Morgunblaðið - 02.09.2019, Side 1

Morgunblaðið - 02.09.2019, Side 1
M Á N U D A G U R 2. S E P T E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  205. tölublað  107. árgangur  FRAMSÝNIR FRUMKVÖÐLAR Í FLUGI ALLAR ERU TILBÚNAR Í SLAGINN SKÝ Á SÍÐKVÖLDI ÝTTU HONUM ÚT Í SKRIFTIR UNDANKEPPNI EM 2021 36 GRÁSKINNA ARNGRÍMS 36FLOGIÐ Í HEILA ÖLD 6 Stórsöngvarinn Raggi Bjarna kvaddi stóra sviðið með stórtónleikum í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi aðdá- enda. Fjöldi söngvara lagði Ragga lið, þeirra á meðal Katrín Halldóra Sigurðardóttir, söng- og leikkona, sem sést hér í miðri sveiflu með honum. Fyrir tónleikana sagði Raggi að helst vildi hann þakka Guði fyrir að röddin héldist þrátt fyrir að annað sem við kæmi skrokknum væri farið að segja til sín. „Röddin heldur. Svo lengi sem hún gerir það syng ég,“ sagði hann. Raggi verður áttatíu og fimm ára síðar í mán- uðinum. Hann var fimmtán ára þegar hann kom fyrst fram og spannar því ferillinn sjötíu ár. »4 Með sjötíu ár að baki kvaddi Raggi Bjarna stóra sviðið Morgunblaðið/Eggert  Með því að taka upp nýtt ljósa- stýringarkerfi er hægt að flýta um- ferð einkabíla um 15% og draga úr tafatíma við ljós um 50%. Þetta segir Ólafur Kr. Guðmundsson, umferðarsérfræð- ingur og varaborgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Borgarfulltrúar flokksins munu á morgun leggja fram tillögu á fundi borgarstjórnar um að innleiða nýja tækni í umferðarstýringu. »11 Flýta mætti umferð- inni um 15% með nýju ljósakerfi Bílar Ljósastýring- ar gætu flýtt för.  Færst hefur í aukana að fólk komi með ílát í verslanir á borð við fisk- og ísbúðir og komist þannig hjá því að fá matvöruna í einnota plastumbúðum. Með árvekniátak- inu Plastlaus september er vakin athygli á þeim umhverfisskaða sem notkun einnota plasts veldur og hvatt til að draga úr plastnotkun. Aron Elí Helgason, verslunar- stjóri í fiskverslun Hafsins, segir að talsvert sé um að fólk komi með eld- föst mót og potta í verslunina þegar það kaupir fisk „Okkur finnst þetta frábært,“ segir hann. »14 Margir koma með pott í fiskbúðina Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Fulltrúar Orkunnar okkar munu í dag afhenda forseta Alþingis undir- skriftir við áskorun félagsins um að hafna þriðja orkupakkanum, að sögn Frosta Sigurjónssonar, eins tals- manna Orkunnar okkar. Atkvæða- greiðsla um orkupakkann fer fram í dag en fundur þingforseta og Ork- unnar okkar verður áður en at- kvæðagreiðslan hefst. Þingflokksformenn sem Morgun- blaðið ræddi við í gær áttu sumir hverjir von á því að atkvæðagreiðsl- an gæti tekið nokkurn tíma. Margir þeirra töldu málið útrætt, en deilt hefur verið um hvort nokkuð nýtt hafi komið fram í málinu á sumar- þinginu sem nú lýkur senn. 16.700 skrifað undir Líklegt má telja að þriðji orku- pakkinn verði samþykktur í dag. Frosti segir að barátta Orkunnar okkar haldi áfram, fari svo. „Barátt- an fyrir fullu forræði Íslendinga yfir eigin orkumálum heldur áfram,“ segir hann. „Orkupakkinn tekur ekki gildi nema forsetinn samþykki hann. Forsetinn gerir samninga við erlend ríki samkvæmt 21. gr. stjórn- arskrárinnar. Við munum skora á forsetann að fallast ekki á þetta og höfum birt honum slíka áskorun. Það er næsta skref,“ segir Frosti. Verði forsetinn ekki við þessu verði skorað á hann að samþykkja ekki þau frum- vörp sem leiða af orkupakkanum, t.d. um breytingar á lögum um orku- stofnun o.fl. „Ef allt þetta bregst heldur bar- áttan áfram, það kemur orkupakki fjögur, kosningar og síðan næstu kosningar. Þá munum við biðja alla stjórnmálaflokka að gefa upp hver afstaða þeirra er til orkumála svo að kjósendur geti valið flokka. Þetta er sannarlega eitt mikilvægasta hags- munamál þjóðarinnar. Engin þjóð á meira undir raforkumálum en Ís- lendingar. Við erum tvöfalt meiri raforkuþjóð en Norðmenn miðað við íbúafjölda,“ segir Frosti, en sem fyrr segir mun Orkan okkar afhenda þingmönnum áskorun um að hafna orkupakkanum. „Um miðjan dag í dag [í gær] höfðu rúmlega 16.700 einstaklingar tekið undir þessa áskorun, bæði skriflega og á netinu,“ segir Frosti. „Klukkan 10.30, þegar atkvæðagreiðsla fer að hefjast um orkupakkann, hafa þingmenn fengið þessar áskoranir í hendurnar,“ segir hann. Skora á þingheim að hafna pakkanum  Atkvæði greidd um OP3 í dag  „Baráttan heldur áfram“ MOP3 á síðustu metrunum »10 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Orkupakkinn klárast með atkvæðagreiðslu í þinginu í dag. Fellibylurinn Dorian gekk á land á Bahamaeyjum í gær. Vindhraði hans mældist 82 m/s sem gerir hann kröfugasta fellibyl svæðisins til að ganga á land síðan mælingar hófust. „Við erum að kljást við fellibyl ólík- an öllum öðrum sem við höfum séð í sögu Bahamaeyja,“ sagði Hubert Minnis, forsætisráðherra Bahama- eyja, á blaðamannafundi. „Ég vona bara að allir hafi hlustað á ráð yfir- valda og haldið sig innandyra,“ seg- ir Svíinn Magnus Alnebeck, hótel- stjóri Pelican Bay á Grand Bahama, í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Hann og eiginkona hans ætla að sitja af sér fellibylinn á hótelinu. »13 AFP Strönd Sjávarflóð fylgir Dorian. Dorian gekk á land  Fellibylur skekur Bahamaeyjar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.