUGFÉLAG ÍSLANDS ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA ÖFLUGAN LEIÐTOGA Í STARF FORSTÖÐUMANNS SÖLU- OG MARKAÐSSVIÐS. Forstöðumaður ber ábyrgð á öllum rekstri sviðsins og heyrir beint undir framkvæmdastjóra. Undir sölu- og markaðssvið falla öll sölu- og markaðsmál innanlands sem utan, stöðvarekstur á fjórum stöðum innanlands, vefmál, fríhöfn, þjónustuver og markaðsdeild ásamt áætlunar- og tekjustýringardeild. Samtals eru starfsmenn sviðsins um 80 talsins. UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 1. JÚNÍ 2016 • Umsókn, ásamt ferilskrá, óskast fyllt út á vef félagsins www.flugfelag.is/upplysingar/mannauður, fyrir 1. júní 2016. Nánari upplýsingar veitir Ingigerður Þórðardóttir mannauðsstjóri, ingig@flugfelag.is STARFIÐ HÆFNISKRÖFUR FLUGFELAG.IS ÍS LE N SK A S ÍA / FL U 7 99 02 0 5/ 16 • Daglegur rekstur sölu- og markaðssviðs • Yfirumsjón með starfsmannamálum sviðsins og upplýsingamiðlun • Yfirumsjón með auglýsingamálum og kynningarstarfsemi • Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila • Vöruþróun • Samningagerð • Fargjaldaútreikningar og verðlagning • Stefnumótun og áætlunargerð • Háskólamenntun á sviði viðskipta- og/eða markaðsfræða • Marktæk reynsla af rekstri og stjórnun • Þekking á sölu- og markaðsmálum • Góðir skipulags- og leiðtogahæfileikar • Jákvætt hugarfar og leikni í mannlegum samskiptum • Góð íslensku- og enskukunnátta, norðurlandamál er kostur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.