Morgunblaðið - 02.09.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019
Í vinnunni Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður VG, var önnum kafinn þegar ljósmyndari Morgunblaðsins leit við á Alþingi á hinum svokallaða tveggja daga þingstubbi í síðustu viku.
Kristinn Magnússon
Miðlægir kjarasamningar eru
mikilvægur þáttur í norræna
vinnumarkaðslíkaninu. Á grund-
velli kjarasamninga standa launa-
fólki til boða góð og viðeigandi
starfskjör. Við sjáum ekkert því til
fyrirstöðu að gerðir séu kjara-
samningar við atvinnurekendur
vegna vinnu sem unnin er gegnum
netvanga. Kjarasamningar eru í
eðli sínu sveigjanlegir og nú blasir
við það verkefni að laga þá að nýj-
um aðstæðum. Ábyrgðin á þessu
verkefni liggur jafnt hjá stéttar-
félögum sem fyrirtækjum.
Stéttarfélögin þurfa einnig að
hugsa upp nýjar leiðir til að ná til
þeirra félagsmanna sem starfa
gegnum netvanga. Við þurfum að
sætta okkur við að netvangar verði
notaðir til að lækka laun eða skerða
kjör og réttindi félagsmanna okkar
á annan hátt.
Hvernig eiga þá stéttarfélög há-
skólafólks að bregðast við þessum
breyttu aðstæðum?
lítur það jákvæðum augum að geta
starfað undir öðrum formerkjum
en hefðbundnu ráðningarsam-
bandi.
Það er ábyrgð stjórnmálamanna
að tryggja að lagaumhverfi vinnu-
markaðar taki mið af tækni-
framförum og að einstaklingum séu
tryggð réttindi óháð ráðning-
arformi. Enn fremur er mikilvægt
að löggjöf og reglur um persónu-
vernd fylgi þróun tækninnar.
Netvangar eru kærkomin leið til
nýsköpunar, sveigjanleika, hag-
vaxtar og fjölgunar starfa fyrir há-
skólamenntað fólk, svo fremi sem
félagsmönnum okkar eru boðin góð
kjör og leikreglum vinnumarkaðar-
ins er fylgt. Við munum aldrei
Fyrirtækið Sam-
funnsøkonomisk Ana-
lyse (SØA) í Noregi
hefur, að tilstuðlan
bandalaga háskóla-
fólks á Norðurlöndum,
gert úttekt á vaxtar-
möguleikum svokall-
aðra „netvanga“ en
það eru vefsíður sem
hafa milligöngu um kaup og sölu á
þjónustu. Skýrsla úttektarinnar
verður kynnt á samnorrænni ráð-
stefnu í Malmö í dag.
Skýrslan leiðir í ljós að umsvif
slíkra netvanga eru ekki ýkja mikil
enn sem komið er. En það er sann-
færing þeirra sem úttektina unnu
að framundan sé vöxtur á þessu
sviði og því er nauðsynlegt fyrir
stéttarfélög að fylgjast vel með
þróuninni.
Fram kemur að hér er ekki ein-
ungis um að ræða þjónustu eins og
Airbnb heldur munu netvangar
einnig ná til starfa margs konar
sérfræðinga, s.s. þýðenda, sálfræð-
inga, verkfræðinga, lögfræðinga og
hagfræðinga. Margt háskólafólk
höfða til alls háskólamenntaðs
fólks, óháð því hvernig sambandi
þess við atvinnurekendur er
háttað. Aðildarfélög okkar, sem
miða félagsaðild við tiltekna
menntun eða starfsgrein, búa yfir
mikilli reynslu í þessum efnum og
ættu auðveldlega að geta höfðað til
fólks í föstu ráðningarsambandi
jafnt sem sjálfstætt starfandi fólks.
Við verðum að tryggja viss rétt-
indi fyrir alla okkar félagsmenn.
Við höfum mikilvægum skyldum að
gegna gagnvart þeim, óháð því
hvar og hvernig þeir vinna. Við
þurfum að geta útskýrt fyrir þeim
hvaða áhrif mismunandi vinnufyr-
irkomulag hefur á stöðu þeirra og
ýmis réttindi, s.s. lífeyrisréttindi og
atvinnuleysistryggingar. Markmið
okkar er að félagsmenn geti tekið
upplýstar ákvarðanir í þessu sam-
bandi. Við viljum vinna að því að
allir félagsmenn búi við sambæri-
leg starfskjör og réttindi, óháð því
hvernig tengslum þeirra við at-
vinnurekanda er háttað.
Eftir Göran Arrius,
Kari Sollien, Lars
Qvistgaard, Sture
Fjäder og Þórunni
Sveinbjarnardóttur
»Við viljum vinna að
því að allir félags-
menn búi við sambærileg
starfskjör og réttindi,
óháð því hvernig
tengslum þeirra við at-
vinnurekanda er háttað.
Göran
Arrius
Göran Arrius er formaður Saco,
Svíþjóð; Kari Sollien er formaður
Akademikerne, Noregi; Lars
Qvistgaard er formaður AC,
Danmörku; Sture Fjäder er formaður
Akava, Finnlandi; Þórunn Svein-
bjarnardóttir er formaður BHM.
tsv@bhm.is
Kari
Sollien
Lars
Qvistgaard
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Sture
Fjäder
Frá Airbnb til netvanga fyrir háskólamenntað fólk
Í dag fer fram at-
kvæðagreiðsla á Al-
þingi um þriðju orku-
tilskipun Evrópu-
sambandsins. Stjórnin
og stjórnarsamstaðan
virðast vera staðráðin í
því að samþykkja þetta
regluverk í trássi við
vilja meirihluta lands-
manna.
Nýtt uppi á borðinu
Mikil umræða fór fram í vor á Al-
þingi og tókst þingmönnum Mið-
flokksins að fá málinu frestað fram á
haustið. Enginn vafi er á því að það
var fallið til þess að auka almennar
umræður um málið og draga fram
nýjar staðreyndir og sjónarmið. Nú
ber svo við að fylgjendur orkupakk-
ans hafa það eitt fram að færa að end-
urtaka í sífellu að ekkert nýtt hafi
komið fram í málinu. Þeirra vegna er
vert að rifja upp hvað hefur breyst í
málinu í sumar og hvaða nýjar upp-
lýsingar liggja fyrir sem ekki lágu
fyrir í vor.
Einskis nýtir
fyrirvarar
Berlega hefur komið í
ljós að lagalegir fyrir-
varar ríkisstjórnarinnar
hafa ekkert þjóðréttar-
legt gildi. Varla fyrir-
finnst lengur nokkur
maður sem gerir tilraun
til að halda öðru fram og
hefur farið grunsamlega
lítið fyrir þeim sem héldu
fyrirvaranum á lofti í
vor. Þannig hefur and-
stæðingum málsins tekist að leiða
fram þá staðreynd að fyrirvararnir,
sem voru forsenda þess að málið rann
í gegnum þingflokka stjórnarflokk-
anna, hafa ekkert gildi að þjóðarétti.
Lítil þolinmæði fyrir
slælegri innleiðingu
Nýleg ákvörðun Evrópusambands-
ins um að draga Belgíu fyrir Evrópu-
dómstólinn í samningsbrotamáli fær-
ir okkur heim sanninn um að við
Íslendingar verðum ekki teknir nein-
um vettlingatökum ef sambandið tel-
ur að við höfum ekki innleitt þriðja
orkupakkann réttilega.
Fjórði orkupakkinn
Í þriðja lagi hefur fjórði orkupakk-
inn litið dagsins ljós eftir staðfestingu
æðstu stofnana í Evrópusambandinu.
Greinilegt er, af fréttum af innihaldi
hans, að þar er að finna fjölmörg
álitaefni, sem eru alls órædd í
tengslum við það sem liggur fyrir að
greiða atkvæði um á Alþingi. Aug-
ljóst er að brýn þörf er að ræða þessi
mál saman enda er hér um að ræða
samfellu í löggjöf á sviði raforkumála
á öllu Evrópusvæðinu.
Ósammála óbreyttri tillögu
Fram kom tillaga frá einum
stjórnarþingmanni í sumar þess efnis
að setja inn ákvæði samhliða orku-
pakkanum um þjóðaratkvæði komi til
þess að ósk berist um tengingu með
sæstreng hingað til lands. Undir
þessa tillögu þingmannsins hafa
nokkrir aðrir stjórnarþingmenn tek-
ið. Er varla við því að búast að þessir
þingmenn geti samþykkt orkupakka-
málið óbreytt.
Ekki nægileg lagastoð fyrir
reglugerð ráðherra
Væntanleg er reglugerð iðnaðar-
ráðherra sem ætlað er að innleiða
hina mjög svo umdeildu reglugerð
EB 713/2009, þar sem Orkustofnun
Evrópu (ACER) er falið víðtækt
valdsvið á sviði raforkumála. Ætlan
ráðherra er að styðja útgáfu reglu-
gerðarinnar við 45. grein raforkulaga
sem heimilar ráðherra að gefa út
reglugerðir um framkvæmd raf-
orkulaga! Fræðimenn hefur greint á
um hvort einstök ákvæði ofan-
greindrar reglugerðar (EB 713/2009)
stangist á við ákvæði stjórnarskrár,
sem feli í sér framsal á ríkisvaldi til
evrópskrar stofnunar. Af hálfu Mið-
flokksins hefur verið bent á að inn-
leiðing svo víðtækrar löggjafar Evr-
ópusambandsins, með reglugerð
ráðherra sem styðst ekki við merki-
legri lagaákvæði en hér var nefnt,
geti engan veginn staðist.
Engar hamfarir
Formaður, varaformaður og fleiri
þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa,
á síðustu dögum, látið uppi þá skoðun
sína að þeir telji engin vandkvæði al-
mennt á að nýta rétt okkar skv. 102.
gr. samningsins til að fara með mál
fyrir sameiginlegu EES-nefndina og
óska undanþágu, en sjá þó ekki þörf-
ina á slíku í þessu máli. Þannig hafa
þeir skilið utanríkisráðherra einan
eftir með hamfaralýsingar sínar um
viðbrögð Evrópusambandsins við
slíkri beiðni.
Hafa ekki getað útskýrt þörfina
Fyrir utan ofangreinda ágalla
hyggjast fylgismenn orkupakkans
innleiða regluverkið þrátt fyrir aug-
ljósa andstöðu meirihluta lands-
manna. Ríkisstjórninni er fyrirmunað
að útskýra þörfina á að nauðsynlegt
sé að samþykkja þriðju orkutilskip-
unina. Allt lítur út fyrir að þingmeiri-
hluti ætli að samþykkja tillöguna.
Þeir þingmenn gera það með galopin
augu.
Eftir Karl Gauta
Hjaltason » Allt lítur út fyrir
að þingmeirihluti
ætli að samþykkja
tillöguna. Þeir þing-
menn gera það með
galopin augu.
Karl Gauti Hjaltason
Höfundur er þingmaður Miðflokksins.
kgauti@althingi.is
Með galopin augu