Morgunblaðið - 02.09.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.09.2019, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019 Ég hef nú orðið fyr- ir sárum vonbrigðum með mína eigin flokks- menn, þ.e. þessa, sem ég vil kalla orku- pakkasjálfstæðismenn, því þeir virðast ekki kæra sig lengur um sjálfstæði þjóðarinnar né framtíð hennar. Mér finnst að þeir geti ekki lengur kallað sig sjálfstæðismenn; þeir eru að eyðileggja Sjálfstæðisflokk- inn og ættu að fara eitthvert annað. Mér er óskiljanlegt hvers vegna þörf er á að innleiða þennan þriðja orkupakka hér á landi. Ef afþökkun hans veldur einhverju uppnámi gagnvart EES-samningnum, liggur þá ekki beint við að endurskoða hann? Hann getur ekki verið neitt óumbreytanlegt eilífðarplagg. Hvað gengur þessu fólki eiginlega til? Er meiningin að einkavæða Lands- virkjun og selja hana svo? Maka svo krókinn með sæstreng? Hefur þetta fólk einhverra persónulegra hags- muna að gæta? Að skara eld að eigin köku? Þann 10. apríl sl. rit- aði ég ofanskráð orð á fésbókina og deildi þeim; opið að mig minnir. Þann tíma sem liðinn er síðan hef ég fylgst með umræðu og annarri umfjöllun um orkupakka 3, í þeim tilgangi að reyna að öðlast skilning á þessu máli og jafnvel fá svör við ein- hverjum af spurningunum, sem ég setti fram. Smámsaman held ég að svörin hafi verið að koma. Ekki þó frá forkólfum pakkans; þeir hafa aldrei sagt neitt að gagni um inni- hald hans, aðeins hvað ekki væri í honum. Aldrei sagt hreinskilnislega nokkuð um leyndarmálið, raunveru- legan tilgang innleiðingar pakkans Nú finnst mér það loks, nærri fimm mánuðum seinna koma berlega í ljós. Ég er smeykur um að svarið við hverri áðurnefndra spurninga minna sé: já. Er ekki meiningin að selja „mjólkurkúna“, Landsvirkjun, sem þó greiddi þjóðinni 4,25 millj- arða króna í arð fyrir sl. ár 2018? Mun ekki Alþingi samþykkja lagn- ingu sæstrengs til landsins þegar það hefur innleitt O3, sem allt bendir til að gert verði í byrjun september nk.? Enda tvö sæ- strengsverkefni í startholunum og bíða samþykkis orkupakkans. Hafa ekki einhverjir peningamenn, jafn- vel þingmenn og ráðherrar, verið að kaupa jarðir víðsvegar um landið með vatnsréttindum, jarðvarma eða möguleika á gerð vindmyllugarða? Það mun líka vera búið að veita leyfi fyrir 28 smávirkjunum fyrir utan áform um stærri virkjanir Landsvirkjunar eða annarra. Ég leyfi mér nú hér með að vitna í skrif Arnhildar Ásdísar Kolbeins í Fréttatímanum um orkumál. Hún skrifar m.a.: „Eitt meginstefnumið orkupakka 3 er að útrýma hindr- unum á tengingum við hinn svokall- aða innriorkumarkað. Orkupakki 4, sem ESB kynnti á dögunum og tek- ur við af O3, felur í sér nokkuð af- dráttarlausa kröfu um tengingar allra aðildarríkja yfir landamæri auk verulega aukins valds og mið- stýringar sambandsins í orku- málum ... Við höfum full not fyrir raforku okkar innanlands og við eigum að nýta hana skynsamlega til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag. Sú raforka sem við höfum tök á að framleiða er aðeins dropi í hafið þegar litið er til hinnar miklu þarfar sem er til stað- ar í Evrópu fyrir vistvæna orku... Hinsvegar myndi innleiðing O3 og O4 geta þjónað gróðasjónar- miðum ýmissa aðila vel sem sæju hag sinn í að leggja sæstreng til landsins til að selja vistvæna raf- orku erlendis. ... Niðurstaða innleiðingar orku- pakka 3 væri óhjákvæmilega sú að raforkuverð myndi hækka og ákvörðunarvald í orkumálum hyrfi úr landi. Það er ekki glæsileg fram- tíðarsýn.“ Þetta eru brot úr ágætri grein Arnhildar og finnst mér þau renna stoðum undir mína sýn á málið. Ég hef verið sjálfstæðismaður frá ung- lingsárum mínum og ég er sár- hryggur yfir því hvernig komið er fyrir mínum gamla flokki; að hann skuli fara svona að ráði sínu einsog allt bendir til að hann geri. Hann get ég ekki kosið meðan þessi for- ysta er í fararbroddi. En ég er og verð sjálfstæðismaður; þess vegna hafna ég orkupökkum ESB. Eftir Knút Hauk- stein Ólafsson » Aldrei er nokkuðsagt hreinskilnislega um leyndarmálið, raunverulegan tilgang innleiðingar pakkans. Knútur Haukstein Ólafsson Höfunfur er eldri borgari og sjálfstæðismaður. knuturo@kkgallery.net Sannleikurinn um nauðsyn innleiðingar orkupakka 3? Á dögunum rakst ég á viðtal á mbl.is við mann að nafni dr. Munib Younan en hann er víst biskup frá Pal- estínu og fyrrverandi forseti Lútherska heimssambandsins. Ef ég skil þetta rétt var hann staddur hér á landi til að halda fyrir- lestur á Skálholtshátíð í samvinnu við Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar. Rétt er að geta þess að ég átti ekki kost á því að hlýða á fyrirlesturinn og veit því ekki efni hans. Það var einkum þrennt sem stakk mig í augu við lestur viðtalsins. Átökin í Mið-Austurlöndum Í viðtalinu segir biskup, „Megin- vandamál Mið-Austurlanda eru átök- in í Ísrael. Ef þau verða leyst verður friður í öllum Mið-Austurlöndum“. Þetta varð ég að lesa nokkuð oft yfir og spurði ég mig í hvert sinn eftir lesturinn hvort maðurinn vissi ekki hvað gengið hefur á í Mið-Austur- löndum undanfarin ár. Veit hann ekki að það logar allt í átökum í araba- heiminum í Mið-Austurlöndum, ekki Ísrael? Veit maðurinn ekki af borg- arastríðinu í Sýrlandi? Hrottaskap og fjöldamorðum ISIS-liða? Veit maður- inn ekkert um styrjöldina í Jemen þar sem Íranar eru með sínar klær og Sádi-Arabar berjast á móti? Veit maðurinn ekkert um að Íranar hafa dælt peningum í Hezbolla sem ráða Suður-Líbanon og eru hermdar- verkasamtök sem Íranar nota sem málaliða, meðal annars í Sýrlandi? Veit hann ekkert um Hamas á Gasa- ströndinni sem stjórna Gasa á sama hátt og vinur þeirra stjórnar Norður- Kóreu? Veit maðurinn ekkert af áhyggjum hins frjálsa heims að Ír- anar eru nú leynt og ljóst að koma sér upp kjarnavopnum og ógna meir og meir heimsfriðnum? Samkvæmt við- talinu við biskupinn er þetta allt Ísr- ael að kenna! Hvernig má það vera? Ánægður með að kristnir séu einungis 2% Palestínumanna Af viðtalinu má ekki annað skilja en að biskupinn sé bara nokkuð ánægður með að einungis 2% þeirra sem kalla sig Palestínuaraba séu kristnir en segist að sama skapi ekki vilja kalla þá minnihluta! Við lauslega athugun á íbúafjölda í Mið-Austur- löndum kemur í ljós að í helstu ríkj- um araba, meðal annars þeirra sem umlykja Ísrael, búa um 300 milljónir manna. 96% þeirra eru músl- imar en aðeins um 4% kristnir og annarrar trú- ar. Kristnum hefur fækkað jafnt og þétt undanfarin hundruð ár og eftir einhver ár verða engir kristnir menn til í þessum löndum ef fram heldur sem horfir. Í Ísrael, sem biskupnum var nokkuð tíðrætt um í viðtalinu, búa 8,5 milljón manna, 75% eru gyðingar, 20% eru múslimar og 5% eru annarrar trúar. Ja so! Tveggja ríkja lausn Biskupinn minnist í viðtalinu á hina svokölluðu tveggja ríkja lausn. Hann minnist aftur á móti ekkert á það að Palestínuarabar hafa nokkrum sinn- um hafnað þeirri lausn sjálfir, meðal annars í september 1993 þó að búið hafi verið að semja um slíkt. Þá guggnaði Yasser Arafat. Tveggja ríkja lausn getur aldrei orðið á meðan Palestínuarabar eru klofnir í tvær andstæðar fylkingar; þá sem fylgja Hamas og þá sem fylgja Fata. Hamas og Fata hata hvor annan meira en Ísraela. Biskupinn segir að ástandið í Pal- estínu sé slæmt, að fjöldi ungs fólks sé atvinnulaus og margir reyni að yfirgefa svæðið. Þetta er alkunna því Gasa og Vesturbakkanum stjórna hreinræktaðar glæpaklíkur sem stela öllu því fé sem almenningi er ætlað, bæði skattfé og styrktarfé sem Bandaríkin og önnur vestræn ríki dæla inn á svæðið. Biskupinn gleymir að geta þess að engin arabalönd vilja taka við þessu unga fólki, hvorki Sádi-Arabía, Íran, Jórdanía, Líbanon, Katar, Sameinuðu arabísku fursta- dæmin eða Egyptaland, svo einhver arabalönd séu nefnd. Hverju skyldi það sæta? Skálholtshátíð – dr. Munib Younan Eftir Magnús Magnússon Magnús Ægir Magnússon » Það er alkunna að Gasa og Vestur- bakkanum stjórna hreinræktaðar glæpa- klíkur sem stela öllu því fé sem almenningi er ætlað, skattfé sem og styrktarfé. Höfundur er rekstrarhagfræðingur og friðarsinni. Próf. Stefán Már Stefánsson, helzti sér- fræðingur í ESB-rétti, segir að það „væri rétta lögfræðilega leiðin“ að senda orkupakkamálið með ósk um undanþágu til sameiginlegu EES- nefndarinnar, „þar sem gert væri ráð fyrir því í EES-samningnum“ (í forsíðufrétt í Fréttabl. 7. maí). Þetta heykist ríkisstjórnin á að gera, þykist örugg með sína óljósu „fyrirvara“, þótt slíkir hafi ekki haldið gagnvart ESB í hliðstæðu efni. Í stað- inn vill hún keypt lögfræðiálit (margt fæst fyrir fé) sem gera mikið úr pólit- ískri áhættu við að biðja um það sem við eigum þó fullan rétt á. Undir forystu Bjarna Ben. brást þorri þingmanna Sjálfstæðisflokks Ís- landi í Icesave-málinu, eins og þeim ætlar að takast nú í Op.3-málinu, þjóðinni til armæðu. Annar ráðherra, Ásmundur Einar, áður samherji minn gegn Icesave- samningum og ESB-umsókn, fjárfesti 75 milljónir í jörðum í Dölum, að sögn með lánum frá ESB. Stórfelld vind- mylluáform hans eru ótrúleg, afköst verða 375 MW (en Búrfellsvirkjunar 370 MW), hæð spaða í efstu stöðu 175 m, 100 m hærri en rellur sem LV reisti ofan við Búrfell, en steypan sem flytja þarf upp á Laxárdalsheiði hátt í 200.000 tonn! Hver spaði, sem flytja þarf inn erlendis frá, kemur í heilu lagi, 68 m að lengd, 81 stk.! (Gunnar Heiðarsson: Ráðherrann og vifturnar hans, noldrarinn.blog.is/blog/ noldrarinn/entry/2239256/) Nú eyða vindmyllur nálægt Búr- fellsvirkjun fjölda gæsa, en vindmyll- ur sínar (og erlendra fjárfesta) hyggst ÁED reisa nálægt útbreiðslu- svæðum arnarstofnsins, sem má ekki við afföllum, en stórir fuglar jafnt sem smærri lenda í spöð- unum: facebook.com/ watch/ ?v=2226037754326363 Ráðherrann á að skoða hug sinn á ný; vill hann hafa það á sam- vizkunni að útrýma síð- asta erni á Íslandi? Að samþykkt pakk- ans feli í sér opið sam- þykki við sæstreng ligg- ur fyrir í Op.3, markmiðslýsingu hans og í ákvæðum um að ekki megi hindra raforkuflutning yfir landamæri. Átt er við raflínur milli landa. Ef um lönd er að ræða sem að- skilin eru með hafi eru þær í formi sæstrengs. Skúli Magnússon héraðsdómari hafnar því að lagning sæstrengs tengist Op.3, gengur þar fram hjá upphafsorðum 1. gr. rglg. ESB- þingsins og Ráðsins nr. 714/2009: „Markmiðið með þessari reglugerð er að: a) setja sanngjarnar reglur um raforkuviðskipti yfir landamæri og auka þannig samkeppni á innri mark- aðinum með raforku“ og í 19. gr.: „eftirlitsyfirvöld skulu vinna saman og með framkvæmdastjórninni og stofnuninni til að uppfylla markmið þessarar reglugerðar“ og í 21. gr.: „skulu aðildarríkin setja reglur um viðurlög við brotum gegn ákvæðum þessarar reglugerðar og gera allar nauðsynl. ráðstafanir til að tryggja að þeim ákvæðum sé beitt....“ Og í I. við- auka við reglugerðina: „Flutnings- kerfisstjórar skulu leitast við að sam- þykkja öll viðskipti, þ.m.t. þau sem tengjast viðskiptum yfir landamæri.“ Kýs Skúli að vera blindur á þessar staðreyndir í þeim pakka sem þing- menn eru narraðir til að samþykkja? Augljóslega eru þar ákvæði sem mæla fyrir um raforkuviðskipti yfir landamæri, sem í tilfelli eylandsins hljóta að verða í formi sæstrengs. Allar fullyrðingar um að Op.3 feli ekki í sér sæstrengi eru því rakin lygi sem enginn á að leggja nafn sitt við, hve mikið sem boðið kann að vera í þóknun fyrir sérálit sem gangi í þessa röngu átt. Í reglugerð ESB nr. 702/2009, um að koma á fót Samstarfsstofnun eftir- litsaðila á orkumarkaði, segir í 5. lið: „Aðildarríkin skulu vinna náið saman og fjarlægja hindranir í vegi viðskipta með raforku og jarðgas yfir landa- mæri í því skyni að ná fram mark- miðum Bandalagsins á sviði orku.“ Ljóst er að með Op.3 er öllum að- ilum hans gert skylt að fylgja eftir því markmiði að fjarlægja hindranir í vegi viðskipta með raforku yfir landa- mæri í því skyni að ná fram mark- miðum ESB (ekki okkar!). Eru þeir stjórnmálamenn læsir, sem sjá þetta ekki? Þetta merkir ekki skyldu ríkisins að kosta og leggja sæstreng, heldur að bannað sé að hindra viðskipti með raforku um sæstreng. Ríkið yrði aðili að þessum reglum, verði Op.3 sam- þykktur 2. september. Stjórnvöld geta þá ekki undanþegið sig frá skyldunni að sjá til þess að engar hindranir verði settar í veg fyrir lagn- ingu og starfrækslu sæstrengs. Hrikalegar afleiðingar Jafnvel í greinargerð Guðlaugs Þórs með Op.3 segir í 7. k.: „sæ- strengur myndi leiða til hækkunar á raforkuverði innanlands vegna teng- ingar við innri raforkumarkað ESB og þar með evrópskt raforkuverð.“ Það getur hækkað tvisvar allt að þrisvar sinnum, til heimila, fyrir- tækja og stofnana, markaðsverð eitt mun gilda, ekki má mismuna öðrum í þágu Íslendinga skv. þessu kerfi Op.3. Samfélagslegir stórnotendur, m.a. Landspítalinn og Flugstöð Leifs Eiríkssonar, yrðu, til að fá sitt raf- magn, að yfirbjóða með hæsta verði erlend fyrirtæki eins og þýzka ríkis- spítala eða flugstöðvar. Kostnaðar- auki fyrirtækja hlýzt af þessu, fer út í verðlag, eykur verðbólgu og verð- tryggðar skuldir, m.a. íbúðalána, flestum til óþurftar. Önnur fyrirtæki gætu hrunið, t.d. garðyrkjubænda, enda bannað að niðurgreiða rekstur þeirra í samkeppni við innflutning. Hverjum er þetta vonarefni? Margur verður af aurum api í orkupakkamáli Eftir Jón Val Jensson » Allar fullyrðingar um að Op.3 feli ekki í sér sæstreng eru rakin lygi. Jón Valur Jensson Höfundur er guðfræðingur og rithöfundur. jvj@simnet.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.