Morgunblaðið - 02.09.2019, Page 8

Morgunblaðið - 02.09.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019 Diklofenak Apofri hlaup, 11,6 mg/g, inniheldur diclofenac tvíetýlamín sem er bólgueyðandi og dregur úr verk. Diklofenak Apofri er notað til meðferðar á staðbundnum verk í tengslum við meiðsli í vöðva eða lið. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. DIKLOFENAK APOFRI HLAUP - BÓLGUEYÐANDI OG DREGUR ÚR VERK - Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, pír-ati og formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, segir vel koma til greina að breyta akreinum í for- gangsakreinar fyrir strætó á há- annatímum. Þetta gæti orðið strax á næsta ári. Þetta kom fram í frétt Ríkis- útvarpsins og er til- efnið mikill um- ferðarþungi á morgnana og síð- degis eftir að sumar- fríum lauk. Fram kemur að fólk sé allt að klukkustund að aka leið sem yfir sumartímann tekur aðeins nokkrar mínútur.    Umferðarþunginn í borginni hef-ur verið að aukast árum saman og „lausn“ borgaryfirvalda hefur verið að leggja reiðhjólastíga og ausa milljörðum í strætó, með aðstoð ríkissjóðs, auk þess að þrengja götur og hafna mislægum gatnamótum eða öðru sem myndi bæta flæði um- ferðar.    Og nú er lausnin sem sagt aðþrengja enn frekar að þeim um það bil 90% sem kjósa að ferðast um í eigin bíl með því að taka af þeim akreinar.    Þetta segir Sigurborg að snúistum að „þora“ að taka svona ákvarðanir. En til að leysa um- ferðarvandann í Reykjavík þarf ekki einhverja hetjulega baráttu öfga- manna gegn einkabílnum. Vandinn verður aðeins leystur með því að greiða fyrir umferðinni, til dæmis með því að breikka götur þar sem það er hægt í stað þess að þrengja þær og að koma fyrir mislægum gatnamótum sem víðast.    Leið meirihluta borgarstjórnarhefur misheppnast rækilega og viðbrögðin við því mega ekki vera að ganga enn lengra. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir Ganga lengra í sömu ógæfuátt STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Virðisaukaskattur sem lagður hef- ur verið á tíðavörur og getnaðar- varnir og kallaður hefur verið „bleiki skatturinn“ lækkaði úr 24% og er 11% frá og með deginum í gær. Þetta gerðist í kjölfar frumvarps sem samþykkt var á Alþingi í júní síðastliðnum. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, var fyrsti flutningsmaður frum- varpsins en að því stóðu einnig þingmenn Miðflokks, Samfylkingar og Flokks fólksins. Þórhildur Sunna sagði lagabreyt- inguna nauðsynlegt skref til að jafna bilið á milli kynjanna þegar kæmi að nauðsynlegum hreinlætis- vörum og getnaðarvörnum. Um er að ræða einnota og marg- nota tíðavörur, þar með talin dömu- bindi, tíðatappa og álfabikara ásamt öllum tegundum getnaðar- varna. Markmiðið er að stuðla að bættri lýðheilsu og færa Ísland nær þeirri þróun sem orðið hefur í öðr- um löndum með tilliti til aðgengis að nauðsynlegum hreinlætisvörum og getnaðarvörnum á undan- förnum árum, eins og segir í texta frumvarpsins. Þar segir að enginn kostnaður sé áætlaður vegna þessara breytinga, en áætlað tekjutap vegna virðis- aukaskatts sé rúmar 40 milljónir á ári. Bleiki skatturinn var afnuminn í gær Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, bet- ur þekkt sem GDRN, er bæjarlista- maður Mosfellsbæjar árið 2019. Val- ið var tilkynnt á sérstakri hátíðar- dagskrá í lok bæjarhátíðarinnar Í túninu heima sem var haldin í Mos- fellsbæ um helgina. Guðrún Ýr er uppalin í Mosfells- bæ. Hún hóf fiðlunám í Tónlistar- skóla Mosfellsbæjar fimm ára, stundaði síðan nám í Suzuki skól- anum í 11 ár og lærði djasssöng og djasspíanó í FÍH meðfram námi í menntaskóla. Hún gaf út sína fyrstu tónlist árið 2017 og sló í gegn með laginu Lætur mig sumarið 2018. Á Íslensku tón- listarverðlaununum fyrr á þessu ári hlaut Guðrún fern verðlaun. Plata hennar Hvað ef var valin poppplata ársins og lagið Lætur mig var valið popplag ársins. Að auki var hún val- in söngkona ársins í flokki popp-, rokk-, raf- og hipphopptónlistar og hlaut verðlaun fyrir tónlistarmynd- band ársins. Í rökstuðningi menningar og ný- sköpunarnefndar Mosfellsbæjar segir: „Guðrún Ýr er fyrirmynd og innblástur fyrir konur í tónlist, upp- rennandi stjarna og magnaður mos- fellskur listamaður.“ GDRN tileinkaði verðlaunin öllu því tónlistarfólki og tónlistarkenn- urum sem hefðu miðlað af reynslu sinni til hennar í gegnum árin. Magnaður mosfellskur listamaður  Söngkonan GDRN var valin bæjarlistamaður Mosfellsbæjar um helgina GDRN Hún var valin bæjarlista- maður Mosfellsbæjar 2019. Kona sem óskar þess á rétt á þungunarrofi fram að lokum 22. viku þungunar frá og með deg- inum í gær, en þá tóku gildi ný lög um þungunarrof. Þar með voru leiddar í lög reglur sem mikið var tekist á um á Alþingi í vor. Markmið laganna er að tryggja að sjálfsforræði kvenna sem óska eftir þungunarrofi sé virt með því að veita þeim öruggan að- gang að heilbrigðisþjónustu, eins og segir í 1. málsgrein 1. greinar laganna. Frumvarpið var samþykkt um miðjan maímánuð. 40 þingmenn greiddu atkvæði með því, 18 voru á móti og þrír greiddu ekki at- kvæði. Tveir þingmenn voru fjar- verandi. Ofannefnt ákvæði, þ.e. 1. mgr. 4. gr. nýju laganna, var sá hluti þess sem helst var tekist á um og komu mörg sjónarmið fram. Páll Magnússon, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, lagði til að mark- ið yrði sett við 20. viku þungunar en ekki 22. en Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra sagði að sjálf hefði hún viljað ganga lengra og treysta konum til fulls með því að hafa engin tímamörk á þungunarrofi. Ný lög um þungunarrof tóku gildi í gær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.