Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 71

Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 71
Hægt er að horfa á viðtölin í heild sinni á Youtube. Qr-kóðinn er hér til hliðar. Hver er Magnús Orri? Magnús Orri er 44 ára gamall Kópavogsbúi, giftur Herdísi Hall­ marsdóttur lögmanni og við eigum tvö börn. Ég hef komið víða við, var í fjölmiðlum, rak mitt eigið fyrirtæki, kenndi í háskóla og fór svo á þing. Síðustu árin hef ég starfað við ráðgjöf, þá sérstaklega í ferðageiranum, en ætla nú að sjá hvort hreyfing jafnaðarmanna vilji njóta starfskrafta minna. Við skulum vona það. Hver eru helstu verkefni þeirrar ríkisstjórn- ar sem tekur við? Ég held að málefni ungs fólks verði mjög áberandi á næsta kjör­ tímabili. Við sjáum að það er verið að skerða framlög til framhalds­ skólanna, háskólanna og LÍN. Við erum að missa ungt menntað fólk úr landi á meðan við erum að flytja inn vinnuafl í auðlindagreinarn­ ar. Við erum í raun að tapa sam­ keppni um unga menntaða fólkið, því okkur er ekki að takast að búa til störf í hugvitsgeiranum. Þetta er stórt pólitískt mál. Já, og svo vilt þú verða formaður Samfylkingarinnar og fyrsta skref- ið er að leggja niður flokkinn! Nei, alls ekki – flokkur jafnaðar­ manna verður alltaf til. Hann þarf hins vegar að þróast. Fyrsta skref­ ið er kosningabandalag. Ég held að næstu kosningar snúist um val á milli íhaldsaflanna og umbótaafl­ anna. Þá sem vilja viðhalda gamla kerfinu og ekki breyta neinu, en svo ertu með stóran hóp af fólki sem virkilega vill breytingar, hvort sem það er í auðlindamál­ um, stjórnarskrá, velferðarmálum eða öðru. Og ef við vinnum þétt saman, myndum kosningabanda­ lag um þessar lykilbreytingar sem við viljum gera, þá tel ég að okkur séu allir vegir færir og vonandi verður það niður staðan í kosning­ unum í haust. Vinnum saman að breytingum Magnús Orri Schram og Inga Björk Bjarnadóttir Málefni ungs fólks brenna á Magnúsi Orra. Heyrðu Valdimar! Nú leita ég til þín í vandræðum mínum. Það er þannig að við í Samfylkingunni, við erum að fara að halda lands­ fund og ég er að vona að ég verði nýr formaður. Við erum að fara að skerpa á okkar stefnumálum en það eina sem okkur vantar er baráttu­ lag. Gætir þú samið fyrir okkur baráttulag? Já, maður ætti nú alveg að geta gert það. Maður er nú kom- inn hérna í útilegugallann og með kassagítarinn og ætti nú að geta komið með eitthvað. Ég hef mikla reynslu af því að semja svona jafn- aðarlög, lög sem kannski eru svona gegn auðvaldi, svo maður ætti nú að geta reddað því. Já, ég var að hugsa ef viðlagið gæti hugsanlega verið um gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu. (Syngur) Gjaldfrjálsa heilbrigð- is … heilbrigðisþjónustu Og um menntun fyrir alla og að arðurinn af auðlindunum gangi til þjóðarinnar. (Syngur) Arðurinn af auðlindum þjóðarinnar Og við viljum nýja stjórnar­ skrá og svo verðum við auðvit­ að einhvers staðar að koma fyrir húsnæðismálunum og málefnum ungs fólks. Það eru barnabætur og lengra fæðingarorlof. (Syngur) Barnabætur og fæð- ingarorlof, hvað með börnin? hvað með börnin? Já, OK. Á ég að syngja eitthvað um Tortóla? Já, við berjumst gegn spillingu sko og við viljum uppræta fátækt. Það er mjög mikilvægt að það verði einhvers staðar, svona eins og und­ irtónninn. Og réttlætið og jafnrétt­ ið. En gætirðu haft þetta tilbúið núna um mánaðamótin? Já, ég er nú þegar kominn með helling eins og þú heyrir. Þannig að ég get reddað því. Til í að semja baráttulag jafnaðarmanna Oddný Harðardóttir og Valdimar Guðmundsson Haukur Hólmsteinsson og Guðmundur Ari Sigurjónsson. Hækkum persónuafsláttinn. Nei, ég meina. Áttu einhvern séns í alvörunni? Ert þú með einhverja hugmynd um hvernig Samfylking- in á að ná aftur fylgi? Að sjálfsögðu, ég er með tvö­ falda nálgun. Hluti snýr að innra starfinu sem er gaman að tala um í hópi jafnaðarmanna. Þá helst að færa völd frá ábyrgðarstöð­ um til félagsmanna. Flokkurinn er kannski meiri stofnun í dag, en þyrfti að verða meiri vettvangur. Hvaða eitt eða tvö mál eru það sem þér þykir mikilvægast að ganga í strax og þú gætir séð að hafi áhrif á alla? Ein stærsta aðgerðin sem hefði áhrif á alla, hvort sem við erum að tala um barnafólk, öryrkja eða aldraða eða lágtekjufólk, er að hækka persónuafsláttinn. Það er góðæri í uppsiglingu og það er aukið svigrúm í tekjuskattskerf­ inu. Sumir tala um að einfalda skattkerfið en ég vil frekar að við hækkum persónuafsláttinn og aukum ráðstöfunartekjurnar hjá þeim sem hafa minnst milli hand­ anna. Ég gæti svo talið upp hundrað mál sem þyrfti að fara í en níutíu af þeim snúa að því að það er of stór hluti Íslendinga sem er með of lágar tekjur og hefur ekki efni á húsnæði, hefur ekki efni á heilbrigðisþjón­ ustu og þar af leiðandi er ég mjög hlynntur því að fara í persónuaf­ sláttinn og fjölga krónunum í vasa fólks. Það léttir strax byrðarnar í öllum hinum málunum. Svo þarf auðvitað að fara að taka önnur mál fyrir eins og húsnæði ungs fólk og lengingu fæðingar­ orlofs. Hahaha! Það væri feitt! Já, vá! Ég er bara orðinn helm­ ingi spenntari fyrir þessu dæmi núna … vá! Fleiri krónur í vasann Guðmundur Ari Sigurjónsson og Haukur Hólmsteinsson Mig langar að byrja á að spyrja um það sem ég veit að allir eru að hugsa: Ertu á lausu? Ég er giftur henni Þórhildi og þriggja barna faðir. Já, einmitt það. Jæja, það er svekkjandi en þá höfum við það. Hvernig fer maður úr því að vera Emil í Kattholti, sem er skemmti- leg vinna og yfir í að vera pólitík- us sem er leiðinleg vinna? Ég var alltaf heillaður af Hróa hetti, af hugmyndinni um að reyna að skapa sem flestum tækifæri í lífinu. Þessu ofboðslega fallega verkefni, að skapa samfélag þar sem sem flestir hafa tækifæri – samfélag fyrir alla. Já, þetta er ofsalega göfugt sjón- armið. Er kannski ljótt að spyrja þig hvort þú hafir meira fram að færa en hinir? Ég held að það sé bara öðru­ vísi . Ég hef mjög mikla reynslu en stað­ an núna er ábyrgð okkar allra en ekki ein­ hvers eins. Mér finnst gott að koma inn á heimili þitt af því að ég sé að þessi sófi er frekar gamall. Þú ættir flottari sófa ef þú værir að svíkja undan einhverju, en hvernig kýs maður? Maður gerir það bara á netinu í fartölvunni sinni, hvar sem maður er staddur. Einmitt. Ég mæli allavega með að allir kjósi Hróa hött. Takk fyrir það, því Hróa hött langar að fá tækifæri til að sam­ eina félagshyggjuöflin í kosning­ unum sem eru í haust. Heilbrigðis­ málin, stjórnarskráin, kjaramál og þjóðar­ atkvæðagreiðslur eru fá en skýr mál sem ná má hreinum meiri­ hluta saman um í haust. Hrói höttur sameinar félagshyggjuöflin Helgi Hjörvar og Anna Svava Knútsdóttir Valdimar tekur vel í að semja baráttulag fyrir Oddnýju og Samfylkinguna. Helgi heillaðist af Hróa hetti. SAMFYlkinGin 28. maí 2016 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.