Fréttablaðið - 28.05.2016, Side 49
Frekari upplýsingar um Samgöngustofu er að finna á vef
stofnunarinnar www.samgongustofa.is
Spennandi störf
hjá Samgöngustofu
Samgöngustofa ı Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
6
-1
7
2
7
Hjá Samgöngustofu hlakka um 140 öflugir starfsmenn til
þess að þú bætist í hópinn. Lagt er upp með jákvæðan og
skemmtilegan starfsanda, frumkvæði og þátttöku, auk þess
sem mötuneytið er frægt fyrir frábæran mat. Samgöngustofa
er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með
flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra
hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það
að markmiði að verða betri og betri.
EFTIRLITSMAÐUR FLUGVALLA
Samgöngustofa óskar eftir að ráða eftirlitsmann flugvalla á
mannvirkja- og leiðsögusviði stofnunarinnar. Starð felst í vottun,
úttektum og eftirliti með fyrirtækjum með starfsley til reksturs ugvalla
ásamt öðrum verkefnum tengdum öryggi í ugi og önnur sérfræðivinna í
málaokknum. Starfshlutfall er 100%.
Nánari upplýsingar veitir Reynir Sigurðsson, framkvæmdastjóri
mannvirkja- og leiðsögusviðs, í síma 480 6000.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á tæknisviði sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði eða
tæknifræði eða reynsla af tæknimálum tengdum flugvallarrekstri
eða reynsla af flugi
• Þekking á gæðakerfum og reynsla á því sviði er kostur
• Þekking á öryggisstjórnarkerfum (SMS) er kostur
• Þekking á íslenskum og alþjóðlegum kröfum til flugvalla er kostur
• Mjög góð tök á íslensku og ensku er skilyrði sem og gott vald á úrvinnslu
og framsetningu upplýsinga
• Góð Word og Excel kunnátta
• Frumkvæði, skipulögð og nákvæm vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
FAGSTJÓRI Í FJÁRMÁLADEILD
Samgöngustofa óskar eftir að ráða fagstjóra í fjármáladeild
stofnunarinnar. Starfið hentar öflugum einstaklingi sem hefur áhuga
á fjölbreyttum og krefjandi bókhaldsverkefnum, s.s. uppgjörsvinnu,
greiningum og úrvinnslu tölulegra upplýsinga o.fl. verkefnum innan
fjármáladeildar. Nýr starfsmaður mun taka þátt í stefnumótun og
innleiðingu nýrra verkefna og verklags og vinna náið með stjórnendum
rekstrarsviðs. Starfshlutfall er 100%.
Nánari upplýsingar veita Dagný Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, deildarstjóri
fjármáladeildar, í síma 480 6000.
Menntunar- og hæfniskröfur
• BS í viðskiptafræði eða sambærileg háskólamenntun
• Mikil reynsla og þekking af bókhaldsstörfum er skilyrði
• Mjög góð Excel kunnátta er skilyrði
• Frumkvæði, skipulögð og nákvæm vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
SKIPAEFTIRLITSMAÐUR
Samgöngustofa óskar eftir að ráða til starfa skipaeftirlitsmann á
farsvið stofnunarinnar. Starð gæti t.a.m. hentað vel einstaklingi sem
hefur starfað við sjómennsku eða hefur reynslu af störfum tengdum
sjávarútvegi en langar til þess að breyta um starfsvettvang og starfa í
landi án þess þó að missa öll tengsl við hað. Starf skipaeftirlitsmanns
felst í að sinna eftirliti með stærri skipum, gerð skoðunarhandbóka og
verklagsreglna, útgáfu alþjóðlegra skipsskírteina og önnur verkefni sem
til falla. Starfshlutfall er 100%.
Nánari upplýsingar veitir Geir Þór Geirsson, deildarstjóri
skipaeftirlits og leyfisveitinga, í síma 480 6000.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Nám í skipa- eða véltæknifræði, skipa- eða vélaverkfræði
eða vera handhafi skírteinis til fyllstu réttinda til vélstjórnar
• Reynsla af eftirliti með skipum er kostur
• Þekking á þeim reglum og lögum sem gilda um öryggi skipa
og þeim öryggisbúnaði sem skip skulu búin er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli
• Góð almenn tölvukunnátta
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til 13. júní 2016
Hægt er að sækja um störfin rafrænt á www.samgongustofa.is/storf
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Starfskjör eru í samræmi við
kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Samgöngustofa áskilur sér rétt
til að hafna öllum umsóknum. Samgöngustofa hvetur jafnt konur sem karla til að
sækja um þessa stöður.
Í boði eru fjölbreytt og spennandi störf í alþjóðlegu
umhverfi þar sem frumkvæði fær notið sín