Morgunblaðið - 02.09.2019, Síða 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019
Ný netverslun!
www.listverslun.is
Við höfum opnað nýja netverslun með vinsælustu myndlistarvörum okkar.
Sendum um land allt – frí heimsending fyrir 10.000 kr. eða meira.
Kynntu þér vöruúrvalið á www.listverslun.is
Smáratorgi 1 | 201 Kópavogur | vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Til hamingju með daginn
60 ára Sía er Reykvík-
ingur en býr á Akur-
eyri. Hún er hjúkr-
unarfræðingur og
ljósmóðir að mennt og
er doktor í heilbrigð-
isfræðum. Hún er lekt-
or við Háskólann á
Akureyri.
Maki: Birgir Karl Knútsson, f. 1960, við-
skiptafræðingur.
Börn: Gunnar Ingi Hrafnsson, f. 1984,
Stefán Oddur Hrafnsson, f. 1994, og
stjúpsonur er Ævarr Freyr Birgisson, f.
1996. Barnabarn er Rebekka Rán
Gunnarsdóttir, f. 2019.
Foreldrar: Jón Aðalsteinn Jónsson, f.
1920, d. 2006, orðabókarstjóri, og Vil-
borg Guðjónsdóttir, f. 1924, d. 2015,
skrifstofumaður hjá Orðabók HÍ.
Sigríður Sía
Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ættir að fara með löndum í dag,
því þú ert illa undir það búinn að lenda í
einhverju orðaskaki við vinnufélaga. Stattu
fast á þínu og treystu eigin dómgreind.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur smekk heimsmannsins, og
vilt njóta fagurra hluta með öðrum. Það er
gaman að njóta augnabliksins þegar allar
aðstæður eru réttar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt ekki að eiga í erfiðleikum
með að sinna þeim sérstöku verkefnum
sem þér hafa verið falin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Finnist þér að gengið hafi verið á
rétt þinn skaltu sýna festu og rétta þinn
hlut. Aðalmálið er að vita hvar þú hefur
aðra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er auðvelt að ruglast í sam-
skiptum. Búast má við töfum eða von-
brigðum og allt eins líklegt að einhver ná-
kominn skipti algerlega um skoðun.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft að koma þér upp dagbók
og skipuleggja tíma þinn betur. Taktu lítið
skref í áttina að því sem þú vilt í lífinu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt ekki að vera í neinum vandræð-
um með að inna af hendi þau verkefni sem
þér hafa verið falin þótt flókin séu. Stund-
um er ánægja næg ástæða til að gera eitt-
hvað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sýndu skilning þegar náinn
vinur færist undan að svara spurningum
þínum. Réttlætiskennd þín er gott vega-
nesti og þér farnast illa ef þú reynir að
svæfa hana.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef þú reynir að stytta þér leið í
ákvarðanatöku áttu á hættu að gera af-
drifarík mistök. Það er hægt að rökræða
við fólk án þess að allt fari í hund og kött.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt mikið fjör ríki þessa stund-
ina og gaman sé að taka þátt í því máttu
ekki gleyma alvöru lífsins.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt allir megi eitthvað til mál-
anna leggja er lokaákvörðunin þín og
einskis annars. Best er að treysta eðlis-
ávísuninni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Leggðu þitt af mörkum í félags-
lífinu. Haltu fast við áform þín og láttu
skoðanir annarra ekki hafa áhrif á þig.
lagði upp með þegar ég bauð mig
fram.“
Theodóra er núna verkefnastjóri
hjá Isavia í tengslum við framtíðar-
uppbyggingu Keflavíkurflugvallar.
„Ég byrjaði þar í september 2018 og
er að vinna líka í stefnumótun hjá
Isavia og með nærsamfélaginu á
Suðurnesjum. Mér líkar mjög vel í
þessu starfi og þar eru áhugaverð
verkefni fram undan.“
Mikla athygli vöktu dómsmálin
sem Theodóra höfðaði fyrir hönd föð-
ur síns og sjálfrar sín gegn Lands-
bankanum. Hún vann bæði málin,
sem voru fordæmisgefandi, og var
Bjartrar framtíðar og síðan BF Við-
reisnar og var formaður bæjarráðs
og skipulagsráðs til 2018. Hún var al-
þingismaður fyrir Bjarta framtíð
2016-2017. „Ég hef mjög mikla
ánægju af sveitarstjórnarmálum og
þurfti að velja þarna á milli. Eftir að
ég var kosin inn á Alþingi ætlaði ég
alltaf að hætta sem bæjarfulltrúi í lok
tímabilsins, sem var nokkrum mán-
uðum seinna, en fannst ég þurfa að
velja strax annað hvort. Ég valdi
frekar bæjarmálin því ég hef bæði
meiri ánægju og meiri áhrif á sam-
félagið mitt sem bæjarfulltrúi og var
langt komin með þau verkefni sem ég
T
heodóra Sigurlaug Þor-
steinsdóttir fæddist 2.
september 1969 að Ás-
braut 17 í Kópavogi.
„Foreldrar mínir voru
nýfluttir þangað frá Melgerði 1, húsi
sem föðurafi minn byggði.“
Theodóra var tvö fyrstu árin í Kárs-
nesskóla en flutti svo í Mosfellssveit-
ina og gekk í Varmárskóla. „Það var
gott að alast upp í Mosfellssveit og þar
eignaðist ég dýrmætar vinkonur. Ég
æfði handbolta, fótbolta og skíði og
lærði á trompet. Við áttum hesta og
gátum ferðast um á vélsleða, sem var
eitt af áhugamálum foreldra minna.
Ég fór í MS og eignaðist þar góðar
vinkonur en útskrifaðist svo frá Verzl-
unarskóla Íslands. Ég fór m.a. til
Frakklands í nám, stundaði við-
skiptafræði í HÍ en útskrifaðist síðan
úr lögfræði frá Háskólanum í Reykja-
vík 2012.“
Theodóra vann hjá BYKO 1989-
1998, meðal annars sem innkaupa-
stjóri, var innkaupastjóri hjá Mjólkur-
samsölunni 2000-2001, markaðsstjóri
og þjónustustjóri hjá Smáralind 2001-
2007, auk þess að vera upplýsinga-
fulltrúi fyrir leigutaka og hönnuði á
byggingartíma Smáralindar. Árin
2008-2014 var Theodóra sjálfstætt
starfandi meðfram námi og kom m.a.
á Markaðsstofu Kópavogs.
Theodóra hefur setið í bæjarstjórn
Kópavogs frá 2014, fyrst sem oddviti
fjallað um mál föður hennar í heim-
ildarmyndinni Ránsfengur. „Mínu
máli lauk í upphafi árs 2017 og var ég
þá búin að vera í þessari baráttu í átta
ár.“
Theodóra hefur mest gaman af því
að vera í góðra vina hópi og njóta
samveru með fjölskyldu, vinum, ná-
grönnum og góðum félögum í pólitík-
inni. „Fjölskyldan ferðast töluvert
saman, við förum í ferðalög innan-
lands, siglingar, á skíði erlendis og nú
um jólin ætlum við öll að fara saman
til Flórída og verja jólunum saman
þar. Þar ætlum við að halda upp á
ýmis tímamót, ég ætla að halda upp á
50 árin, maðurinn minn verður 60 ára
í febrúar og svo eigum við 20 ára
brúðkaupsafmæli.“
Fjölskylda
Eiginmaður Theodóru er Ólafur
Agnar Viggósson, f. 5.2. 1960, verk-
taki. Foreldrar hans voru hjónin Val-
gerður Sóley Ólafsdóttir, f. 26.3. 1913,
d. 8.2. 2009, verkakona, og Viggó F.
Sigurðsson, f. 21.9. 1915, d. 12.7. 1975,
verkamaður. Þau bjuggu lengst af í
Kópavogi
Börn Theodóru og Ólafs eru 1)
Eydís María Ólafsdóttir, f. 16.9. 1994,
vinnur í markaðsmálum en unnusti
hennar er Sveinn Ævar Sveinsson, f.
6.3. 1988, múrari og lögfræðingur,
búsett í Kópavogi; 2) Stefán Bjarki
Ólafsson, f. 31.7. 1998, nemi, búsettur
Theodóra S. Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri hjá Isavia og bæjarfulltrúi – 50 ára
Fjölskyldan Theodóra og Ólafur ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum í Þórsmörk árið 2018.
Valdi frekar bæjarmálin
Fyrir utan Þerney Samstarfsfólk Theo-
dóru í bæjarpólitíkinni í Kópavogi.
Vinkonur Theodóra ásamt
Helgu Sigrúnu Harðardóttur.
40 ára Lúðvík er
Kópavogsbúi og hefur
búið þar alla tíð fyrir
utan tvö ár í Wales.
Hann er sölumaður
hjá heildsölunni Járn
og gler og hefur unnið
þar síðastliðin 13 ár.
Maki: Lis Ruth Klörudóttir, f. 1979, kenn-
ari í Laugalækjarskóla.
Börn: Karen Lind Lúðvíksdóttir, f. 2007,
og Aron Logi Lúðvíksson, f. 2010.
Foreldrar: Kristján Þór Valdimarsson, f.
1955, vinnur hjá innkaupadeild Landspít-
alans, bús. í Mosfellsbæ, og Berglind
Lúðvíksdóttir, f. 1960, heimavinnandi.
Stjúpfaðir er Björn Pálsson, f. 1961, vinn-
ur í framleiðslustýringu hjá Marel. Þau
eru bús. í Kópavogi. Stjúpmóðir var Íris
Jónsdóttir, f. 1962, d. 2012.
Lúðvík Aron
Kristjánsson
Þessar duglegu stúlkur,
Alexandra Kolka Stelly
Eydal og Íris Ósk Sverris-
dóttir, héldu tombólu við
Nettó, Hrísalundi á
Akureyri, og gáfu Rauða
krossinum við Eyjafjörð
afraksturinn, 5.320 krón-
ur. Rauði krossinn þakkar
þeim kærlega fyrir.
Tombóla