Morgunblaðið - 02.09.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Íslendingar eru framsýnir og
voru flestum þjóðum fljótari að til-
einka sér flugið. Aðeins liðu sextán
ár frá því að vél Wright-bræðra
hóf sig á loft í Bandaríkjunum uns
fyrsta flugvélin kom hingað til
lands og tók flugið úr Vatnsmýr-
inni. Það eru tímamótin sem við
hyggjumst nú minnast og sömu-
leiðis frumkvöðlanna; fólks með
stórar hugmyndir sem sá tækifæri
í því mikla ævintýri sem flugið er,“
segir Matthías Sveinbjörnsson, for-
seti Flugmálafélags Íslands.
Fyrsta lággjaldaflugfélagið
Í tilefni 100 ára afmælis flugs
á Íslandi stendur Flugmálafélag Ís-
lands fyrir móttöku á Reykja-
víkurflugvelli á morgun, 3. sept-
ember, kl. 16.15. Þar verður þess
minnst að þennan dag er öld síðan
flugvél fór fyrst í loftið á Íslandi.
Meðal annars verður afhjúpað
módel af Avro 504K, en fyrsta
flugvélin á Íslandi var einmitt
þeirrar gerðar. Af þessu tilefni
stendur Flugsafn Íslands fyrir
sögutengdri sýningu á sama tíma
og efnt verður til samkomu sem
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, mun ávarpa.
„Fyrir sextíu árum eða svo
hófu Loftleiðir lággjaldaflug yfir
Atlantshafið, milli Lúxemborgar
og New York, sem þá var algjört
nýmæli. Fargjöldin voru lág og því
á færi almennings að fljúga álfa á
milli með tengingu í gegnum Ís-
land. Í því lá galdurinn hjá frum-
kvöðlunum og kannski áttu þeir
stóran þátt í því að skapa þann
mikla áhuga á flugi sem liggur
djúpt í þjóðarsálinni,“ segir Matt-
hías og heldur áfram:
„Auðvitað hefur flugrekstur á
Íslandi síðustu öldina átt misjafna
tíma. Flugfélag Íslands hið fyrsta,
sem var stofnað árið 1919, varð
gjaldþrota eftir tveggja ára starf-
semi og ótalmörg fleiri fyrirtæki í
flugrekstri hafa farið sömu leið.
Alltaf hefur þó komið eitthvað nýtt
og sterkara í staðinn, þá jafnan
einkarekstur.“
Á ýmsu hefur svo gengið í
flugi á Íslandi á þessu ári. Í sumar
urðu tvö flugslys þar sem samtals
fjórir létust, WOWair varð gjald-
þrota í mars og viðsjár hafa verið
uppi í rekstri Icelandair. Þá berast
ýmsar fregnir af vanda innan-
landsflugsins sem gert er út frá
Reykjavíkurflugvelli, sem margir
vilja burt.
„Já, það hefur vissulega verið
ókyrrð í lofti síðustu misserin.
Svona sveiflur hafa þó oft komið
áður í aldarsögu flugs á Íslandi,“
segir Matthías. „Skilaboðin sem
flugslysum í ár fylgja eru að aldrei
sé of varlega farið og að öryggis-
málin þurfa alltaf að vera í for-
gangi nú sem endranær. Um önnur
málefni verður að segjast að nei-
kvæð afstaða meirihlutans í
borgarstjórn gegn Reykjavíkur-
flugvelli og flugi almennt er
hneisa.“
Rafmagnsflugvélar senn
Nú um stundir er horft til
grænna lausna í flugi, enda er út-
blástur flugvéla sem fara hátt í
himinhvolfinu mengunarvaldur.
Um þetta segir Matthías að halda
verði til haga að flug skapi aðeins
2-3% af losun gróðurhúsaloftteg-
unda í heiminum, þó á Íslandi sé
hlutfallið rétt rúmlega um 6%. Allt
flug íslenskra véla um loftin blá sé
í þeirri tölu.
„Það er ekki langt í að flug-
vélar knúnar rafmagni komist í
notkun. Vestanhafs eru nú þegar
komnar rafmagnsvélar með um
klukkustunda flugþol, sem nær í
tvo til þrjá tíma eftir örfá ár. Í dag
vinna verkfræðingar í að um það
bil 100 verkefnum í sambandi við
rafknúnar flugvélar og ýmislegt
spennandi mun væntanlega koma
út úr þeirri vinnu. Að fljúga og
reka rafknúnar eða tvinnflugvélar
kostar aðeins um 20% af því sem
gerist með vélar knúnar jarð-
efnaeldsneyti. Á næstu fimm til tíu
árum trúi ég því að komnar verði
tvinnflugvélar sem gætu hentað í
öllu innanlandsflugi á Íslandi.“
Aldarafmælis flugs á Íslandi minnst með hátíð á morgun, 3. september
Morgunblaðið/Eggert
Flugmaður Fólk með stórar hugmyndir sá tækifæri í fluginu, segir
Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, í viðtalinu.
Flugið og þjóðarsálin
Matthías Sveinbjörnsson er
fæddur 1974. Hann hefur tekið
virkan þátt í grasrótarstarfi
flugs en auk þess starfað sem
forstöðumaður tekjustýringar
hjá Icelandair og er nú flug-
maður hjá félaginu. Matthías,
sem er verkfræðingur að
mennt, hefur jafnframt starfað
víða í nefndum og ráðum í flug-
tengdum málum.
Í stjórn Flugmálafélagsins
frá 2003 og forseti frá 2014.
Hver er hann?
Ekki liggur fyrir hvort Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra og Mike
Pence, varaforseti Bandaríkjanna,
munu hittast þegar hann kemur
hingað til lands á miðvikudag. Eins
og komið hefur fram verður Katrín
erlendis vegna þings Norrænu
verkalýðssamtakanna en kemur til
baka á miðvikudaginn.
Sagði hún í gær að í skoðun væri
hvort möguleiki væri á að hún og
Pence hittust þegar hann væri að
fara og hún að koma.
Ekki fengust frekari upplýsingar
um mögulegan fund þeirra tveggja
hjá utanríkisráðuneytinu.
Í Morgunblaðinu á laugardag var
greint frá því að Bandaríkjamenn
hefðu farið fram á götulokanir í
Reykjavík meðan á heimsókn
Pence stæði. Ekki fengust upplýs-
ingar um hvort orðið yrði við þess-
um óskum þegar leitað var eftir því
hjá lögreglu í gær.
Fundur Katrínar og Pence ekki út af borðinu
AFP
Gesturinn Von er á varaforsetanum Mike
Pence hingað til lands á miðvikudag.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrstu réttir haustsins voru um
helgina og sláturhúsin eru að hefja
sauðfjárslátrun. Stjórnendur slátur-
húsa sem byrjuð eru að slátra láta vel
af lömbunum en segja það mismun-
andi eftir svæðum hvernig bændur
lýsi stöðunni. Meðalfallþungi er þó
væntanlega ekki jafn mikill og á síð-
asta ári, en þá var hann með því besta
sem sést hefur.
Réttað var á stöku stað á Norður-
landi um helgina, aðallega í Mývatns-
sveit og Bárðardal. Fyrsta stóra rétta-
helgin verður um komandi helgi, eins
og sjá má á réttalista sem birtur er á
vef Bændablaðsins, bbl.is, en þá verð-
ur réttað í flestum héruðum norðan-
lands. Stóru fjárréttirnar á Suðurlandi
verða síðan um miðjan mánuðinn.
Stóðréttir verða seinnihluta mán-
aðarins og fram í október. Frægasta
stóðréttin, Laufskálarétt í Skagafirði,
verður 28. september.
Illa gekk að fá lömb
Svokölluð sumarslátrun hefur ver-
ið í gangi hjá einhverjum sláturhús-
um og regluleg slátrun er hafin hjá
Norðlenska á Húsavík. Flest stóru
sláturhúsin hefja daglega slátrun í
þessari viku.
„Það hefur ekki gengið nógu vel að
fá fé. Við höfum þurft að fella niður
slátrun. En það er aðeins að rofa til
núna,“ segir Davíð Gestsson, fram-
kvæmdastjóri Sláturhúss KVH á
Hvammstanga. Þar hefur í mörg ár
verið slátrað fé fyrir reglulega slátur-
tíð til að flytja ferskt kjöt til Banda-
ríkjanna. Sá markaður lokaðist raun-
ar í ár en ætlunin var þó að slátra átta
þúsund fjár fyrir innanlandsmarkað
og eftir atvikum útflutning. Davíð
segir útlit fyrir að aðeins helmingur af
þeim fjölda náist. „Menn segjast vera
í heyskap og telja að verðið fyrir inn-
leggið sé ekki nógu hátt, svo að ekki
borgi sig að koma með lömbin svona
snemma,“ segir Davíð.
Hann segir að lömbin séu góð,
fyrstu dagana hafi meðalfallþunginn
verið rétt rúm 15 kg og farið upp í rúm
17 kg. Það sé svipað og undanfarin ár,
jafnvel betra.
Lömbin í betra lagi
„Lömbin í réttinni eru mjög fín en
það er aðeins mismunandi eftir svæð-
um hvernig bændur bera sig. Víða
virðast þau vera í betra lagi,“ segir
Sigmundur Hreiðarsson, framleiðslu-
stjóri Norðlenska á Húsavík, en þar
hófst sauðfjárslátrun á fimmtudag.
Reiknað er með aukningu í slátrun á
Húsavík, þar sem Norðlenska hættir
slátrun á Höfn í Hornafirði og stór
hluti viðskiptavina færir sig til Húsa-
víkur. Sigmundur býst við yfir 100 þús-
und fjár, sem yrði mesta slátrun í því
húsi.
Vel hefur gengið að ráða starfsfólk.
Koma um 100 manns af 12 þjóðernum
til starfa í sláturtíð og bætast við þann
fjölþjóðlega hóp sem fyrir er. „Við
fáum mikið af sama fólkinu ár eftir ár.
Það skiptir sköpum,“ segir Sigmundur.
Lömbin koma væn úr fjallhögum
Fyrstu réttir voru um helgina Stóru réttadagarnir eru um næstu og þarnæstu helgi Sauðfjár-
slátrun að síga í gang Norðlenska hóf slátrun fyrir helgi og önnur sláturhús hefja starfsemi í vikunni
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Réttir Fjársafnið af Austurfjöllum var rekið vestur yfir Námafjall til Hlíðaréttar við Reykjahlíð í Mývatnssveit í
gær. Stemning var meðal fólks og fjár, einstaka kindum lá svo á að komast inn í réttina að þær stukku yfir hópinn.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Pappelina er 20 ára!
20% afsláttur af öllum mottum í september
Brautarholti 24 • 105 Reykjavík • S.: 562 6464 • henson@henson.is
SENNILEGA FJÖLHÆFASTA FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI ÍSLANDS
OG ÞÓ AÐ VÍÐAR VÆRI LEITAÐ!
• FLOTTUSTU BÚNINGARNIR.
• ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA
FRAMLEIÐSLU EÐA MERKINGAR.
• 846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS
TIL MERKINGA EÐA EKKI.
SÍÐAN 1969